Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 8

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Fréttir Ferðaþjónustan og landbún- aðurinn hafa tekið höndum saman og sett af stað leik sem fagnar sum- arilminum í sínum ólíku mynd- um. Auglýst er eftir myndum sem fanga sumarstemninguna og lýsa samspili ferðaþjónustu og land- búnaðar. Myndir munu birtast á sumarilm- ur.is og í hverri viku verður sú mynd valin sem best þykir fanga anda sum- arsins í sveitum landsins. Sá sem á mynd vikunnar fær glæsileg verð- laun. Á meðal vinninga eru gisting og afþreying innanlands og alls kyns upplifun tengd mat. Vinningshafar verða kynntir á Rás 2 og þeir fengn- ir til að segja frá sögunni á bak við myndina. Sumarilmur er samstarfsverkefni samtaka ferðaþjónustunnar, samtaka bænda og fyrirtækja í landbúnaði 2016. Í verkefninu er sjónum beint að þeirri fjölbreytilegu grósku sem ein- kennir landbúnað og ferðaþjónustu. Ferðaþjónusta hefur á skömmum tíma orðið einn mikilvægasti atvinnuvegur þjóðarinnar. Vöxtur hennar hefur skipt sköpum fyrir bættan hag þjóðarbúsins og aukinn kaupmátt almennings. 1,7 milljónir ferðamanna þurfa mikið að borða Um 1,7 milljónir ferðamanna munu sækja Ísland heim í ár. Gjaldeyristekjur vegna þeirra eru áætlaðar allt að 1,5 milljarðar króna á dag. Ekki er síður mikilvægt að tekjur myndast víða um land þar sem aðrir möguleikar eru takmarkaðir. Í ár er neysla erlendra ferðamanna á innlendri matvöru talin verða um 22 tonn á dag. Þessi viðbót stækkar innlendan markað og eykur tekjur af innlendum landbúnaði. Neysla á innlendri matvöru, kjöti, fiski og grænmeti er órjúfanlegur hluti af upplifun ferðamanna og þeim gæðum sem Ísland hefur fram að færa. Landbúnaður skapar því hluta af því virði sem ferðaþjónustan byggir á. Bændur bjóða fjölbreytta afþreyingu Ferðaþjónusta bænda býður 180 gististaði, sveitahótel, bændagistingu og bústaði víða um land sem gefa ferðamönnum kost á nálægð við búskap og húsdýr sem mörgum er framandi en um leið mjög áhugaverð. Bændur bjóða ferðafólki margs konar afþreyingu sem hundruð þúsunda nýta sér og má nefna hestaferðir og aðgang að veiði auk sölu á ýmiss konar heimagerðum varningi og sveitakrásum. Bændur eru vörslumenn landsins og sinna ræktun og uppgræðslu. Það er öryggisatriði fyrir ferðamenn, ekki síst á veturna, að búseta sé um landið allt. Sú mikla þjónusta sem bændur veita ferðamönnum um sveitir landsins byggir á þeirri kjölfestu sem liggur í atvinnustarfsemi landbúnaðarins. Nýjar forsendur eru að skapast ótrúlega víða fyrir atvinnu í sveitum landsins, nýsköpun og þróun í vöru og þjónustuframboði svo og eftirsóttri upplifun fyrir ferðafólk jafnt sem landsmenn alla. Sjálfbærni, staðbundin sérstaða og sterk tenging við náttúru, heilsu og hollustu eru mikilvægir áhersluþættir sem ferðaþjónusta og landbúnaður hafa sameiginlega hagsmuni af að rækta og efla í gagnkvæmu samstarfi, segir í tilkynningu frá aðstandendum Sumarilms. Borið hefur á dýralyfjaskorti í landinu: Skortur á sýklalyfjum og bóluefni fyrir sauðfé Í júnímánuði síðastliðnum var birt skýrsla sem fjallaði um stöðu nautakjötsframleiðslu á Íslandi og framtíðarmöguleika henn- ar. Í kaflanum um leiðir til að auka framleiðslu ungnautakjöts við núverandi aðstæður