Fréttablaðið - 28.03.2020, Síða 4
Tímalengd á
þessum faraldri
hefur áhrif á það hvaða
ákvarðanir verða teknar, nú
erum við að verja störf eins
mikið og við
getum.
Jóhannes S.
Rúnarsson,
framkvæmda
stjóri Strætó
20.000
eru sýnatökupinnarnir sem
Össur getur útvegað og
reynast nothæfir.
164
starfsmönnum var sagt
upp hjá Bláa lóninu.
73
prósent háskólanema gefa
líðan sinni lága einkunn.
7
prósent atvinnuleysi verður á
þessu ári samkvæmt svart
sýnustu spá Seðlabankans.
2
forsetar Alþingis eru
hafðir í vari í kóróna
veirufaraldrinum.
TÖLUR VIKUNNAR 22.03.2020 TIL 27.03.2020
Þrjú í fréttum
Leikskólastjóri,
prófessor og
ráðherra
Anna Margrét Ólafsdóttir
skólastjóri leikskólans
Nóaborgar
heldur úti vef
með náms-
leikjum og
verkefnum fyrir
yngstu börnin.
Hún hefur útbúið
sérstök verkefni
sem börn í sóttkví geta unnið
heima hjá sér. „Það þurfa ekki allir
að finna upp hjólið og kannski
nýtist þetta einhverjum. Þetta er
bara áhugamál hjá mér.“
Eiríkur Bergmann
prófessor í stjórnmálafræði
segir að á tímum
sem þessum sé
hætt við því að
valdboðsöfl
geti hrifsað
til sín völd þó
stundum þurfi
að slaka á stjórn-
skipulegu fyrirkomu-
lagi. „Vandinn er að skilja á milli
þeirra þátta þar sem er raun-
veruleg nauðsyn á slíku og þar sem
menn eru að nýta sér ástandið.“
Sigurður Ingi Jóhannsson
samgöngu- og
sveitarstjórnarráð-
herra
sagði í vikunni
að mögulega
ætti að taka
vísitölu neyslu-
verðs úr sam-
bandi.
„Kannski 30 til 35
prósent af reiknuðum stærðum
í vísitölunni eru farnar og það er
ekki hægt að nota þá vísitölu sem
verið hefur. Kannski væri gáfuleg-
ast að við segðum; Erum við ekki
bara með fasta vísitölu í einhvern
x mánuð og við ætlum bara að
reyna að komast yfir þessa gjá.“
SAMGÖNGUR „Samkvæmt talningu
var fimmtíu prósenta samdráttur á
farþegum í síðustu viku, við eigum
von á enn meiri samdrætti fyrir
þessa viku, sama á við um tekjurn-
ar,“ segir Jóhannes S. Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Strætó. Frá og
með næsta þriðjudegi munu stræt-
isvagnar höfuðborgarsvæðisins
aka samkvæmt laugardagsáætlun,
fyrir utan að vagnarnir byrja að
ganga fyrr og með tíðari ferðir á
morgnana.
Um helgina verður næturakstri
úr miðbænum hætt. Biðstöðva-
töflum á stoppistöðvunum verður
ekki breytt og eru farþegar beðnir
um að skoða áætlaða tíma á heima-
síðu Strætó eða í Strætó appinu.
