Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 19
19Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
kranar & talíur
Hafðu samband
og kynntu þér
vöruúrvalið og
þjónustuna
í
þess að bregðast við eftir á. Gott
dæmi um slíkt er „One Health“
– sem hefur verið skilgreint sem
„þverfaglegt samstarfsátak þar sem
unnið er heima í héraði, á landsvísu
og á heimsvísu að því markmiði að
tryggja bestu mögulegu heilsu fyrir
fólk, dýr og umhverfið“ (AVMA,
2008). Verði slíkri aðferð beitt við
að tryggja matvælaöryggi gæti það
gefið fyrirheit um að hægt verði
að beisla og samtengja sérfræði-
þekkingu og úrræði fjölbreyttra
heilbrigðissviða, þ.á m. samfélags
lækna, dýralækna og plöntumeina-
fræðinga ásamt sérfræðingum á
sviði villtrar náttúru, sjávardýra
og vistfræði.
Heimildir:
Improving Food Safety Through a
One Health Approach, Workshop
Summary, Institute of Medicine
(US). Washington (DC): National
Academies Press (US); 2012.
Þó að samkvæmt kenningunni
megi fyrirbyggja megnið af mat-
vælasýkingum hafa framleiðend-
ur ferskra afurða ekki enn úræði
til að útrýma þeirri áhættu, segir
David Gombas, talsmaður sam-
taka grænmetisframleiðenda í
Bandaríkjunum (enska: United
Fresh Produce Association).
Talið er að dagleg neysla þar í
landi sé einn milljarður skammta
af ferskum landbúnaðarafurðum –
flokkur sem felur í sér fleiri en 300
ólíkar fæðutegundir. Þessi matvæli
koma frá fleiri en 100 þúsund býlum
í Bandaríkjunum og margfalt fleiri
býlum erlendis og stærstu framleið-
endurnir leggja til meirihlutann af
öllum ferskum afurðum sem seljast.
H e l s t a ö r y g g i s t æ k i
matvælaframleiðenda er forvarnir,
segir Gombas. „Það er ekkert eitt
þrep sem hægt er að stíga til að
fjarlægja alla sjúkdómsvalda úr
afurðum þannig að þær haldist
ferskar. Við kunnum vel að losna við
90 til 99 prósent þeirrar mengunar
sem kann að leynast í ferskum
afurðum en alltaf verða einhverjar
örverur eftir sem geta falið sig,“
sagði hann. „Þess vegna reynum við
í hverjum hlekk birgðakeðjunnar að
fyrirbyggja mengun en það tekst ekki
alltaf.”
Oft erfitt að greina orsakir
Þegar forvarnir bregðast og faraldur
brýst út af völdum mengaðra afurða
er oft erfitt að greina orsökina – og
þar með að forðast að slíkt endurtaki
sig, segir Gombas. Til dæmis, nefndi
hann, hafa öll tilfelli Listeríu til þessa
verið tengd matvælavinnslu, þrátt
fyrir að heimkynni sjúkdómsvaldsins
séu á akrinum. Hann dró einnig í
efa þá túlkun nýlegra rannsókna
að salmónellusmit megi rekja til
paprikuafbrigða og papajaávaxta
og að E.coli O157:H7 hafi tengst
jarðarberjum, og sérstaklega það
að útbreiðsla E.coli O157:H7 árið
2006 hafi tengst pökkuðu spínati,
sem er kenning sem King, Tauxe
og Doyle lögðu fram. „Þegar upp
er staðið vitum við í raun ekki hvað
gerðist í þessu tilfelli og í mörgum
öðrum tilfellum liggur nákvæm
atburðarás ekki heldur fyrir,“ segir
David Gombas.
Líklegustu orsakir
matvælasýkinga
Samkvæmt Gombas eru
líklegstu orsakir og atburðarásir í
afurðamengun eftirtaldar, eins og
fram kemur í viðmiðum Bandaríska
matvæla- og lyfjaeftirlitsins (Food
and Drug Administration), (FDA,
1998).
• vatn (í öllum sínum myndum)
• starfsmenn
• snerting við yfirborðsfleti
(t.d. búnað, ílát, áhöld)
• dýr (húsdýr og villt dýr)
• jarðvegsbreytingar
• fyrri landnotkun
• starfsemi á aðliggjandi landi
• krossmengun
Þessir þættir eru þekktir í
matvælaframleiðslu og tekið er
sérstakt tillit til þeirra, bætti hann
við. Að bæta þessa almennu nálgun
krefst þess að borin verði kennsl á
raunverulega áhættuþætti á hverju
stigi afurðaræktunar og vinnslu.
Þekkingu skortir á sumum sviðum
Einkum, sagði hann, skortir
þekkingu á áhættuþáttum vegna
mengunar áður en til uppskeru kemur
– þætti sem tengjast vatni, dýrum,
jarðvegsbreytingum og landnýtingu.
Gombas hefur rennt stoðum undir
þetta með langri röð ósvaraðra
spurninga um raunverulega
áhættuþætti og samanburð á ýmsum
starfsaðferðum sem viðgangast
í landbúnaði. Er hægt að nota
búfjáráburð í moltu með öruggum
hætti? Er óhætt að nota mykju og
skít sem áburð í ræktun? Hvaða
villtu dýr er líklegast að beri með
sér matvælasýkingar?
„Mikið er vitað um áhættuþætti
vegna sjúkdóma sem berast með mat
en afar lítið er vitað um hvað er í raun
öruggt,“ segir David Gombas.
Sjónarhorn matvælaiðnaðarins: Ferskar búvörur og heilbrigði
Hvernig má fyrirbyggja matvælasýkingar?
David Gombas, talsmaður samtaka
grænmetisframleiðenda í
Bandaríkjunum.
COOL - LITE
SÓLVARNARGLER
ispan@ispan.is • ispan.is
M
ynd: Josefine Unterhauser