Bændablaðið - 07.07.2016, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
„Við sáum fyrirtækið auglýst til
sölu í Bændablaðinu og veltum
því fyrir okkur í framhaldinu
hvort þarna væri hugsanlega eitt-
hvað fyrir okkur, hvort ekki væri
upplagt að bæta því við okkar
starfsemi og fylla þannig upp í
vinnuárið. Yfir vetrarmánuðina
kemur fyrir að skapist eyður, það
eru minni umsvif og því kjörið að
hafa eitthvað að grípa í á þeim
tíma,“ segir Rúnar Jóhannsson en
hann og eiginkona hans, Sesselja
Guðmundsdóttir, keyptu fyrirtæk-
ið Helluskeifur á liðnu ári. Félagið
hafði árin á undan verið starfrækt
í Stykkishólmi, en þau Rúnar og
Sesselja fluttu það í heilu lagi til
heimabæjar síns, Skagastrandar,
og komu því þar fyrir.
Rúnar er Skagfirðingur, fæddur
á Giljum í Vesturdal í gamla
Lýtingsstaðahreppi, en Sesselja
er frá Geitafelli á Vatnsnesi. Hún
er leikskólakennari og starfar á
leikskólanum á Skagaströnd. Rúnar
hefur undanfarna tvo áratugi verið
sjálfstætt starfandi verktaki og
víða komið við. Hann hefur starfað
við steypusögun, kjarnaborun,
framleiðslu á túnþökum, sinnt
landbúnaðarstörfum og einnig hefur
hann flutt ull frá bændum fyrir Ístex
á Blönduósi.
Leist vel á og keyptu
Þau Rúnar og Sesselja óku til
Stykkishólms haustið 2014 og
skoðuðu fyrirtækið Helluskeifur, sem
þeim leist mæta vel á. Því var farið
að huga að fjármögnun kaupanna og
var búið að tryggja hana í febrúar í
fyrra. Aftur var ekið frá Skagaströnd
í Hólminn um vorið, „og við fengum
líkt og í fyrri heimsókn mjög góðar
móttökur, prófuðum að smíða nokkr-
ar skeifur og fundum að þetta gæti
vel hentað okkur,“ segir Rúnar. Það
dróst hins vegar ýmissa hluta vegna
að ganga endanlega frá kaupum á
félaginu og varð að samkomulagi við
fyrri eiganda að bíða með að handsala
samninginn fram á haust svo ekki
kæmi til þess að viðskiptavinir yrðu
fyrir töfum á afhendingu þegar mest
væri að gera.
Fyrstu skeifurnar
framleiddar um jólin
Það var svo um miðjan desember í
fyrra sem þau hjónin fóru og gengu
frá kaupum og fluttu fyrirtækið til
Skagastrandar. Tækjum var komið
fyrir í húsnæði á Hafnarlóð 6, gömlu
mjölskemmunni í þorpinu, sem er
feiknastórt hús og var á sínum tíma
stúkað niður og selt í bitum. Rúnar
og Sesselja eiga þar hlut og komu
tækjum og tólum sem tilheyra
skeifuframleiðslunni fyrir í um 100
fermetrum.
„Við útbjuggum ágætis vinnslu-
rými þarna inni fyrir vélar og tæki og
það fer prýðilega um okkur þarna,“
segir Rúnar.
Tækin voru komin á Skagaströnd
16. desember 2015, „og mátti ekki
seinna vera því næsta dag var
komin norðaustan stórhríð,“ segir
hann. Síðasta vélin var tengd á
Þorláksmessu og annan dag jóla
hófust þau handa og framleiddu
fyrstu 200 skeifurnar og segir hann
að á ýmsu hafi gengið.
Enginn síðasti söludagur
Fyrirkomulag á smíðinni er með
þeim hætti að bæði eru þau við
framleiðsluna, þ.e. að smíða úr
hitanum, en það er einna fljótlegasta
verkið í ferlinu og verður að gerast
í einni törn. Þegar því verki er lokið
getur einn maður tekið við keflinu og
sinnt því sem eftir er, að stinga niður
úr fjaðragötum, lokka úr og snitta
fyrir skafla, potta ef þess er óskað
sem og að sinna öðrum frágangi.
„Ætlun okkar er að vinna upp
lager að vetrinum sem við svo getum
afgreitt úr með skömmum fyrirvara
þegar pantanir berast, því framleiðsla
á skeifum er með þeim hætti að á
henni er enginn síðasti söludagur,“
segir Rúnar.
Skeifurnar eru seldar beint frá
framleiðenda og dreifing fer fram
með Póstinum. Rúnar segir að
kaupi menn 10 ganga eða meira taki
framleiðendur á sig flutningskostnað.
Þá hafa tvær verslanir á Suðurlandi
Helluskeifur til sölu, Baldvin og
Þorvaldur og einnig Landsstólpi.
