Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Árið 1926 fæddist í Delí á Indlandi stúlka sem fékk nafnið Shanti Davi. Móðir hennar fór snemma að hafa áhyggjur af dóttur sinni því framkoma hennar þótti ein- kennileg. Shanti fór mikið einförum og talaði við sjálfa sig eins og hún væri umkringd fólki sem hún ein sá. Þegar Shanti var sjö ára töldu foreldrar hennar víst að hún væri ekki andlega heilbrigð. Um svip- að leyti byrjaði hún að segja for- eldrum sínum að hún hefði lifað áður og átt heima í þorpi sem hét Muttra og lýsti nákvæmlega fyrir þeim húsinu sem hún bjó í. Foreldrar Shanti voru ákaflega áhyggjufullir og fóru með telpuna til geðlæknis og hún sagði honum sömu sögu. Læknirinn spurði hana margvíslegra spurninga og komst að þeirri niðurstöðu að Shanti væri ekki geðveik. Hún hélt staðfastlega við söguna og breytti henni aldrei. Foreldrarnir voru þess aftur á móti fullvissir að dóttir þeirra væri rugluð þegar hún sagðist hafa heitið Ludgi, verið gift og átt þrjú börn. Þegar Shanti var níu ára var barið að dyrum heima hjá henni og hún fór til dyra. Ókunnugur maður stóð við dyrnar. Shanti starði stórum augum á hann og hrópaði: „Mamma, þetta er frændi mannsins míns. Hann átti heima í nágrenni við okkur í Muttra.“ Shanti hafði rétt fyrir sér því maðurinn átti heima í Muttra en var staddur í Delí til að ræða viðskipti við föður Shanti. Hann sagðist eiga frænda í Muttra sem hefði misst konu sína, Ludgi, er hún lést af barnsförum að þriðja barni þeirra hjóna. Hann bauðst til að koma með frænda sinn í heimsókn svo að þau gætu gengið úr skugga um hvort Shanti þekkti hann. Foreldrarnir tóku boði hans en öllu haldið vandlega leyndu fyrir Shanti. Um leið og hún sá mann- inn kastaði hún sér í fang hans og grét, kallaði hann manninn sinn og talaði um að loksins væri hann kominn aftur til hennar. Hún var í ákafri geðshræringu. Maðurinn, sem Shanti kall- aði eiginmann sinn, fór með for- eldrum hennar til stjórnvalda og sögðu söguna og stjórnin skipaði nefnd vísindamanna til að komast til botns í málinu. Farið var með Shanti til Muttra og þar benti hún strax á móður og bróður „mannsins síns“, þar sem þau stóðu innan um fjölda fólks, og hún ræddi við þau á mállýsku sem foreldrar hennar höfðu aldrei heyrt. Vísindamennirnir voru furðu lostnir. Þeir bundu fyrir augu hennar og settu hana upp í vagn. Shanti sagði ökumanninum hik- laust og ákveðið hvert hann ætti að aka og meðan á ferðinni stóð lýsti hún kennileitum. Þegar þau komu að þröngum stíg skipaði hún ökumanninum að stansa og sagði: „Hér átti ég heima.“ Þegar tekið var frá augum hennar sá hún gamlan mann og sagði: „Þessi maður var tengdafaðir minn.“ Gamli maðurinn hafði verið tengdafaðir Ludgi. Hún þekkti strax tvö eldri börnin en ekki það sem kostaði Ludgi lífið. Í blaðaviðtali árið1958 sagði Shanti að sér hefði tekist að aðlaga sig kringumstæðum sínum og sætta sig við tilveru sína og vinna bug á söknuði sínum og þrá eftir sínu fyrra lífi. /VH Var stelpan geggjuð? STEKKUR Norðlenska slátrar 19 þúsund fjár á Höfn: Ekki svigrúm fyrir heimamenn að taka við rekstrinum að svo stöddu Í vor gaf Norðlenska út þá yfirlýs- ingu að það hygðist hætta rekstri sláturhússins á Höfn í Hornafirði. Töluverð óvissa greip um sig meðal heimamanna, sem skoðuðu möguleikann á að taka sjálfir við rekstrinum. Í nýlegri tilkynningu frá Norðlenska kemur hins vegar fram að fallið var frá fyrri áform- um og nú hefur verið ákveðið að slátra um 19 þúsund fjár á vegum Norðlenska á Höfn á komandi sláturtíð. Um 34 þúsund fjár var slátrað á Höfn í síðustu sláturtíð. Í tilkynningunni frá Norðlenska segir að sauðfjárslátrun á vegum fyr- irtækisins verði með eilítið