Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Þurrkun á hvönn á Suðurlandi
Vantar þurrkunaraðstöðu fyrir hvönn
á tímabilinu 15. júlí – 15. ágúst.
Helst sem næst Vík í Mýrdal.
Vinsamlega hafið samband
ef þið getið aðstoðað mig með þetta.
Haukur gsm 8200 864, haukur@avaxtabillinn.is
Teg. 00045
Litir: Hvítt
Str. 35-42
Verð 13.900
Teg. 25340
Litir: Svartur
Str. 36-42
Verð 10 500
Teg. 51143
Litir: Hvítt/Sva
Str. 35-46
Verð 16.900
Ábyrgjumst gæði
Sígildir klossar
10% staðgreiðsluafsláttur
af öllum skóm
3ja laga Softshell fyrir
dömur og herr
Verð 21.900
rt
25290 - Parma
Litir: Svart, hvít
blátt og rautt
Str. 36-42
Verð 12.600
a í 5 litum
t,
Teg. 25090
Litir: Svart/Hvítt/Blá
Str. 36-42
Verð 14.990
tt
TILBOÐ 19.900
.
Bonito ehf. | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | Sími 568 2878
Til leigu jörðin Þorbrandsstaðir í Vopnafirði
Vopnafjarðarhreppur auglýsir til leigu jörðina Þorbrandsstaði í
Hofsárdal í Vopnafjarðarhreppi.
Leigusamningur verður ótímabundinn. Miðað er við að leigu-
samningur sé frá 1. september 2016.
Íbúðarhúsið er um 242 m2 í góðu ásigkomulagi. Jörðinni
Þorbrandsstaðir fylgir um 30 ha. ræktað land. Hluti af leigu
felur í sér umsjón og viðhald girðinga. Hvorki framleiðsluréttur
né hlunnindi fylgja jörðinni. Útihús fylgja jörðinni sem nýta má
til búskapar.
Umsóknum um jörðina Þorbrandsstaði skal skila til skrifstofu
Vopnafjarðarhrepps Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður eða á net-
fangið skrifstofa@vopnafjardarhreppur.is fyrir 20. júlí nk.
Ólafur Áki Ragnarsson sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Miklar sólbrunaskemmdir eru í túnum í Álftaveri:
Um 20–35% túna skemmd
– Búist við lélegri uppskeru og slökum heyjum
Miklar sólbrunaskemmdir eru
í túnum í Álftaveri í Vestur-
Skaftafellssýslu og bendir allt til
að heyfengur verði af þeim sökum
mjög slakur. Úr þessu er ekki útlit
fyrir að staðan breytist til batnað-
ar. Lítið sem ekkert hefur rignt
á þessum slóðum frá því síðla
vetrar, eða í kringum 20. mars
síðastliðinn.
Kristján Bjarndal Jónsson, jarð-
ræktarráðunautur hjá Búnaðar-
sambandi Suðurlands, fór um svæðið
og skoðaði tún um miðjan júní. Hann
segir að þó svo að rignt hafi lítil-
lega síðan hann var á ferð í Álftaveri
skipti það ekki sköpum, skaðinn er
þegar orðinn. Kristján segir um 20
til 35% túna í Álftaveri skemmd af
völdum sólbruna og þurrka.
Besta leiðin er að bera meira á
„Ég ráðlagði bændum að bera meira
á, það er besta leiðin og ódýrari en
til dæmis að leigja tún annars stað-
ar, slíkt hefur umtalsverðan kostnað
í för með sér og fyrirhöfn,“ segir
Kristján. Sólbruninn jafnar sig
yfirleitt þegar sólmagnið minnkar
og vatnsbúskapur kemst í jafnvægi
og segir Kristján að þótt rótarkerfi
plantnanna verði fyrir þurrkskaða
geti þær náð þeim styrk að plant-
an lifi. Þess séu þó dæmi að sól-
bruni geti jafnast á við versta kal
með þeim afleiðingum að plantan
deyr,“ segir Kristján. Nauðsynlegt
sé einnig að auka fósfór því hann
hefur afgerandi áhrif á rótarkerfið.
Kalíð sé einnig til bóta, það getur
varið plöntuna fyrir meiri skaða
næsta vetur.
Óttast að hey verði í slakara lagi
Kristján segir að nautgripabændur
hafi af því verulegar áhyggjur að
ná ekki kúgæfum heyjum. Líkur séu
á að eitthvað náist eftir sumarið af
meðalheyi í aðra gripi að magni,
en fyrir mjólkurkýr og eldisgripi.
„Þar þarf að gera meiri kröfur en
almennt er gert í íslenskum land-
búnaði, margir bændur leggja ekki
nægilega áherslu á gæði heyja. Ætli
bændur sér að halda góða gripi og
fá góðar afurðir þarf heyið að vera
ágætt. Þetta á við um bæði kúa- og
sauðfjárbúskap, það er til að mynda
nauðsynlegt að gefa ánum gott hey
fyrir og eftir burð og þar til þær
komast út í gróandann,“ segir hann.
Mikið kal á svæðinu í fyrravor
Ljóst er að bændur í Álftaveri muni
í töluverðum mæli leita eftir styrkj-
um úr Bjargráðasjóði. Kristján segir
að mikið kal hafi verið í túnum í
Álftaveri í fyrravor og uppskera
því með minna móti eftir sumarið.
Uppskera var fyrir vikið mun minni
en vanalega og því alls ekki hægt að
miða hana við uppskeru þessa árs.
Nokkrir bændur á svæðinu eru
byrjaðir að heyja og er uppskera
með rýrara móti. Nefnir Kristján
dæmi af bændum í Holti sem fengu
43 rúllur af 4 ha stykki fyrir fjórum
árum, þær urðu 43 árið á eftir, 20
í fyrrasumar og nú í sumar feng-
ust 16 rúllur af þessum 4 ha. „Mér
sýnist að uppskera sé með svipuðu
móti annars staðar á svæðinu,“ segir
Kristján.
/MÞÞ
Miklar sólbrunaskemmdir eru í túnum í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu.
Þessi mynd var tekin fyrir þremur vikum í Norðurhjáleigu. Þar þurfti að
endurrækta 4 ha tún sem var 70-80% brunnið. Mynd / Sæunn Káradóttir
Í Holti í Álftaveri eru tún illa leikin af þurrki. Mynd tekin í byrjun júní. Allt
bendir til þess að heyfengur verði mjög slakur. Mynd / Svana Sigurjónsdóttir