Markaðsátak norðan heiða
Helluskeifur eiga upphaf sitt að
rekja til Suðurlands, framleiðslan
hófst á Hellu, en fluttist þaðan í
Stykkishólm.
„Helsta markaðssvæði fyrir-
tækisins hefur frá upphafi verið á
Suðurlandi þar sem það var upp-
haflega staðsett og það náði svo
líka ágætis fótfestu á Suðvestur- og
Vesturlandi. Stærstu viðskiptavinir
félagsins eru fyrirtæki í hestatengdri
þjónustu, eins og Eldhestar í Ölfusi,
Hestaleigan Laxnes í Mosfellsdal
og Ferðir Arinbjörns í Brekkulæk í
Miðfirði, en þessir aðilar segjast solt-
ir bjóða upp á hestaferðir með sína
viðskiptavini og noti íslenskar skeif-
ur undir sína hesta,“ segir Rúnar.
Helluskeifur fengu nýverið
styrk frá Samtökum sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra, SSNV, til frek-
ari markaðssetningar á norðanverðu
landinu og segir Rúnar að félagið
sé nú um þessar mundir að koma
sér á framfæri norðan heiða. „Ég
álít að það sé heilmikill markað-
ur hér um slóðir, en honum hefur
ekki verið sinnt neitt sérstaklega.
Við hyggj umst kynna okkar vöru í
fjórðungnum með öflugum hætti á
næstu mánuðum,“ segir hann.
Meiri ending á erfiðum
reiðvegum
Rúnar segir að kostir Helluskeifa
séu margvíslegir, „fyrir það fyrsta
er um íslenska framleiðslu að ræða
og það hlýtur að teljast einhvers
virði í sjálfu sér, að framleiðslan
fari fram innanlands og skapi þar
atvinnu. Það má líka benda á að
erlendir framleiðendur hafa nefnt
sína framleiðslu „Íslandsskeifur,“
svo einhvers virði er tengingin
við landið.“ Rúnar nefnir einnig
að kaupendur hafi nefnt við sig að
íslenska framleiðslan hafi meiri
endingu á erfiðum reiðvegum en sú
erlenda og að hófar fari ekki illa þótt
hestur tapi skeifu. Þá sé í flestum
tilvikum hægt að koma skeifu á
hófinn þótt ekki séu önnur verkfæri
en hóffjaðrir og steinn. „Eins og
gamalt máltæki segir: Allt er betra
en best þegar langt er í byggð.“
Metnaður til að gera vel
Rúnar og Sesselja kunna nýja starfinu
sínu vel og horfa bjartsýn til fram-
tíðar, „sem auðvitað eins og ætíð er
óljós í þessu eins og öðru, en okkar
markmið er að þjónusta af kostgæfni
þá ágætu viðskiptavini sem fyrir eru
og veita þeim góða þjónustu. Vonandi
náum við einnig því markmiði okkar
að eignast fleiri. Við erum rétt að fara
af stað með þessa framleiðslu, höfum
gaman af verkefninu og metnað til að
gera vel. Eftirspurn eftir okkar fram-
leiðsluvöru mun svo ráða hvort fyrir
hendi eru möguleikar á stækkkun,“
segir Rúnar. „Við leggjum áherslu
á að um íslenska framleiðslu er að
ræða og hún byggir á áratuga reynslu.
Helluskeifur eru sérsmíðaðar fyrir
íslenska hesta og íslenskar aðstæður,“
segir Rúnar.
/MÞÞ
Framleiða Helluskeifur í óða önn á Skagaströnd:
Horfa til markaðar norðan heiða
– Rúnar Jóhannsson og Sesselja Guðmundsdóttir keyptu fyrirtækið Helluskeifur og starfrækja það á Skagaströnd
„Ætlun okkar er að vinna upp lager að vetrinum sem við svo getum afgreitt úr með skömmum fyrirvara þegar pantanir berast, því framleiðsla á skeifum
er með þeim hætti að á henni er enginn síðasti söludagur,“ segir Rúnar. Myndir / Árni Geir Ingvarsson
Rúnar Jóhannsson og Stefán Kristjánsson á Grýtubakka í Grýtubakkahreppi
skoða Helluskeifur á hlaðinu hjá Stefáni, en hann ásamt eiginkonu sinni
rekur hestaþjónustufyrirtækið Pólarhesta.
„Gneistar af stáli glampar á grjót, glymur í bergi á fjöllum. Hræðumst ekki
hraunholtin ljót, Helluskeifur á öllum.“ Hér er Rúnar á vinnusvæði sínu á
Stefán er að líkindum með síð ustu
mönnum hér á landi til að nota
ávísanir, hann dró upp hefti sitt til
að greiða Rúnari fyrir skeifurnar.
Stefán ánægður með Helluskeifurnar.