Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Fréttir Heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækkar um 2,5% Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólk ur- afurðum hækki um 2,5% frá 1. júlí sl. Breytingin er einkum til komin vegna hækkunar launa, segir í fréttatilkynningu frá nefndinni. Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 1,77 kr. á lítra mjólkur, úr 84,39 kr. í 86,16 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingakostnaður mjólkur um 1,81 kr. Samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 3,58 krónur á hvern lítra mjólkur. Lægra verð á mjólkurdufti gagnast íslenskum iðnaði Þau tíðindi eru í ákvörðun nefndarinnar að undanrennu- og mjólkurduft mun lækka um 20% til að mæta áhrifum nýs tollasamnings við Evrópusambandið og lækkun heimsmarkaðsverðs á dufti. Verðlækkun á dufti kemur einkum iðnaðinum til góða, t.d. þeim aðilum sem stunda framleiðslu á súkkulaði, ís og öðrum matvörum þar sem mjólkurduft er notað. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, sagði í samtali við Bændablaðið að verðlækkun á mjólk- urduftinu komi innlendum matvæla- iðnaði mjög vel. „Með þessari verð- lækkun er verið að bæta samkeppn- isstöðu þeirra fyrirtækja sem kjósa að nota innlent hráefni. Fyrir bændur er nauðsynlegt að fá hækkun til sín vegna almennrar verðlagsþróunar. Í raun var hækkunarþörfin meiri en nefndin ákvað að fara milliveginn að þessu sinni. Á þessu árstímabili sem liðið er frá síðustu verðhækkun hafa laun og launatengd gjöld hækkað um 12,7% í þjóðfélaginu. Bændur verða líka að fá sínar launahækkanir eins og aðrir,“ segir Sindri og bætir því við að launahækkanir innan mjólkuriðnaðar- ins vegi þungt í rekstri mjólkursamlaga og óhjákvæmilegt sé að bregðast við því með verðhækkunum. Vegin meðaltalshækkun á heildsöluverði á mjólk er 2,1%. Kostnaðurinn við lækkunina á duftinu skiptist jafnt á milli bænda og mjólkuriðnaðarins. Síðasta hækkun fyrir ári síðan Verðlagsnefnd búvara starfar samkvæmt lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Hún er skipuð sex mönnum og ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu. Fulltrúar í nefndinni eru frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, ve l fe rða r ráðuney t inu og Bændasamtökum Íslands. Síðasta verðlagsákvörðun nefndarinnar var gerð í fyrrasumar. /TB Plöntueitur: Söluleyfi á glýfósati í ESB framlengt um 18 mánuði Leyfi til að selja plöntueitrið glýfósat hefur verið framlengt í löndum Evrópusambandsins um 18 mánuði. Talsverður styr hefur verið innan nefndar Evrópusambandsins sem sér um leyfi á sölu efna til að drepa plöntur. Um tíma leit út fyrir að bannað yrði að selja plöntueitur sem innihalda glýfósat frá og með 30. júní. Ástæða bannsins var sú að talið er að efnið sé krabbameinsvaldandi án þess þó að óyggjandi sannanir þar um liggi fyrir. Niðurstöður rannsókna á skaðsemi glýfósat stangast iðulega á eftir því hvort framleiðendur eða andstæðingar notkunar á efninu greiða fyrir þær. Framleiðandinn hefur fengið 18 mánaða frest, eða til ársloka 2017, til að sýna fram á að efnið sé ekki skaðlegt heilsu manna. Takist það verður leyfi til sölu efnisins framlengt um fimmtán ár. Glýfósat er meðal annars virka efnið í Roundup, sem mikið er notað í landbúnaði í Evrópu og til að drepa óvinsælan gróður í görðum hér á landi. Talsmenn bannsins segja að með frestuninni hafi verið gefið áframhaldandi leyfi til að dæla hundruðum þúsunda tonna út í náttúruna. Undanfarin ár hefur borið á að plöntur sem drepa