breyttu sniði frá því sem verið hefur undan- farin ár. „Dregið verður úr slátrun á Höfn og hún aukin á Húsavík á móti. Eru þetta viðbrögð við versnandi afkomu í sauðfjárslátrun sem kynnt var á bændafundum Norðlenska og Búsældar á vormánuðum,“ segir í tilkynningunni. Í vor sagði Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, í viðtali við Bændablaðið að slátrun á Höfn hafi verið um 50 prósent dýr- ari en slátrun í sláturhúsi félagsins á Húsavík. Áætlað er að slátrun hefjist mið- vikudaginn 21. september á Höfn og sláturtíðarlok eru áætluð föstu- daginn 4. nóvember. Á Húsavík er hins vegar áætlað að sláturtíð hefjist 1. september og að henni ljúki 28. október. Áætlað er að slátrað verði 95 þúsund fjár á Húsavík, en 19 þúsund á Höfn, eins og fyrr segir. Í tilkynningu Norðlenska kemur fram, að til að unnt sé að veita sem besta þjónustu og draga úr kostn- aði sé mikilvægt að samvinna Norðlenska og innleggjenda sé góð. Óskar Norðlenska því eftir slátur- fjárloforðum frá innleggjendum, núverandi og nýjum, sem fyrst og eigi síðar en 10. ágúst 2016. Óvissa meðal sauðfjárbænda Sigurbjörn Karlsson, sauðfjárbóndi á Smyrlabjörgum, segir að það sé nokkur óvissa meðal sauðfjárbænda á svæðinu. „Þetta hefur ekki verið útfært nákvæmlega og nú nálgast sláturtíðin, þannig að við erum orðnir nokkuð órólegir. Í sjálfu sér skiptir ekki öllu máli hvar slátrað er, aðalat- riðið er að það sé hægt að gera það á þeim tíma sem menn kjósa. Það þýðir til dæmis ekki að ætla að bíða með þetta fram í nóvember. Menn þyrftu þá að búa sig undir það og því fylgir líka einhver aukakostnaður. Mér finnst að það þurfti að liggja mjög fljótlega fyrir af hálfu Norðlenska hvernig staðið verður nákvæmlega að hlutunum,“ segir Sigurbjörn. Erum ósáttir en niðurstaðan þó betri en menn bjuggust við Eiríkur Egilsson, formaður stjórnar sláturfélagsins Búa og Búnaðarsambands Austur- Skaftafellssýslu, segir að eftir því sem hann komist næst hafi Norðlenska ekki ætlað að byrja að slátra fyrr en í október á Höfn. „En vegna þess hversu miklir þurrkar hafa verið hér og ákveðin óvissa með heyfeng þá hefur slátrun verið flýtt, eða það spilað inn í. Við erum auðvitað ekki sáttir við að ekki sé fleira fé slátrað hér á Höfn. En þegar allt kemur til alls er þessi sláturfjöldi þó betri niðurstaða en menn bjuggust við. Í vor var tekin ákvörðun um að loka sláturhúsinu, sem nú hefur verið horfið frá – og það í sjálfu sér er gott. Eftir að Norðlenska tilkynnti um það síðastliðið vor, að það myndi hætta sauðfjárslátrun á Höfn, lögðu heimamenn á ráðin um að taka sjálf- ir við rekstrinum. Eiríkur segir að eftir nokkra yfirlegu hafi niðurstað- an verið sú að ekki væri svigrúm til þess að svo stöddu. „Þegar ljóst var að Norðlenska vildi halda áfram og slátra 19 þúsund fjár núna í haust, lögðum við okkar hugmyndir til hliðar.“ Engin ákvörðun verið tekin með sláturtíðina 2017 Ágúst Torfi segir að á bændafundum í vor, hafi verið farið yfir hugmyndir Norðlenska um það hvernig flutning- um til Húsavíkur yrði háttað. „Það hefur ekki breyst að neinu leyti en því að við vorum að kynna það fyrir skemmstu að við ætlum að slátra enn meira en við ákváðum í fyrstu. Það er gert ráð fyrir að allir bændur í Austur-Skaftafellssýslu fari með fé sitt á Höfn. Síðan verður bara tekið landfræðilegt mið af því, með hvaða fé verður keyrt norður. Það sem er nær Húsavík fer þá þangað. Það sem er á svæðinu í kringum Höfn, fer lík- lega bæði norður og á Höfn. Flutningskostnaður fellur ekki á bóndann þó þurfi að fara með féð norður – hann fellur á okkur, segir Ágúst. Hann vill ekkert segja til um hver framtíðin verði með sláturhúsið á Höfn að þessari sláturtíð lokinni. „Það liggur bara ekkert fyrir um það. Við erum ekkert hættir að slátra á Höfn. Við erum þar með stórgripa- slátrun til að mynda og það hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvernig sláturtíðin á næsta ári verð- ur. Við ætlum bara að taka stöðuna með heimamönnum upp úr miðjum nóvember þegar ljóst verður hvernig til tókst.