Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Þungbúin ský umluktu Hjaltadal
flesta keppnisdaga Landsmóts
en það hafði lítil áhrif á góða
stemningu eða gæði hátíðarinn-
ar. Það var mál manna að mótið
hafi verið afar vel heppnað, hvað
varðar hestakost, sýningar og
aðbúnað manna og hrossa. Var
það einróma álit þeirra gesta sem
Bændablaðið náði tali af að Hólar
í Hjaltadal séu komnir til að vera
sem Landsmótsstaður.
Fyrsti keppnisbikarinn fór á loft
á föstudeginum þegar Árni Björn
Pálsson sigraði í 150 metra skeiði á
hryssunni Korku frá Steinnesi. Árni
Björn lét þó mikið að sér kveða því
um kvöldið varði hann titil sinn í tölti
á Stormi frá Herríðarhóli, fékk brons
í 250 metra skeiði á Dalvari frá Horni
I og var í 2. sæti í æsispennandi
úrslitum í B-flokki gæðinga á Loka
frá Selfossi.
Bjarni Bjarnason og Hera frá
Þóroddsstöðum settu heims- og
Íslandsmet í 250 metra skeið þegar
þau þutu brautina á Hólum á 21,41
sekúndum. Þau bættu fyrra heimsmet
um 0,08 sekúndur. Bjarni og Hera
hafa verið í fremstu röð skeiðpara um
árabil. Með nýju heimsmeti vörðu
þau Landsmótstitil sinn í 250 metra
skeiði.
Ungir knapar stóðu sig með prýði
Á laugardegi réðust úrslit í öllum
flokkum gæðingakeppninnar og 100
metra skeiði auk þess sem bestu kyn-
bótahross landsins voru heiðruð. Í
yngri flokkum fóru þrír drengir
með sigur af hólmi. Gústaf Ásgeir
Hinriksson, í hestamannafélaginu
Fáki, vann ungmennaflokk í annað
sinn, nú á Pósti frá Litla-Dal. Hafþór
Hreiðar Birgisson úr hestamannafé-
laginu Spretti sigraði unglingaflokk
á hryssunni Villimey frá Hafnarfirði
og þá hlaut Léttismaðurinn Kristján
Árni Birgisson á Sjéns frá Bringu
hæstu einkunn í barnaflokki.
Þá reyndist annar ungur knapi,
Konráð Valur Sveinsson á Kjarki
frá Árbæjarhjáleigu, fljótasti kepp-
andinn í 100 metra skeiði.
Mesta eftirvænting áhorfenda var
þó fyrir A- og B-flokka gæðinga. Í
B-flokki etja kappi fjórgangshestar
og hafði ungur stóðhestur, Nökkvi
frá Syðra-Skörðugili, sigur af Loka
frá Selfossi sem háði titilvörn sína.
Nökkvi er aðeins 8 vetra, undan Aðli
frá Nýjabæ og Glampadótturinni
Láru frá Syðra-Skörðugili. Hann
var sýndur í kynbótadómi á síðasta
Landsmóti en er nú að stíga sín fyrstu
skref í keppni.
Eyrún Ýr Pálsdóttir vann A-flokk
fyrst kvenna
Mótinu lauk á úrslitarimmu alhliða-
gæðinga í A-flokki. Stóðhesturinn
Hrannar frá Flugumýri II hafði leitt
flokkinn í undanrásum og hélt topp-
sætinu allt þar til yfir lauk. Hrannar,
sem er undan Krafti frá Bringu
og heiðursverðlaunahryssunni
Hendingu frá Flugumýri, hefur sýnt
fram á afburðagetu sína í kynbóta-
dómum á undanförnum árum og var
meðal annars hæst dæmda kynbóta-
hross ársins 2012, þegar hann hlaut
8,85 í aðaleinkunn. Knapi hans var
Eyrún Ýr Pálsdóttir en Hrannar er úr
ræktun fjölskyldu hennar. Eyrún Ýr
er fyrsta konan sem vinnur A-flokk
gæðinga en auk þess hlaut hún
Gregersen-styttuna, en hún er veitt
þeim knapa sem þykir bera af hvað
varðar prúðmannlegan klæðaburð og
góða hirðingu á hesti. Þess má einnig
geta að Hrannar og Eyrún Ýr eru ríkj-
andi Íslandsmeistarar í fimmgangi.