á með glýfósat hafi myndað mótstöðu gegn efninu og að sífellt verði að nota sterkari blöndur af því til að drepa plönturnar. /VH „Það er enn ekki búið að taka saman hvert heildarumfang kals er, það verður ekki að fullu ljóst fyrr en í haust að lokinni hey öflun. Þá ætti að liggja fyrir hvert upp- skeru tap verður vegna kals,“ segir Sigurgeir B. Hreinsson, formaður stjórnar Bjargráðasjóðs og fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Sigurgeir segir að kal nú í vor sé þó með meira móti, það næst- mesta á þessari öld, næst á eftir kalárinu mikla árið 2013. Bændur sem telja sig eiga rétt á bótum úr Bjargráðasjóði munu senda inn umsóknir næsta haust, í tengslum við skil á forðagæsluskýrslum, en þeim ber að skila inn í síðasta lagi 20. nóvember. „Forðagæsluskýrslur munu liggja til grundvallar á mati á tjóni, en við tökum mið af upp- skeru liðinna ára og metum hvert uppskerutapið er miðað við það,“ segir Sigurgeir. Hann segir menn víða komna vel áleiðis í heyskap en í öllum lands- hlutum nema á Vesturlandi setja þurrkar mikið strik í reikninginn. „Það hefur rignt afskaplega lítið og jafnvel ekki neitt sums staðar, þannig að það er alls ekki til bóta. Uppskera er af öllum toga, bændur segja mér sumir að hún sé alveg hörmung og upp í það að vera þokkaleg,“ segir Sigurgeir. /MÞÞ Kal nú í vor var með meira móti, það næstmesta á þessari öld, næst á eftir Mynd / Bragi Óskarsson Næstmesta kalið á þessari öld Kjarnfóðrið hækkar í verði 1. júlí síðastliðinn hækkaði verð á öllu kjarnfóðri hjá Líflandi um 4%. Um er að ræða fyrstu verð- hækkun í rúm þrjú ár, en frá því í febrúar 2013 hefur kjarnfóð- urverð hjá Líflandi að meðaltali lækkað um 25%, segir í fréttatil- kynningu frá fyrirtækinu. Hækkunin nú kemur til vegna talsverðra sviptinga á hrávörumarkaði, en sojamjöl hefur á síðustu mánuðum hækkað mjög í verði sem og önnur hráefni að mismiklu leyti. Hagstæð gengisþróun hefur hjálpað til og gert það að verkum að hægt hefur verið að fresta verðhækkunum til þessa, segja forsvarsmenn Líflands. Mikil hagræðing innan mjólk- uriðnaðarins og fækkun kúabúa á síðustu árum og áratugum hefur leitt til þess að mjólkurverð á Íslandi hefur lækkað að raunvirði síðustu ár. Árangurinn er ekki síst að þakka fækkun mjólkurbúa og hagkvæmari rekstri. Þetta kemur fram í skýrslu sem Samtök afurða- stöðva í mjólkuriðnaði (SAM) hafa unnið um hagræðingaraðgerðir mjólkuriðnaðarins á síðustu árum og árangur þeirra. Árið 1990 voru 17 mjólkurvinnsl- ur í landinu en þær eru nú aðeins fimm talsins. Sala og afgreiðsla mjólkurvara og dreifing var á 18 stöðum um land allt árið 1990. Í dag er sala og afgreiðsla á tveimur stöð- um og dreifing mjólkurvara á fimm starfsstöðvum. Með breytingunum hefur orðið þriðjungs fækkun starfs- fólks. Í skýrslu SAM segir að hag- ræðingin hafi á margan hátt reynst erfið og sársaukafull en hafi skilað miklum kostnaðarlækkunum. Hagræðing hefur skilað þremur milljörðum króna á ári Í skýrslunni kemur fram að hagræðingaraðgerðir mjólkur- iðnaðarins hafi leitt af sér þriggja milljarða króna sparnað á ársgrundvelli. Einum milljarði hafi verið skilað til bænda í formi hærra afurðaverðs en tveir milljarðar runnið til neytenda í gegnum lágt heildsöluverð mjólkurvara. Til að setja það í samhengi samsvarar það 20 krónum pr. lítra af nýmjólk og um 200 kr. pr. kg af brauðosti í formi lægra verðs til neytenda. Raunverð lægra árið 2013 en 2003 Í skýrslu sem Hagfræðistofnun HÍ gaf út fyrir ári síðan sagði að raunverð á nýmjólk, rjóma, skyri, jógúrt, smjöri