Hugur og hönd - 2018, Qupperneq 29

Hugur og hönd - 2018, Qupperneq 29
 2018 HUGUR OG HÖND 5756 HUGUR OG HÖND 2018 Haldið áfram með seinna eyrnaskjólið, takið nýja hnotu (eða hinn endann á hnotunni) og prjónið 1 umferð frá réttu með brugðningum. Á enda umferð- arinnar eru nú 2 bönd (úr 2 hnotum), notið þau til að fitja upp 33-33-35 L. Prjónið yfir lykkjur á hinu eyrnaskjólinu, frá réttu, en nú má slíta frá þá hnotu sem ekki er notuð áfram. Notið endann vinstra megin og bandið sem prjónað var með til að fitja upp 15-15-15 L að aftan (= 78-86-92 L). Tengið í hring og prjónið kant með brugðningum, 1S og 1B til skiptis, passið að brugðningar á eyrna- skjólum riðlist ekki þegar þau tengjast kantinum. Prjónið kantinn 6-8-9 umferðir. Prjónið næstu umferð slétt og aukið í 18-18-20 L jafnt yfir umferðina (= 96-104-112 L). Kollurinn: Skiptið yfir á prjóna nr 3½ og prjónið munstur, þar til húfan mælist 9-11-13 cm frá fit á kanti. Úrtökur: Prjónið úrtökur í 2. hverri umferð, á 8 stöðum yfir umferðina: *Prjónið 10-11-12 L eftir munstri, 2Ss, endurtakið frá * út umferðina. Prjónið 1 umferð með munstri. Næsta úrtökuumferð: *Prjónið 9-10-11 L eftir munstri, 2Ss, endurtakið frá * út umferðina. Endurtakið úrtökur í 2. hverri umferð og fækkið prjónuðum lykkjum um eina á milli úrtaka, í hverri umferð. Passið að halda munstri réttu milli úrtaka. Slítið frá þegar 8 L eru eftir og dragið endann í gegnum lykkjurnar sem eftir eru. Heklið 2 bönd með lit A, um 25 cm löng: Notið heklu- nál nr 3 og fitjið upp 25 cm af loftlykkjum, heklið til baka með fastahekli. Festið böndin í eyrnaskjólin. Í topp húfunnar eru hekluð sams konar bönd. Þau geta verið í einum lit eða blanda af litunum í munstrinu. Heklið 8-10 bönd, hvert um 12 til 20 cm löng. Heklið þau á sama hátt, en heklið næstu lengju í framhaldi af þeirri fyrri. Saumið böndin niður í topp húfunnar. Gangið frá endum. FRÁGANGUR

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.