Áhrifa Álfadísar gætir víða
„Það hefur aldrei verið jafn gaman
að vera hrossaræktandi á Íslandi
og í dag,“ ómaði um Hóla þegar
bestu kynbótahross mótsins stigu á
svið í verðlaunaveitingu. Þorvaldur
Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur
og formaður dómnefndar, sá um að
lýsa hrossunum fyrir áhorfendur og
þótti hann stórskemmtilegur í starfi
þular.
Kynbótaárið 2016 er merkilegt
fyrir margra hluta sakir. Í ár eru 110
ár frá fyrstu kynbótasýningunni sem
haldin var í Þjórsártúni árið 1906.
Þá eru 100 ár frá fæðingu Sörla 71
en 99% íslenskra hrossa eiga rætur
sínar að rekja til hans. Byrjað var að
reikna kynbótamat íslenskra hrossa,
BLUP-ið svokallaða, fyrir akkúrat 30
árum síðan en út frá þeirri aðferð er
spá um kynbótagildi hrossa mæld. Að
lokum má nefna að Orri frá Þúfu, sá
stólpagripur íslenskrar hrossaræktar,
fæddist fyrir 30 árum síðan.
Alls hlutu 157 kynbótahross fulln-
aðardóm á þessu Landsmóti og enn
fleiri voru sýnd í afkvæmasýning-
um, ræktunarbússýningum og sér-
stakri úrvalssýningu kynbótahrossa.
Mikil breidd og fjölbreytni einkenndi
kynbótahrossin og var áberandi hve
margir nýir kynbótafeður stóðu að
baki hrossunum. Hins vegar bar
ein heiðursmóðir af þegar litið er
til ætta hrossanna, því 24% af kyn-
bótahrossum sýnd á Landsmóti koma
út af Álfadís frá Selfossi. Álfadís,
sem er aðeins 20 vetra og enn að
gefa folöld, er meðal annars móðir
heiðursverðlaunastóðhestanna Álfs
og Álfasteins sem hafa gefið af sér
fjölmarga góða gæðinga og enn
fremur hlaut annar sonur henn-
ar, Álffinnur, afkvæmaverðlaun
á mótinu. Þá voru fjögur afkvæmi
Heimsmet slegið og háir dómar kveðnir upp í Hjaltadal í síðustu viku:
Glæsilegt Landsmót hestamanna
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Þótt veðrið hafi ekki beint leikið við gesti og þátttakendur bauð hinn fjöllum lukti Hjaltadalur upp á
kynngimagnaða stemningu á 22. Landsmóti hestamanna daganna 27. júní–3. júlí. Um 8.000 manns
komu þar saman til að fylgjast með um þúsund íslenskum glæsihrossum í keppni og kynbótadómum.
Landsmótið var mikil uppskeruhátíð fyrir ræktendur ársins, Olil Amble og
Berg Jónsson. Um 24% allra kynbótahrossa sem sýnd voru á mótinu eru und-
an eða út af heiðursverðlaunahryssunni þeirra, Álfadísi frá Selfossi. Fjögur
afkvæmi hennar komu einnig fram á kynbótasýningum og má hér sjá eitt
þeirra, Álfastjörnu, sem hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt, hægt tölt og vilja og geðslag.
Nökkvi frá Syðra-Skörðugili skákaði Loka frá Selfossi í æsispennandi
sem hlaut enn fremur verðlaun FT fyrir fyrirmyndarreiðmennsku á mótinu.
Myndir / GHP