Jóhannes segir að líkt og með
fjölda annarra fyrirtækja þá muni
ástandið hafa mjög slæm áhrif á
af komuna. „Framlög dekka um
70 prósent af kostnaðinum, en við
erum að grípa til þessara aðgerða
vegna þess að tekjur sem hafa verið
í kringum tveir milljarðar á ári eru
horfnar núna að mestu.“
Sambærileg fækkun hefur verið
á hinum Norðurlöndunum. Ekki
hefur komið til tals að hætta með
einstaka leiðir, en nokkrar minni
leiðir sem keyra ekki um helgar falla
út. Jóhannes á ekki von á að grípa
þurfi til uppsagna. „Tímalengd á
þessum faraldri hefur áhrif á það
hvaða ákvarðanir verða teknar, nú
erum við að verja störf eins mikið
og við getum.“
Frá síðasta mánudegi hafa far-
þegar notað aftari dyr til að forð-
ast návígi við vagnstjóra. Nokkrir
starfsmenn Strætó eru í sóttkví
og einhverjir fastir erlendis. Einn
starfsmaður á verkstæði er smitað-
ur og í einangrun. „Hann smitaðist
í gegnum konuna sína. Hann var að
vinna um helgina með öðrum sem
er nú kominn í sóttkví. Þetta hefur
ekki haft nein víðtæk áhrif á okkur.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni hefur umferðin á
höfuðborgarsvæðinu í mars dregist
saman um 15,4 prósent. Af þremur
stöðum þar sem Vegagerðin mælir
umferð á höfuðborgarsvæðinu er
samdrátturinn mestur á Hafnar-
fjarðarvegi, 21 prósent milli ára, 13
prósenta samdráttur er á Reykja-
nesbraut og 12,6 á Vesturlandsvegi.
Ferðum fyrir fatlaða hjá Strætó á
höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað
úr rúmlega 2.000 á dag niður í 400.
Í mars hefur umferð á hringvegin-
um dregist saman um 20 til 25 pró-
sent, 42 prósent á Mývatnsöræfum
og Mýrdalssandi, 23 í Hvalfjarðar-
göngum, 27 við Hafnarfjall og um
35 prósent á Holtavörðuheiði.
Ferðu m la nd sbyg gðavag na
Strætó mun ekki fækka nema í
samráði við Vegagerðina, en þar
hefur farþegum einnig fækkað
töluvert. arib@frettabladid.is
Færri á ferðinni um allt land
Strætó dregur úr ferðum eftir hrun í farþegatölum vegna COVID-19 faraldursins. Umferð hefur minnkað
um allt land, sums staðar um ríflega 40 prósent. Einn starfsmaður Strætó er smitaður af kórónaveirunni.
Samdráttur í bensínsölu
Sala á bensíni hefur dregist
verulega saman á höfuðborgar
svæðinu og öllu suðvesturhorn
inu. Nokkuð minni samdráttur
er á eldsneytissölu á Norður og
Austurlandi.
„Við erum að sjá samdrátt í
sölunni í takt við minnkun á um
ferð og ekki útséð með að sam
dráttur muni aukast enn frekar í
apríl í ljósi aðstæðna,“ segir Rakel
Björg Guðmundsdóttir, markaðs
og þjónustustjóri Atlantsolíu.
Ferðum Strætó fækkar frá og með mánudeginum. Enginn næturstrætó verður um helgar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Verkstæðið er viðurkennt þjónustuverkstæði fyrir
Jeep®, RAM Trucks, Fiat, Dodge, Chrysler og
Alfa Romeo. Jafnframt er það almennt
bifreiðaverkstæði sem gerir við allar gerðir bifreiða.
Pantið tíma í síma 534 4433
eða á thjonusta@isband.is
STUTTUR BIÐTÍMI!
Þjónustuverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í
breytingum á Jeep® og RAM.
JEEP® OG RAM
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til
breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum
varahluti í aðra USA bíla.
ÍSBAND er umboðsaðili fyrir AEV sem sérhæfir sig í breytingum á Jeep®
Wrangler og RAM og TeraFlex sem sérhæfir sig í breytingum á Jeep® Wrangler.
ÍSBAND er með umboð fyrir pallbílahús frá ARE.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Smurþjónusta fyrir flestar tegundir bifreiða.
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 534 4433 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
SÆKJUM OG AFHENDUM BÍLA Í OG ÚR ÞJÓNUSTU
Á STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU.
ALLIR BÍLAR SEM KOMA Í ÞJÓNUSTU TIL
OKKAR ERU SÓTTHREINSAÐIR VIÐ MÓTTÖKU
OG AFHENDINGU.
2 8 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð