Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Heilnæmur matur og heiðarlegir framleiðsluhættir er allra hagur: Til að tryggja matvælaöryggi þarf að hlúa vel að heilsu manna, dýra og uppskeru – matvælasýkingar valda 128 þúsund sjúkrahúsinnlögnum og þrjú þúsund dauðsföllum á ári í Bandaríkjunum Á tímum aukinnar alþjóða- væðingar hefur umræða um heil- næmi matvöru aukist til muna. Æ oftar heyrast fréttir af ofnotkun sýklalyfja og eiturefna í landbún- aði. Þótt nútíma matvælafram- leiðsla hafi þróast hratt og bændur tæknivæðst er ekki allt sem sýnist. Víða um heim er pottur brotinn þar sem ekki er farið eftir settum reglum, t.d. um notkun varnar- efna og ekki borin virðing fyrir umhverfinu. Matvælasýkingar vegna rangra framleiðsluaðferða, langra flutninga og rangrar með- höndlunar eru því miður daglegt brauð og vaxandi vandamál um allan heim. Á hverjum degi eru flutt til Íslands fleiri tonn af matvælum. Þau koma úr öllum heimshornum og hafa ferð- ast langar vegalengdir með ýmsum farartækjum. Ávextir og grænmeti eru í eðli sínu viðkvæmar vörur en þær hafa sumar hverjar verið flutt- ar þúsundir kílómetra áður en þær koma á diskinn þinn. Þegar gengið er um grænmetisdeildir stórmarkaða má til dæmis líta salat frá Suður- Evrópu, banana frá Suður-Ameríku og appelsínur frá Ísrael. Á síðustu árum hefur framboð af innlendu grænmeti aukist hratt og úrvalið er meira en áður hér á landi. Enn er þó langt í land að Íslendingar framleiði meirihlutann af því grænmeti sem neytt er hérlendis. En hvaðan kemur maturinn sem við borðum dags dag- lega og hvaða neikvæðu áhrif hafa flutningar á mat á jörðina? Geta neytendur treyst því að matvælin sem enda á matarborðinu séu fram- leidd við bestu skilyrði, án eiturefna og að þau séu laus við ýmsa óværu eða sjúkdóma? Við erum það sem við borðum Ræktun og framleiðsla matvæla, framreiðsla og neysla tengir heilsufar okkar við ástand jarðar með bæði beinum og óbeinum hætti. Aðferðir við framleiðslu matvæla hafa þró- ast hratt og leiðin á milli bænda og neytenda er í mörgum tilvikum löng. Hráefni í eina máltíð getur átt uppruna sinn á fjölmörgum stöðum, bæði heima í héraði og úti í heimi. Framleiðsla og dreifing á matvælum í þróuðum ríkjum fer fram í gegnum risavaxin og flókin samstarfsnet og tekur sífellt styttri tíma. Það sem mörg okkar sem neytendur vita ekki er að matarforði okkar, staðbundinn sem og innlendur, er hluti af hnatt- rænu matvælaframleiðslukerfi sem tengist sífellt meira innbyrðis. Hráefni í einni salatskál koma frá tugum landa Matarforði Bandaríkjanna saman- stendur af þúsundum gerða af mat og tengdum afurðum – sem að miklu leyti eru ræktaðar og unnar utan Bandaríkjanna – eins og sést á myndinni af salatskálinni hér að ofan. Hráefnin tíu, sem öll fást í íslenskum stórmörkuðum, í umræddu salati geta komið frá fleiri en 38 löndum. Þetta hnattræna eðli innlendra og staðbundinna matar- birgða undirstrikar þörfina á heil- næmri nálgun við matvælaöryggi, þar sem jafnvel algeng og „holl“ hrá- efni fara heimshluta á milli áður en þau eru lögð á borðið. Til að tryggja matvælaöryggi í heiminum þarf að hlúa vel að heilsu manna, dýra og uppskeru. Sýklar í mat valda 48 milljón veikindatilfellum á ári í Bandaríkjunum Hnattvæðing matarforðans hefur auðveldað matvælasýkingum að koma upp á yfirborðið, snúa aftur og breiðast út, og hefur þetta gert enn erfiðara en ella að sjá fyrir, greina og bregðast rétt við slíkri heilsuvá. Í Bandaríkjunum einum valda sýklar úr mat um það bil 48 milljónum veikindatilfellum, 128 þúsund sjúkrahúsinnlögnum og þrjú þúsund dauðsföllum á ári (Scallan, 2011). Þessi tala er líklega aðeins toppurinn á ísjakanum vegna þess að hún tekur ekki með í reikninginn fjölbreyttar matvælasýkingar sem ná yfir breitt svið, allt frá einkenna- leysi yfir í alvarlega sjúkdóma með afleiðingum á borð við nýrnabilun og dauða, og ekki er heldur reiknað með öllum þeim víðtæku afleiðing- um sem sýkingar geta haft fyrir neyt- endur, yfirvöld og matvælaiðnaðinn, bæði innanlands og um allan heim. Forvarnir eru sterkt vopn til að berjast gegn matvælasýkingum Heilsufar einstaklinga og lýðheilsa innanlands og á alþjóðavettvangi tengist ástandi umhverfisins og heilsufari milljarða húsdýra og villtra dýra. Vísindamenn hafa því sagt að þörf sé á nýju viðmiði – viðmiði sem felst í forvörnum og viðbragðsáætl- un til að tryggja mataröryggi í stað Baunaspírur Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Bangladesh, Egyptaland, Frakkland, Indland, Ísland, Kanada, Kína, Marokkó, Nepal, Pakistan, Spánn, Suður- Afríka, Tyrkland Salat Bandaríkin, Dóminíska lýðveldið, Ísland Kanada, Mexíkó, Perú, Síle, Spánn. Mandarínur Ísrael, Mexíkó, Marokkó, Suður-Afríka, Spánn. Agúrka Bandaríkin, Holland, Hondúras, Indland Ísland, Kanada, Mexíkó, Spánn Fetaostur Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Egyptaland, Grikkland, Ísland, Ísrael, Ítalía, Kanada, Tyrkland, Þýskaland. Brauðteningar Argentína, Ástralía, Bandaríkin, Brasilía, Frakkland, Holland, Indland, Kanada, Kína, Mexíkó, Pólland, Rússland, Sviss, Úrúgvæ, Víetnam. Tómatar Bandaríkin, Dóminíska lýðveldið, Holland, Ísland, Ísrael, Ítalía, Kanada Mexíkó Ólífuolía og balsamikedik Argentína, Bandaríkin, Brasilía, Frakkland Indland, Indónesía, Ítalía, Kanada, Kína Marokkó, Mexíkó, Perú, Portúgal, Síle Spánn Taíland Túnis Tyrkland Víetnam Þýskaland Ólífur Bandaríkin, Grikkland, Ísrael, Mexíkó Spánn Salatið víðförla Veist þú hvaðan maturinn þinn kemur? Rauðlaukur Bandaríkin, Indland, Kanada, Kína, Þýskaland. Myndin á uppruna sinn í átakinu „One Health“ sem hefur meðal annars það markmið að bæta matvælaöryggi og lýðheilsu, leiða saman vísindamenn úr öllum heimshornum og fyrirbyggja matvælasýkingar. Sem neytendur eigum við oft erfitt með að átta okkur á uppruna matarins sem við borðum. Einfalt salat í skál kemur víðar að en marga grunar. Daglegar matarvenjur geta haft mikil áhrif á heilsuna og lífsgæði á jörðinni. Það skiptir máli að maturinn þinn sé hollur og góður og að framleiðslan hafi ekki skaðleg áhrif á umhverfið. Of mikil notkun varnarefna í matvælaframleiðslu og flutningar um langan veg eru óæskilegir fyrir alla jarðarbúa. Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Fréttaskýring
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.