“ Í tilkynningu Norðlenska kemur fram að heimtaka í sauðfjárslátur- tíð verði með þeim hætti að heila ófrosna skrokka skal sækja daginn eftir slátrun en frosið og sagað eigi síðar en þrem dögum eftir slátrun ef náð er í kjötið í sláturhús félagsins á Húsavík og Höfn. „Kjöt verður einnig afhent, samkvæmt venju, frosið á Egilsstöðum og Akureyri fyrir innleggjendur á þeim svæðum. Það heimtökukjöt frá innleggjend- um í nágrenni við Höfn sem berst til Húsavíkur fæst afhent í sláturhúsinu á Höfn fimm til sex dögum eftir slátr- un,“ segir í tilkynningunni. Varðandi stórgripaslátrun á Höfn í Hornafirði þá verður stórgripum ekki slátrað á Höfn þegar sauðfjár- sláturtíð stendur yfir í húsinu, frá 21. september til 4.nóvember, en verður með hefðbundnu sniði fyrir og eftir sláturtíð. /smh Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið: Lífhagkerfisstefna fyrir Ísland Lífhagkerfisstefnan hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og hefur víðtækt samráð átt sér stað við hagsmunaaðila. Þessi vinna hefur verið leidd af Matís í umboði sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra. Á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis segir að birting stefnunnar á heimasíðu ráðuneytisins sé hluti af mikilvægu samráðsferli. Allir sem vilja láta sig þetta mikilvæga málefni varða eru hvattir til að kynna sér stefnudrög- in og senda inn athugasemdir eða ábendingar, eigi síðar en 20. ágúst 2016. Markmið lífhagkerfisstefnu fyrir Ísland eru að styðja sjálfbæra þróun og uppbyggingu atvinnulífs sem byggir á nýtingu lífauðlinda, þvert á hinar svonefndu hefðbundnu atvinnugreinar, landbúnað, sjáv- arútveg og matvælavinnslu. Við þessa vinnu hefur verið leitast við að fjalla um tækifæri til aukinnar verð- mætasköpunar innan þessara greina atvinnulífsins og hvernig styðja megi við uppbyggingu nýrra greina til framtíðar, hvernig bæta megi nýtingu og minnka sóun, auk þess sem horft er til nýtingar vannýttra auðlinda. Við stefnumörkunina er sér- staklega horft til sérstöðu Íslands, m.a tækifæra sem byggja á nýtingu einstakra erfðaauðlinda, sérstöðu sem rekja má til legu landsins, haf- svæðisins í kringum okkur og þess árangurs sem náðst hefur í íslenskum sjávarútvegi. Sá árangur í samhengi við ábyrga stefnumörkun á sviði líf- hagkerfisins gefur mikil tækifæri til að verða leiðandi í málefnum hafsins á alþjóðavettvangi auk þess að nýtast með beinum hætti við markaðssetn- ingu á vöru og þjónustu. Mörkun lífhagkerfisstefnu á sér fyrirmyndir í öðrum norrænum ríkj- um og hefur reynsla annarra landa af stefnumörkun á þessu sviði verið höfð til hliðsjónar við vinnuna, auk þess að taka mið af þeirri þekk- ingu og reynslu sem hefur orðið til með formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014– 2016, NordBio. Jafnframt er tekið mið af margs konar stefnumótun á innlendum vettvangi, s.s. stefnu Vísinda-og tækniráðs. Vinna við undirbúning lífhag- kerfisstefnunnar hefur verið í hönd- um sérstaks starfshóps, sem sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði 2015 og hefur Matís ohf. farið með framkvæmd vinnunnar. Víðtækt samráð hefur verið haft við stofnanir, önnur ráðuneyti og atvinnulífið, einkum samtök og fyr- irtæki í sjávarútvegi og landbúnaði, matvælavinnslu og líftækni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.