Bændablaðið - 07.07.2016, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Heilnæmur matur og heiðarlegir framleiðsluhættir er allra hagur:
Til að tryggja matvælaöryggi þarf að hlúa
vel að heilsu manna, dýra og uppskeru
– matvælasýkingar valda 128 þúsund sjúkrahúsinnlögnum og þrjú þúsund dauðsföllum á ári í Bandaríkjunum
Á tímum aukinnar alþjóða-
væðingar hefur umræða um heil-
næmi matvöru aukist til muna. Æ
oftar heyrast fréttir af ofnotkun
sýklalyfja og eiturefna í landbún-
aði. Þótt nútíma matvælafram-
leiðsla hafi þróast hratt og bændur
tæknivæðst er ekki allt sem sýnist.
Víða um heim er pottur brotinn
þar sem ekki er farið eftir settum
reglum, t.d. um notkun varnar-
efna og ekki borin virðing fyrir
umhverfinu. Matvælasýkingar
vegna rangra framleiðsluaðferða,
langra flutninga og rangrar með-
höndlunar eru því miður daglegt
brauð og vaxandi vandamál um
allan heim.
Á hverjum degi eru flutt til Íslands
fleiri tonn af matvælum. Þau koma
úr öllum heimshornum og hafa ferð-
ast langar vegalengdir með ýmsum
farartækjum. Ávextir og grænmeti
eru í eðli sínu viðkvæmar vörur en
þær hafa sumar hverjar verið flutt-
ar þúsundir kílómetra áður en þær
koma á diskinn þinn. Þegar gengið
er um grænmetisdeildir stórmarkaða
má til dæmis líta salat frá Suður-
Evrópu, banana frá Suður-Ameríku
og appelsínur frá Ísrael. Á síðustu
árum hefur framboð af innlendu
grænmeti aukist hratt og úrvalið er
meira en áður hér á landi. Enn er þó
langt í land að Íslendingar framleiði
meirihlutann af því grænmeti sem
neytt er hérlendis. En hvaðan kemur
maturinn sem við borðum dags dag-
lega og hvaða neikvæðu áhrif hafa
flutningar á mat á jörðina? Geta
neytendur treyst því að matvælin
sem enda á matarborðinu séu fram-
leidd við bestu skilyrði, án eiturefna
og að þau séu laus við ýmsa óværu
eða sjúkdóma?
Við erum það sem við borðum
Ræktun og framleiðsla matvæla,
framreiðsla og neysla tengir heilsufar
okkar við ástand jarðar með bæði
beinum og óbeinum hætti. Aðferðir
við framleiðslu matvæla hafa þró-
ast hratt og leiðin á milli bænda
og neytenda er í mörgum tilvikum
löng. Hráefni í eina máltíð getur átt
uppruna sinn á fjölmörgum stöðum,
bæði heima í héraði og úti í heimi.
Framleiðsla og dreifing á matvælum
í þróuðum ríkjum fer fram í gegnum
risavaxin og flókin samstarfsnet og
tekur sífellt styttri tíma. Það sem
mörg okkar sem neytendur vita ekki
er að matarforði okkar, staðbundinn
sem og innlendur, er hluti af hnatt-
rænu matvælaframleiðslukerfi sem
tengist sífellt meira innbyrðis.
Hráefni í einni salatskál koma frá
tugum landa
Matarforði Bandaríkjanna saman-
stendur af þúsundum gerða af
mat og tengdum afurðum – sem
að miklu leyti eru ræktaðar og
unnar utan Bandaríkjanna – eins
og sést á myndinni af salatskálinni
hér að ofan. Hráefnin tíu, sem öll
fást í íslenskum stórmörkuðum, í
umræddu salati geta komið frá fleiri
en 38 löndum. Þetta hnattræna eðli
innlendra og staðbundinna matar-
birgða undirstrikar þörfina á heil-
næmri nálgun við matvælaöryggi,
þar sem jafnvel algeng og „holl“ hrá-
efni fara heimshluta á milli áður en
þau eru lögð á borðið. Til að tryggja
matvælaöryggi í heiminum þarf að
hlúa vel að heilsu manna, dýra og
uppskeru.
