Hugur og hönd - 2018, Page 9
16 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 17
Landsmenn fagna nú 100 ára afmæli fullveldis Íslands.
Í tilefni þessara tímamóta auglýsti afmælisnefnd, sem
skipuð var af Alþingi, eftir dagskrárliðum. Veittir voru
styrkir til félagasamtaka, einstaklinga og stofnana til
verkefna sem á einn eða annan hátt tengjast fullveldis-
afmælinu. Viðburðirnir eru hluti af afmælisdagskrá sem
birt er á vefsíðunni www.fullveldi1918.is.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands hlaut styrk fyrir verk-
efnið Út úr skápnum – þjóðbúningana í brúk. Mark-
miðið er að vekja athygli á þeim fjölda þjóðbúninga sem
leynast í skápum, kistum og kössum um allt land, og fá
fólk til að draga þá fram í dagsljósið. Sérstaklega er hvatt
til þess að ungar konur klæðist búningum formæðra
sinna, en með því flyst á milli kynslóða sá menningararfur
sem felst í þjóðbúningum.
Viðburðir félagsins í tilefni af fullveldisafmælinu eru
fjórir, sumir eiga sér nokkra hefð en aðrir eru nýir af nál-
inni. Í janúar var haldið þjóðbúningakaffi í Hannesarholti
við Grundarstíg þar sem Guðmundur Hálfdánarson
sagnfræðingur flutti erindi um Sigurð Guðmundsson
málara. Þjóðbúningadagur var haldinn í Safnahúsinu
við Hverfisgötu í samstarfi við Þjóðminjasafnið og Þjóð-
dansafélag Reykjavíkur um miðjan mars. Þann dag flutti
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur erindi og Þórarinn
Már Baldursson fór með rímur. Báðir þessir viðburðir
voru vel sóttir.
Út úr skápnum – þjóðbúningana í brúk var sérlega
viðeigandi yfirskrift viðburðar í byrjun aprílmánaðar
þar sem almenningi var boðið að koma með þjóðbúninga
og búningahluta til skoðunar og mátunar. Á staðnum, til
ráðgjafar og ráðlegginga voru þær Jófríður Benedikts-
dóttir og Oddný Kristjánsdóttir klæðskerar ásamt Dóru
Jónsdóttur gullsmiði. Fyrirmyndin að þessum viðburði er
fengin frá Þjóðminjasafninu þar sem almenningi hefur á
tilteknum dögum boðist að koma með gripi og fá um þá
upplýsingar hjá sérfræðingum safnsins. Fjöldi gesta kom
í Nethylinn þennan dag og óhætt að segja að mikil ánægja
hafi verið með framtakið. Fólk kom í ýmsum tilgangi;
til að láta skoða búningasilfur, fá leiðbeiningar um að
klæðast búningum, til að máta gamla búninga og fá upp-
lýsingar um hvaða breytingar þarf að gera til að þeir passi
eða hreinlega til að fá vitneskju um hvað það væri með í
höndunum. Kona af Laufásveginum kom með heljarmik-
inn poka, ásamt pappakassa fullan af klæðum og klútum
frá ömmu sinni og nöfnu. Eftir aðstoð og mátun var hún
með tvenn peysuföt og einn upphlut sem smellpössuðu á
hana ásamt slifsum og svuntum til skiptana en jafnframt
einn kassa af flíkum sem ekki tengdust þjóðbúningum.
Viðkvæði hennar og margra fleiri var að lengi hefði
staðið til að skoða þjóðbúningana en sú aðstoð sem þarna
var boðið upp á hefði orðið til þess að úr varð. Því er ljóst
að full ástæða er til að bjóða upp á þessa þjónustu að ári.
Fjórði og síðasti viðburðurinn í tengslum við fullveldis-
afmælið er sýning á þjóðbúningum í Árbæjarsafni dagna
9.-17. júní næstkomandi. Félagið er í góðu samstarfi við
safnið, ekki síst á seinni árum eftir að starfsemin fluttist í
Nethyl. Sú stemning sem ríkir á safninu skapar skemmti-
lega og viðeigandi umgjörð utan um sýningu á þjóðbún-
ingum auk þess sem þjóðhátíðardagurinn er sérstaklega
viðeigandi lokapunktur sýningarinnar.
Viðtökur við þeim viðburðum sem þegar hafa verið
haldnir undir yfirskriftinni Út úr skápnum – þjóðbún-
ingana í brúk! hafa sýnt að áhugi á þjóðbúningum er
umtalsverður og vaxandi um þessar mundir. Látum það
verða okkur til hvatningar til áframhaldandi góðra verka.
Út úr skápnum
– þjóðbúningana í brúk!
H ö f u n d u r : Margrét Valdimarsdótt ir - L j ó s m y n d i r : Heimir Hoffr i tz