Hugur og hönd - 2018, Page 15

Hugur og hönd - 2018, Page 15
 2018 HUGUR OG HÖND 2928 HUGUR OG HÖND 2018 Undir aldamótin 1900 og á fyrri hluta 20. aldar urðu miklar breytingar á íslensku samfélagi, gamli tíminn var að hverfa. Innflutningur jókst á öllum sviðum, ný innflutt efni voru notuð í föt, líka gömlu, þjóðlegu búningana og snið þeirra breyttust. Peysuföt Lengi héldu margar konur í peysuföt sem spari- klæðnað og í raun hvarf sá búningur aldrei alveg. Peysufötin breyttust í samræmi við tíðaranda, tísku og fáanleg efni. Pils og peysa eru svört, saumuð úr klæði, silkidamaski eða efni sem líkist því. Peysan er sem fyrr aðskorin og hún er með stakk (stokk) að aftan sem er þéttfelldur renningur úr sama efni og leggst yfir pilsstrenginn. Flauel er á boðöngum og fremst á ermum. Undir peysuna að framan er lagt hvítt peysubrjóst skreytt blúndu eða útsaumi sem sér í á opnum barminum. Slifsi er langur renningur sem er þræddur við hálsmál peysunnar og brugðið í slaufu á barmi. Húfan er grunn, saumuð úr flaueli eða prjónuð úr örfínu bandi og með löngum silkiskúf. Svunta getur verið einlit, köflótt eða langröndótt. Upphlutur og peysuföt 20. aldar Uppruna 20. aldar upphlutar má rekja til konungs- komunnar 1907. Þá var útbúinn sérstakur búningur á stúlkur sem þjónuðu í konungsveislum. Tekið var mið af upphlutnum sem verið hafði hluti af klæðnaði íslenskra kvenna um aldir. Þar sem um var að ræða búning þjónustustúlkna var hann svartur og skyrtur og svuntur hvítar. Búningurinn vakti athygli og varð til þess að fjöldi kvenna fór að koma sér upp sambæri- legum búningum. Pils eru svört, saumuð úr klæði, silkisatíni eða efni sem líkist því og upphluturinn úr svipuðu efni og alltaf svartur. Bolurinn er flegnari en fyrr og myllupör aðeins fjögur. Flauelsborðar á barmi eru breiðir og skreyttir vírbaldýringum eða silfurrósum. Á baki eru mjóar leggingar á axlarsaumum og tvær á baki. Skyrtur geta verið fjölbreyttar að efni og gerð. Húfan er grunn og með löngum silkiskúf úr flaueli eða prjónuð. Peysuföt Margrétar Valdimarsdóttur og upphlutur Sigríðar Elísabetar Sigmundsdóttur eru dæmigerðir búningar 20. aldar. Upphlutur

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.