er lögð áhersla á að bæta framlegð af ungnautakjötsframleiðslu – en þar er talið vera mikið svigrúm. Höfundur skýrslunnar er Þóroddur Sveinsson, lektor í auð- lindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ), en hún er unnin fyrir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið samkvæmt samningi við LbhÍ og með tilliti til nýsamþykktra laga- breytinga og reglugerðarsetningar vegna innflutnings á erfðaefni holdanauta. Í lokaorðum skýrslunnar er þess getið að ný lög sem heimila innflutning á erfðaefni holdanauta muni ekki setja mark sitt á nauta- kjötsframleiðsluna fyrr en eftir um sex til átta ár. Í skýrslunni sé hins vegar lögð áhersla á lýsingu á núver- andi stöðu og þeim möguleikum sem séu fyrir hendi. Meiri arðsemi með bættum eldisaðferðum Í ágripi kemur fram að niðurstaða skýrslunnar sé að bændur í eða utan við mjólkurframleiðslu geti náð mun meiri arðsemi í ungnauta- kjötsframleiðslunni með bættum eldisaðferðum. Grunnurinn að því sé eftirfarandi: • „Markviss nákvæmnisfóðrun út eldistímann sem byggir á ódýrum hágæða heyjum og kjarnfóðri sem passar við þarfir gripanna. Á þessu er mikill skortur hjá mörg- um bændum. • Góðum aðbúnaði sem fylgir að lágmarki núverandi reglugerð um velferð nautgripa (Nr. 1065/2014) og góðu eftirliti með ástandi og heilbrigði þeirra. Þetta er þáttur sem enn má bæta verulega hjá mörgum bændum. • Aukin alhliða fagmennska í kjöt- eldi, við fóðuröflun og í rekstri. • Auka fallþunga ungnauta úr 230 kg (núverandi meðalþungi) í 300 kg að því gefnu að fylgt sé ofan- greindum ráð-leggingum. Menntun nauðsynleg Nauðsynlegt er að bændur fái leið- sögn og kennslu í öllum þessum þáttum í þeim tilgangi að bæta framlegð nautakjötsframleiðslunnar á Íslandi og til að geta mætt betur aukinni samkeppni að utan. Nú er nýlokið stórri eldistilraun hjá LbhÍ sem hafði það markmið að mæla fóðurþörf og vaxtarhraðagetu (kg/ dag) íslenskra nauta. Þessi tilraun, ásamt eldri tilraunum LbhÍ, leggur grunninn að ítarlegum leiðarvísi og nýju kennsluefni í kjöteldi fyrir íslenska bændur,“ segir í ágripi skýrslunnar. Skýrslan er aðgengileg á vef Landbúnaðarháskóla Íslands: http:// www.lbhi.is/allar-frettir. /smh Ný skýrsla um stöðu nautakjötsframleiðslunnar á Íslandi og framtíðarmöguleika: Auka þarf arðsemi með bætt um eldis aðferðum og auknum fallþunga Samstarfsverkefni ferðaþjónustu og landbúnaðar: Sumarilmur Skortur á tilteknum dýralyfj- um hefur verið í landinu að undanförnu. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að ástandið hafi sérstaklega verið slæmt varð- andi sýklalyf, en einnig hefur skort bóluefnið Tribovax, en það er sauðfjárbóluefni. Að sögn Kristínar Silju Guðlaugsdóttur, fagsviðsstjóra á sviði dýraheilbrigðis- og velferðar hjá Matvælastofnun, er þetta bólu- efni fjölþætt sem fullorðnar ær eru bólusettar með fyrir sauðburð til að verja lömbin fyrir lambablóðsótt. Bóluefnið virki einnig sem vörn gegn garnapest, bráðapest og stíf- krampa. Því kom skorturinn sér illa í sauðburðinum í vor. Kristín segir að henni sé ekki kunnugt um að skorturinn hafi valdið bændum búsifjum og bendir á að í mörgum tilfellum hafi verið hægt að nota önnur lyf í staðinn fyrir þau sem skort hefur. „Þetta er ekki eina bóluefnið sem til er á