og osti hafi verið lægra árið 2013 en 2003. Lágmarksverð til bænda hefur jafnframt hækkað umfram almennt verðlag síðan 2003. Bæði neytendur og bændur hafa því haft ávinning af núverandi fyrirkomulagi. Opinber verðlagning hefur skilað ávinningi Opinber verðlagning er á nokkrum mjólkurvörum, þ.e. mjólk, undanrennu, smjöri, rjóma og brauðosti. Verðlagsnefnd búvöru kemur saman og ákveður heildsöluverð á þessum vöruflokkum hverju sinni. Við ákvörðun sína horfir hún að mestu til tveggja þátta; verðlagsgrundvallar kúabús og samantekt kostnaðar við vinnslu og dreifingu mjólkur. Þegar rýnt er í þær hækkanir sem verðlagsnefnd hefur ráðist í á síðustu árum sést að þeim er haldið í eins miklu hófi og hægt er, miðað við almenna hækkun vísitölu og ekki síst launahækkanir. Með fyrirkomulaginu um opinbera verðlagningu er tryggt að allar verslanir fá mjólkina á sama verði inn á lager hjá sér hvort sem sú verslun er staðsett í Reykjavík eða á Húsavík. Bændur um allt land borga sama flutningskostnað, óháð búsetu. Hlutverk nefndarinnar hefur verið að tryggja hagsmuni allra í virðiskeðjunni frá bónda til neytenda. Síðasta verðhækkun var 1. júlí sl. þegar heildsöluverð hækkaði um 2,5%. Verðbreyting á síðasta ári var gerð 1. ágúst þegar heildsöluverð á mjólk hækkaði um 3,58% og smjörverð um 11,6%. Verðbreytingar á mjólk hafa ekki haldið í við þróun neysluverðsvísitölu á síðustu árum. Litlar verðbreytingar á mjólkurvörum stuðla að lægri vísitölu en ella. Verðlag mjólkurvara hefur þannig bein áhrif á vísitölu neysluverðs og þar með á hag almennings í gegnum verðtryggingu lána og annarra fjárskuldbindinga. Markmið laganna hafa náðst Í niðurstöðu skýrslu SAM segir að sá árangur sem hafi náðst á liðnum áratug í lækkun mjólkurverðs sé umtalsverður. Þeim markmiðum, sem sett voru með löggjöf Alþingis árið 2004 þegar afurðastöðvum var gert mögulegt að hafa með sér samvinnu, hafi náðst. Breytingin á búvörulögunum hafði í för með sér ákvæði sem heimiluðu samstarf, sérhæfingu og verkaskiptingu með tilheyrandi sparnaði og kostnaðarlækkunum í rekstri. Samanlagður árangur sparnaðar- og hagræðingaraðgerða síðasta áratugs hefur numið um 3.000 milljónum króna á ársgrunni. Skipting milli neytenda og bænda er í hlutföllunum 2/3 til neytenda og 1/3 til bænda að mati SAM. /TB Skipulagsbreytingar í mjólkuriðnaði, fækkun og stækkun kúabúa hafa skilað lægra mjólkurverði til neytenda: Mjólk og mjólkurvörur hafa lækkað að raunvirði á síðustu árum Breyting á heildsöluverði (án vsk) helstu mjólkurvara sem verðlagðar eru af verðlagsnefnd búvöru í samanburði við launavísitölu og vísitölu neysluverðs á tímabilinu janúar 2003 til október 2014. Vísitöluhækkanir á tímabilinu eru umtalsvert meiri en verðbreytingar á mjólkurvörunum sem um ræðir. janúar 2013 = 0. Heimild: SAM Nýjar kartöflur komnar í verslanir Fréttir berast af nýjum kartöflum í sumum búðum. „Ég kíkti undir nokkur grös í gær og ekki annað að sjá en að uppskeran verði mjög góð í ár,“ segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi í Þykkvabæ. „Bændur í Hornafirði og bænd- ur með upphitaða garða á Flúðum eru yfirleitt aðeins á undan okkur og nýjar kartöflur því væntanlegar í verslanir. Ég geri aftur á móti fast- lega ráð fyrir að við förum að taka upp í næstu viku hér í Þykkvabæ. Miðað við árstíma eru kart- öflurnar undir grösunum vel á veg komnar enda tíðarfarið búið að vera frábært fyrir okkur og varla hægt að biðja um það betra,“ segir Sigurbjartur bóndi. /VH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.