Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 12

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Þungbúin ský umluktu Hjaltadal flesta keppnisdaga Landsmóts en það hafði lítil áhrif á góða stemningu eða gæði hátíðarinn- ar. Það var mál manna að mótið hafi verið afar vel heppnað, hvað varðar hestakost, sýningar og aðbúnað manna og hrossa. Var það einróma álit þeirra gesta sem Bændablaðið náði tali af að Hólar í Hjaltadal séu komnir til að vera sem Landsmótsstaður. Fyrsti keppnisbikarinn fór á loft á föstudeginum þegar Árni Björn Pálsson sigraði í 150 metra skeiði á hryssunni Korku frá Steinnesi. Árni Björn lét þó mikið að sér kveða því um kvöldið varði hann titil sinn í tölti á Stormi frá Herríðarhóli, fékk brons í 250 metra skeiði á Dalvari frá Horni I og var í 2. sæti í æsispennandi úrslitum í B-flokki gæðinga á Loka frá Selfossi. Bjarni Bjarnason og Hera frá Þóroddsstöðum settu heims- og Íslandsmet í 250 metra skeið þegar þau þutu brautina á Hólum á 21,41 sekúndum. Þau bættu fyrra heimsmet um 0,08 sekúndur. Bjarni og Hera hafa verið í fremstu röð skeiðpara um árabil. Með nýju heimsmeti vörðu þau Landsmótstitil sinn í 250 metra skeiði. Ungir knapar stóðu sig með prýði Á laugardegi réðust úrslit í öllum flokkum gæðingakeppninnar og 100 metra skeiði auk þess sem bestu kyn- bótahross landsins voru heiðruð. Í yngri flokkum fóru þrír drengir með sigur af hólmi. Gústaf Ásgeir Hinriksson, í hestamannafélaginu Fáki, vann ungmennaflokk í annað sinn, nú á Pósti frá Litla-Dal. Hafþór Hreiðar Birgisson úr hestamannafé- laginu Spretti sigraði unglingaflokk á hryssunni Villimey frá Hafnarfirði og þá hlaut Léttismaðurinn Kristján Árni Birgisson á Sjéns frá Bringu hæstu einkunn í barnaflokki. Þá reyndist annar ungur knapi, Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu, fljótasti kepp- andinn í 100 metra skeiði. Mesta eftirvænting áhorfenda var þó fyrir A- og B-flokka gæðinga. Í B-flokki etja kappi fjórgangshestar og hafði ungur stóðhestur, Nökkvi frá Syðra-Skörðugili, sigur af Loka frá Selfossi sem háði titilvörn sína. Nökkvi er aðeins 8 vetra, undan Aðli frá Nýjabæ og Glampadótturinni Láru frá Syðra-Skörðugili. Hann var sýndur í kynbótadómi á síðasta Landsmóti en er nú að stíga sín fyrstu skref í keppni. Eyrún Ýr Pálsdóttir vann A-flokk fyrst kvenna Mótinu lauk á úrslitarimmu alhliða- gæðinga í A-flokki. Stóðhesturinn Hrannar frá Flugumýri II hafði leitt flokkinn í undanrásum og hélt topp- sætinu allt þar til yfir lauk. Hrannar, sem er undan Krafti frá Bringu og heiðursverðlaunahryssunni Hendingu frá Flugumýri, hefur sýnt fram á afburðagetu sína í kynbóta- dómum á undanförnum árum og var meðal annars hæst dæmda kynbóta- hross ársins 2012, þegar hann hlaut 8,85 í aðaleinkunn. Knapi hans var Eyrún Ýr Pálsdóttir en Hrannar er úr ræktun fjölskyldu hennar. Eyrún Ýr er fyrsta konan sem vinnur A-flokk gæðinga en auk þess hlaut hún Gregersen-styttuna, en hún er veitt þeim knapa sem þykir bera af hvað varðar prúðmannlegan klæðaburð og góða hirðingu á hesti. Þess má einnig geta að Hrannar og Eyrún Ýr eru ríkj- andi Íslandsmeistarar í fimmgangi. Áhrifa Álfadísar gætir víða „Það hefur aldrei verið jafn gaman að vera hrossaræktandi á Íslandi og í dag,“ ómaði um Hóla þegar bestu kynbótahross mótsins stigu á svið í verðlaunaveitingu. Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur og formaður dómnefndar, sá um að lýsa hrossunum fyrir áhorfendur og þótti hann stórskemmtilegur í starfi þular. Kynbótaárið 2016 er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Í ár eru 110 ár frá fyrstu kynbótasýningunni sem haldin var í Þjórsártúni árið 1906. Þá eru 100 ár frá fæðingu Sörla 71 en 99% íslenskra hrossa eiga rætur sínar að rekja til hans. Byrjað var að reikna kynbótamat íslenskra hrossa, BLUP-ið svokallaða, fyrir akkúrat 30 árum síðan en út frá þeirri aðferð er spá um kynbótagildi hrossa mæld. Að lokum má nefna að Orri frá Þúfu, sá stólpagripur íslenskrar hrossaræktar, fæddist fyrir 30 árum síðan. Alls hlutu 157 kynbótahross fulln- aðardóm á þessu Landsmóti og enn fleiri voru sýnd í afkvæmasýning- um, ræktunarbússýningum og sér- stakri úrvalssýningu kynbótahrossa. Mikil breidd og fjölbreytni einkenndi kynbótahrossin og var áberandi hve margir nýir kynbótafeður stóðu að baki hrossunum. Hins vegar bar ein heiðursmóðir af þegar litið er til ætta hrossanna, því 24% af kyn- bótahrossum sýnd á Landsmóti koma út af Álfadís frá Selfossi. Álfadís, sem er aðeins 20 vetra og enn að gefa folöld, er meðal annars móðir heiðursverðlaunastóðhestanna Álfs og Álfasteins sem hafa gefið af sér fjölmarga góða gæðinga og enn fremur hlaut annar sonur henn- ar, Álffinnur, afkvæmaverðlaun á mótinu. Þá voru fjögur afkvæmi Heimsmet slegið og háir dómar kveðnir upp í Hjaltadal í síðustu viku: Glæsilegt Landsmót hestamanna HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com Þótt veðrið hafi ekki beint leikið við gesti og þátttakendur bauð hinn fjöllum lukti Hjaltadalur upp á kynngimagnaða stemningu á 22. Landsmóti hestamanna daganna 27. júní–3. júlí. Um 8.000 manns komu þar saman til að fylgjast með um þúsund íslenskum glæsihrossum í keppni og kynbótadómum. Landsmótið var mikil uppskeruhátíð fyrir ræktendur ársins, Olil Amble og Berg Jónsson. Um 24% allra kynbótahrossa sem sýnd voru á mótinu eru und- an eða út af heiðursverðlaunahryssunni þeirra, Álfadísi frá Selfossi. Fjögur afkvæmi hennar komu einnig fram á kynbótasýningum og má hér sjá eitt þeirra, Álfastjörnu, sem hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt, hægt tölt og vilja og geðslag. Nökkvi frá Syðra-Skörðugili skákaði Loka frá Selfossi í æsispennandi sem hlaut enn fremur verðlaun FT fyrir fyrirmyndarreiðmennsku á mótinu. Myndir / GHP

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.