Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Aðildarríki Evrópusambandsins
áttu að taka afstöðu til leyfis-
endurnýjunar á eiturefninu
glýfósat fyrir fund sambands ins
þann 18. og 19. maí. Evrópu-
sambandið frestaði því hins vegar í
annað sinn þann 19. maí að greiða
atkvæði um að staðfesta bann við
notkun þess innan ESB sem taka
á gildi 30. júní.
Glýfosat (Glyphosate) eða
N-(phosphonomethyl)glycine, er
eitt þeirra virku efna, m.a. í illgres-
iseyðinum Roundup, sem um ræðir.
Það er mikið notað í landbún-
aði víða um lönd. Þó efni sem
innihalda glýfósat séu ekki
notuð við framleiðslu matvæla
í gróðurhúsum á Íslandi, né við
framleiðslu fóðurs fyrir skepnur
á túnum, þá er engin rannsókn
fyrirliggjandi um hvað getur
leynst í innfluttum matvælum
og fóðri. Vaxandi áhyggjur eru
af því að gróðureyðingarefni sem
og skordýraeitur berist í fólk sem
neytir matjurtanna sem þannig eru
ræktaðar. Einnig að efnin séu í kjöti
af dýrum sem alin eru á fóðri sem
ræktað er með aðstoð slíkra efna.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) skilgreindi glýfósat á síð-
asta ári sem mögulega krabbameins-
valdandi efni. Einnig eru læknar
farnir að leiða líkum að því að orsak-
ir aukinnar tíðni ýmissa sjúkdóma
kunni að vera að finna í tilvist m.a.
glýfósats í matvælum.
Í apríl var kunngerð rannsókn
á þvagsýnum sjálfboðaliða meðal
þingmanna Evrópusambandsins.
Var rannsóknin gerð að undirlagi
Græningja á Evrópuþinginu. Alls
tóku 48 þingmenn frá 13 ESB-
löndum þátt og lögðu fram þvagsýni.
Flestir þingmannanna voru þó frá
Belgíu, Frakklandi og Þýskalandi. Í
öllum sýnunum sem skoðuð voru hjá
Biocheck Laboratory í Þýskalandi
fannst eiturefnið glýfósat.
Gríðarlegir peningahagsmunir
eru í húfi og ljóst að fram-
leiðendur efnanna leggja
mikið á sig til að tryggja
áfram haldandi notkun.
Roundup, sem inniheldur
glýfósat, er mest notaða
plöntueitur í land búnaði
Evrópu og uppspretta
um eins þriðja af tekjum
framleið andans Monsanto
í álfunni. Efnið er talsvert
notað hér á landi, en eink-
um af opinberum aðilum
og einstaklingum.
Úttekt Courrier
International í
Frakklandi
Fjallað var um mögu lega
tilvist eiturefna í mat-
vælum í franska blaðinu
Courrier International þann
11. maí síðast liðinn. Þar var
m.a. vísað í rannsókn sem
þýska vikublaðið Die Zeit
í Hamborg, eða Tíminn,
gerði á þessari leiðandi
Monsanto-afurð sem vekur
mikinn áhuga bæði lobbýista
og ríkisstjórna.
Varpað var fram þeirri
spurningu hvort ástæða sé til
að óttast þennan illgresiseyði
sem leynist í meirihluta mat-
væla okkar.
Útdráttur úr Die Zeit
– frásögn bónda nærri
Hamborg
Þróunin var hæg frá fyrstu ein-
kennum þar til hann áttaði
sig á stöðunni og sagði við sjálfan
sig:
„Sven, það er eitthvað að
hjörðinni þinni.“
Sven Krey, 34 ára, rjóður í kinn-
um og kringluleitur, situr í eldhús-
inu sínu. Dauft ljós kemur inn um
gluggann en hann fær gæsahúð þegar
hann rifjar upp hvernig hryllingurinn
tók sér bólfestu á bæ hans nálægt
Norðursjó [í Þýskalandi]. Sælureitur
þar sem orðið hryllingur virðist alls
ekki eiga við.
Kreyhjónin þrífa heimkeyrsluna
svo vandlega að börnin þeirra tvö
fara út í gripahúsin á inniskóm.
Um þessa sömu heimkeyrslu hafa
farið síðustu fimm árin dýralæknar,
búfræðingar og sérfræðingar í naut-
griparækt. Sven Krey segir svo frá
að til að byrja með hafi nytjar kúnna
hans 150 farið þverrandi. Þar næst
tóku þær að missa þyngd, um 30 og
40 kíló. Loks kom niðurgangur, lófa-
stór fleiður á júgrið og fótalömun.
