Bændablaðið - 07.07.2016, Side 13

Bændablaðið - 07.07.2016, Side 13
13Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is Álfadísar sýnd í kybótasýningu á mótinu, þau Álfarinn, Álfastjarna, Álfgrímur og Huldumær. Ölnir frá Akranesi hlaut hæstu einkunn mótsins Hæstu aðaleinkunn mótsins hlaut Ölnir frá Akranesi, en hann var sýndur í elsta flokki stóðhesta. Ölnir hlaut 8,82 í aðaleinkunn, 8,43 fyrir sköpulag og 9,09 fyrir kosti sem var hæsta hæfileikaeinkunn á mótinu. Þota frá Prestsbæ var hæst dæmda hryssa mótsins, en hún hlaut 8,81 í aðaleinkunn, 8,61 fyrir sköpulag og 8,94 fyrir kosti og stóð efst í elsta flokki hryssna. Í flokki 6 vetra stóðhesta stóð Organisti frá Horni I hæstur með 8,72 í aðaleinkunn, 8,39 fyrir sköpulag og 8,94 fyrir kosti. Jörð frá Koltursey var hæst dæmda 6 vetra hryssan með 8,67 í aðaleinkunn, 8,51 fyrir sköpulag og 8,78 fyrir kosti. Forkur frá Breiðabólsstað stóð efstur 5 vetra stóðhesta með 8,67 í aðaleinkunn, 8,46 fyrir sköpulag og 8,80 fyrir kosti. Í 5 vetra flokki hryssna var Viðja frá Hvolsvelli efst með 8,45 í aðaleinkunn, 8,29 fyrir sköpulag og 8,56 fyrir kosti. Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk var hæst dæmdur 4 vetra stóðhesta með 8,49 í aðaleinkunn, 8,17 fyrir sköpulag og 8,71 fyrir kosti. Stefna frá Torfunesi var hæst 4 vetra hryssna en hún hlaut 8,37 í aðaleinkunn, 8,33 fyrir sköpulag og 8,40 fyrir kosti. Einkunnin 10 var kveðin upp sex sinnum á mótinu. Ljósvaki frá Valstrýtu hlaut 10 fyrir tölt og stökk. Nútíð frá Leysingjarstöðum II hlaut 10 fyrir hægt stökk. Eðall frá Torfunesi, Roði frá Lyngholti og Fröken frá Bessastöðum hlutu öll fullt hús fyrir skeið. Sjö hlutu afkvæmaverðlaun Sjö stóðhestar hlutu afkvæma- verðlaun á mótinu. Þeir Kjerúlf frá Kollaleiru, Seiður frá Flugumýri II, Grunur frá Oddhóli, Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum og Spuni frá Vesturkoti hlutu 1. verðlaun fyrir afkvæmi en sá síðastnefndi stóð þar í efsta sæti. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu og Arður frá Brautarholti hlutu síðan heiðursverð- laun fyrir afkvæmi en það kom í hlut Arðs að fá Sleipnisbikarinn. Áhorfendur fögnuðu gríðarlega þegar ljóst var að Hrannar frá Flugumýri II og Eyrún Ýr Pálsdóttur höfðu sigrað Bjarni Bjarnason og Hera frá Þóroddsstöðum slóu heims- og Íslandsmet í

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.