Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 15

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 – Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 760 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 Bordýpt 15 sm HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar Utanborðsmótorarnir frá Yamaha eru þekktir fyrir einstök gæði og endingu. Þeir koma í mörgum útfærslum, tvígengis og fjórgengis, allt frá 2,5 upp í 350 hestöfl. Allir eru þeir hlaðnir bestu fáanlegu Yamaha tækni. Yamaha á örugglega rétta mótorinn fyrir þig. Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900 www.yamaha.is EXPLORE WITHOUT LIMITS ® EXPLORE WITHOUT LIMITS ® Grizzly 700 EPS Vinnujálkurinn frá Yamaha! Þeir sem prófa, vilja ekkert annað. Ný uppfærsla með dráttarspili, LED ljósum, 26“ dekkjum. Aukin burðargeta og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott hjól enn betra. Verð frá kr. 2.320.000,- BJÓÐUM ALLA ALMENNA VERKSTÆÐISÞJÓNUSTU! Tímapantanir í síma 540 4900 volundarhus.is · Sími 864-2400 VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² www.volundarhus.is Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9m² -án gólfs TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² TILBOÐ - GARÐHÚS 4,4m² 50% afsláttur af flutningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustu- stöðvar Flytjanda. GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður Sjá fleiri GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði á heimasíðunni volundarhus.is Samstillt átak Náttúruverndarsamtaka Austurlands – NAUST Hvetja til þess að ónýtar girðingar séu fjarlægðar – Skapa hættu og eru lýti í landslaginu „Líklega er ekki meira af ónýt- um girðingum á Austurlandi en annars staðar á landinu, en engu að síður er alveg nóg af þeim,“ segir Erla Dóra Vogler, formað- ur Náttúruverndarsamtaka Austurlands – NAUST, en samtök- in hafa fengið styrk frá umhverfis- ráðuneytinu sem ætlaður er til að standa straum af hvatningarátaki í landshlutanum til að fjarlægja ónýtar girðingar. Átakinu er ætlað að beina sjónum að þeim hættum sem stafa af ónýtum girðingum sem og því lýti sem þær eru í lands- laginu. „Markmið verkefnisins er að standa sameiginlega að átaki á Austurlandi og Suðausturlandi í því skyni að fjarlægja þessar ónýtu girðingar.“ Erla Dóra segir að fimm sveitar- félög á Austurlandi hafi þegar skráð sig til samstarfs við NAUST, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað, Djúpivogur, Vopnafjörður og Seyðisfjörður. Tvö sveitarfélög í landshlutanum telja sig hafa lokið þessu verkefni fyrir skemmstu og eru af þeim sökum ekki með nú, en það eru Fljótsdalshreppur og Borgarfjarðarhreppur. Ánægð með samstöðuna „Staðan hér er þannig að sums staðar eru girðingar sem rétt hanga uppi og eða liggja niðri á milli mis- heillegra staura, en annars staðar er varla neitt sjáanlegt nema vírar sem rétt standa upp úr gróðrinum og menn taka ekki eftir fyrr en þegar þeir reyna að átta sig á um hvað var hnotið. Við erum mjög ánægð með þá samstöðu sem sveitarfélögin hér á Austurlandi sýna með þátttöku í átakinu. Með svo samstilltu átaki er líklegra að landeigendur finni fyrir hvatningu til að vera með og gera gangskör að því að fjarlægja ónýt- ar girðingar í sínu landi, auk þess að nýta þá aðstoð sem í boði er hjá sveitarfélögunum,“ segir Erla Dóra. „Þetta verkefni hefur talsverða þýðingu, það er mikið lýti af ónýtum og hálfföllnum girðingum í íslenskri náttúru, auk þess sem girðingarnar eru hættulegar hvort heldur sem er mönnum, búfénaði eða hreindýrum,“ segir hún. Aðstoð sem sveitarfélögin veita Sveitarfélögunum sem þátt taka er í sjálfsvald sett hvernig þau haga átakinu á sínu svæði og verður fljót- lega kynnt hve mikla aðstoð hvert sveitarfélag býður upp á. Erla Dóra nefnir sem dæmi að Vopnafjarðarhreppur sé tilbú- inn til að aðstoða við að fjarlægja ónýtar girðingar hvort sem er með vinnuframlagi vegna niðurrifs þeirra og að fjarlægja staura og vír. Vinnan verði framkvæmd í samráði við Þjónustumiðstöð Vopnafjarðarhrepps á tímabilinu frá vori og fram á haust. Móttaka efnis sé á Búðaröxl, sorp- urðunarstað Vopnfirðinga. Hún nefn- ir einnig að Fjarðabyggð taki virkan þátt í átakinu með því t.d. að bjóða bændum upp á að koma á staðinn og fjarlægja upprúllaðar netadræsur sem og aðrar girðingar. Bæjarverkstjórar hafi yfir að ráða pallbílum til að hirða girðingarnar upp. Árangurinn hreinna landslag og öruggara „Þetta er fyrst og fremst hvatn- ingarátak á kynningarformi. Árangur þessa verkefnis verður svo metinn í hreinna, fallegra og öruggara lands- lagi, bæði fyrir dýr og menn. Við væntum þess svo að samstillt átak heils landshluta auki vitundarvakn- ingu í íslensku samfélagi um það lýti sem rusl og ónýtir hlutir eins og girðingar eru í náttúrunni. Það má gjarnan dusta rykið af slagorðinu „Hreint land, fagurt land“ sem notað var fyrir nokkrum árum. Næsta vetur förum við svo yfir málið og stefnum á að veita viðurkenningar til þeirra sem látið hafa til sín taka í þessum efnum,“ segir Erla Dóra. /MÞÞ Ónýtar girðingarnar eru hættulegar hvort heldur sem er mönnum, búfén- aði eða hreindýrum. Ljósmynd / Skarphéðinn Þórisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.