Árið 2014 var svartast. Sex grip-
um var slátrað í neyð. Ástandið á
þeim peningi, sem eftir lifði, var
svo slæmt að bóndinn vissi ekki
sitt rjúkandi ráð. Sven Krey reyn-
ir að koma orðum að öllum þeim
tilfinningum sem sótt hafa á hann.
Stórkostleg örvænting. En líka
léttir þegar einhver kom loks með
mögulega skýringu á ástandinu.
Of stór skammtur af glýfósat
Fyrir rúmu ári kemur Achim Gerlach,
dýralæknir hjá sveitarfélaginu Burg
í Slésvík-Holtsetalandi, í fyrsta sinn
á bæ Kreyhjónanna. Hann greinir
einkenni langvarandi eitrunar í kúm
þeirra:
Vefjadrep á júgri, hala, eyrum,
vandamál í maga og klaufum. Upp
á síðkastið rekst dr. Gerlach oft á
þessi einkenni. Eitthvað í fæði kúnna
virðist valda þessum veikindum.
Dýralæknirinn lætur rannsaka þvag
þeirra. Í öllum sýnum finnast miklar
leifar eins efnis: glýfósats.
Glýfósat er mest notaði plágu-
eyðir í veröldinni. Það var sett á
markað 1974 í Bandaríkjunum af
amerísku landbúnaðariðnaðarsam-
steypunni Monsanto undir nafninu
Roundup og er nú notað um allan
hnöttinn. Amerískir maísframleið-
endur, indverskir baðmullarræktend-
ur, argentískir sojabarónar og þýskir
kornræktendur, allir úða glýfósati á
akra sína. Efni sem drepur nær allar
tegundir illgresis í veröldinni. Og
stundum ekki bara illgresið.
Glýfósat drepur!
Langt er síðan tók að heyrast að
glýfósat væri líka skaðlegt mönnum
og skepnum. Og þessi hugsanlega
hætta leysti úr læðingi hugmynda-
fræðilegt stríð. – Glýfósat drepur!
– Þarf að banna tafarlaust! Þetta
endurtaka umhverfis verndarsinnar.
Forsvarsmenn bænda og sam-
tök iðnfyrirtækja í landbúnaði
sögðu aftur á móti:
Glýfósat bjargar mannslífum!
„Glýfósat bjargar mannslífum,
það eykur landbúnaðarfram-
leiðslu og fæðir heimsbyggðina.“
Í þessu stríði umhverfis-
verndarsinna og fulltrúa hefð-
bundins landbúnaðar hefur lengi
skort á að vísindalegur aðili
kæmi fram sem gæti gefið álit
laust við allan áróður.
Glýfósat líklega
krabbameinsvaldandi!
Dag einn í mars 2015
sendi hin Alþjóð lega
krabba meins rannsókna-
stofnun (IARC) Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) frá sér álit. Eftir ítar-
lega skoðun á þeim vísindalegu
rannsóknum sem fyrir lágu
komst hún að þeirri niður-
stöðu að glýfósat væri „líklega
krabbameinsvaldandi“.
Glýfósat líklega ekki
krabbameinsvaldandi!
Eftir úrskurð WHO virtist sem
örlög glýfósats væru ráðin.
En ekki var allt sem sýndist.
Skömmu síðar kom þveröfug
melding frá Berlín. Þar gaf Þýska
áhættumatsstofnunin (Bundesinstitut
für Risiko bewertung) út sitt álit:
Glýfósat er „ekki krabbameins-
valdandi“.
Um miðjan nóvember lagðist
Evrópska fæðuöryggisstofnunin
(Efsa), sem situr í Parma á Ítalíu, á
sveif með sama úrskurði:
Glýfósat væri „líklega ekki
krabbameinsvaldandi“.
Franska blaðið Courrier International fjallaði fyrir skömmu um notkun eiturefna við matvælaframleiðslu og spurði:
Er eitur á diskunum okkar?
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fréttaskýring
Myndaserían Litir, sem prýðir greinina í franska blaðinu Courrier International,
var gerð af ítalska ljósmyndaranum Giorgio Cravero. Listamaðurinn, sem fékk
appelsína). www. giorgiocravero.com.
1974 – Glýfósat er fyrst sett á
markað af fyrirtækinu Monsanto
undir vöruheitinu Roundup.
2002
rennur út sem gerir öðrum
fyrirtækjum kleift að framleiða
efnið.
13. apríl 2016 – Evrópuþingið
samþykkir þingsályktun um að
fara þess á leit við Framkvæmda-
fyrir glýfósat um sjö ár en þó með
ströngum takmörkunum.
18.-19. maí 2016 – Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins sendir
fyrir glýfósat til atkvæðagreiðslu
aðildarríkjanna.