Íslandi gegn þessum sjúkdómum. Má nefna að bóluefni gegn lambablóðsótt, garnapest og bráðapest er framleitt á Keldum,“ segir hún og vísar að öðru leyti á Lyfjastofnun varðandi birgðastöðu lyfjanna. Jóhann M. Lenharðsson, sviðstjóri skráningarsviðs Lyfja- stofnunar, segir að það sé rétt að taka fram að Lyfjastofnun skráir ekki dýralyf að eigin frumkvæði. „Umsóknir um markaðsleyfi verða að koma frá viðkomandi lyfjafyrirtæki. Lyfjastofnun beitir sér hins vegar fyrir því að fyrirtækin sæki um íslenskt markaðsleyfi fyrir þau dýralyf sem þörf er fyrir hér á landi. Það hefur gengið eftir í mörgum tilvikum en leysir ekki úr öllum skorti sem upp kemur. Mikilvægt að upplýsa um skortinn Lyfjastofnun leggur mikla áherslu á að markaðsleyfishafar og umboðsmenn upplýsi viðskiptavini sína um skort og skýringar á skorti. Biðlistar á vefsíðum lyfjaheildsala eru uppfærðir daglega og þar eru upplýsingar um hvenær lyf er væntanlegt, ef slíkar upplýsingar liggja fyrir. Almennt má segja að skortur á ýmsum skráðum sýklalyfjum nú stafi af vandamálum sem komu upp í verksmiðju þar sem virk innihaldsefni eru framleidd. Þetta hafði þær afleiðingar að skortur á lyfinu sjálfu kom upp í mörgum löndum. Misjafnt er milli landa til hvaða ráðstafana þurfti að grípa. Lyfjastofnun, rétt eins og systurstofnanir á hinum Norðurlöndunum til dæmis, hefur veitt undanþágur til sölu sumra lyfja, að fenginni staðfestingu á gæðum þeirra. Það hefur leyst hluta vandans. Um dýralyf rétt eins og mannalyf gildir að þegar skráð lyf fást ekki kemur til kasta svokallaðs undanþágulyfjakerfis. Það hefur verið virkjað til að mæta skorti á sumum skráðum sýklalyfjum á þessu ári, t.d. Engemycin og Penovet. Í öðrum tilvikum virðist sem skortur á tilteknu bóluefni handa sauðfé hafi verið svo víðtækur að ekki hafi tekist að leysa hann með undanþágukerfinu. Samkvæmt upplýsingum Lyfjastofnunar hafa ýmis önnur lönd í Evrópu glímt við svipaða stöðu,“ segir Jóhann. /smh Sveitamarkaður og gleði Laugardaginn 16. júlí verð- ur Kjósin opnuð fyrir gestum og gangandi undir kjörorðinu „Kátt í Kjós“. Er þetta í tíunda sinn sem efnt er til opins dags í sveitarfélaginu. Kátt í Kjós hefur tekist með miklum ágætum og fleiri þúsund manns hafa sótt Kjósina heim á þessum árum. Kátt í Kjós er dagur þar sem íbúar, fyrirtæki og félagasamtök í Kjósinni taka höndum saman og bjóða öllum sem vettlingi geta valdið í heimsókn til að fá að sjá og upplifa allt það sem svæðið hefur upp á að bjóða. Í ár verður hinn vinsæli sveita- markaður utandyra við Félagsgarð og þar verður til boða vörur úr sveitinni, matvara og handverk. Inni í Félagsgarði verður aftur á móti kaffihúsastemning að hætti kvenfélagsins og þar geta gestir setið í rólegheitum, notið veiting- anna og spjallað. Úti á velli verður ýmislegt skemmtilegt fyrir börnin. Fjölmargir áhugaverðir staðir verða opnir og bjóða gesti vel- komna. Allar frekari upplýsingar um viðburði Kátt í Kjós má finna á vefsíðunni www.kjos.is Kjötvinnsla í Langholtskoti. Mynd / smh „Sumarilm“. Frá vinstri: Steinþór Skúlason frá SS, Grímur Sæmundsen og Helga Árnadóttir frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Sævar Skafta- son frá Ferðaþjónustu bænda.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.