Sýklar í mat valda 48 milljón
veikindatilfellum á ári í
Bandaríkjunum
Hnattvæðing matarforðans hefur
auðveldað matvælasýkingum að
koma upp á yfirborðið, snúa aftur
og breiðast út, og hefur þetta gert
enn erfiðara en ella að sjá fyrir,
greina og bregðast rétt við slíkri
heilsuvá. Í Bandaríkjunum einum
valda sýklar úr mat um það bil 48
milljónum veikindatilfellum, 128
þúsund sjúkrahúsinnlögnum og þrjú
þúsund dauðsföllum á ári (Scallan,
2011). Þessi tala er líklega aðeins
toppurinn á ísjakanum vegna þess
að hún tekur ekki með í reikninginn
fjölbreyttar matvælasýkingar sem
ná yfir breitt svið, allt frá einkenna-
leysi yfir í alvarlega sjúkdóma með
afleiðingum á borð við nýrnabilun
og dauða, og ekki er heldur reiknað
með öllum þeim víðtæku afleiðing-
um sem sýkingar geta haft fyrir neyt-
endur, yfirvöld og matvælaiðnaðinn,
bæði innanlands og um allan heim.
Forvarnir eru sterkt vopn til að
berjast gegn matvælasýkingum
Heilsufar einstaklinga og lýðheilsa
innanlands og á alþjóðavettvangi
tengist ástandi umhverfisins og
heilsufari milljarða húsdýra og villtra
dýra. Vísindamenn hafa því sagt að
þörf sé á nýju viðmiði – viðmiði sem
felst í forvörnum og viðbragðsáætl-
un til að tryggja mataröryggi í stað
Baunaspírur
Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Bangladesh,
Egyptaland, Frakkland, Indland, Ísland,
Kanada, Kína, Marokkó, Nepal, Pakistan,
Spánn,
Suður-
Afríka,
Tyrkland
Salat
Bandaríkin, Dóminíska lýðveldið, Ísland
Kanada, Mexíkó, Perú, Síle, Spánn.
Mandarínur
Ísrael, Mexíkó, Marokkó, Suður-Afríka,
Spánn.
Agúrka
Bandaríkin, Holland, Hondúras, Indland
Ísland, Kanada, Mexíkó, Spánn
Fetaostur
Bandaríkin, Bretland, Danmörk,
Egyptaland, Grikkland, Ísland, Ísrael,
Ítalía, Kanada, Tyrkland, Þýskaland.
Brauðteningar
Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Brasilía,
Frakkland, Holland, Indland, Kanada, Kína,
Mexíkó, Pólland, Rússland, Sviss,
Úrúgvæ,
Víetnam.
Tómatar
Bandaríkin, Dóminíska lýðveldið, Holland,
Ísland, Ísrael, Ítalía, Kanada
Mexíkó
Ólífuolía og balsamikedik
Argentína, Bandaríkin, Brasilía, Frakkland
Indland, Indónesía, Ítalía, Kanada, Kína
Marokkó, Mexíkó, Perú, Portúgal, Síle
Spánn
Taíland
Túnis
Tyrkland
Víetnam
Þýskaland
Ólífur
Bandaríkin, Grikkland, Ísrael, Mexíkó
Spánn
Salatið víðförla
Veist þú hvaðan maturinn þinn kemur?
Rauðlaukur
Bandaríkin, Indland, Kanada, Kína,
Þýskaland.
Myndin á uppruna sinn í átakinu „One Health“ sem hefur meðal annars það markmið að bæta
matvælaöryggi og lýðheilsu, leiða saman vísindamenn úr öllum heimshornum og fyrirbyggja matvælasýkingar.
Sem neytendur eigum við oft erfitt með að átta okkur á uppruna matarins sem við borðum. Einfalt salat í skál kemur víðar að en marga grunar. Daglegar matarvenjur geta haft
mikil áhrif á heilsuna og lífsgæði á jörðinni. Það skiptir máli að maturinn þinn sé hollur og góður og að framleiðslan hafi ekki skaðleg áhrif á umhverfið. Of mikil notkun varnarefna
í matvælaframleiðslu og flutningar um langan veg eru óæskilegir fyrir alla jarðarbúa.
Tjörvi Bjarnason
tjorvi@bondi.is
Fréttaskýring