Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Munaðarnes við Ingólfsfjörð: Rekinn hrannast upp og skelfilegt að geta ekki nýtt hann Guðmundur og Sólveig verja öllum sumrum í Munaðarnesi í Ingólfsfirði þrátt fyrir að hafa brugðið búi fyrir ellefu árum. Þeim finnst hvergi betra að vera. Verst þykir þeim að geta ekki nýtt rekann sem er að fylla allar fjör- ur. „Við hættum búskap 2005 en komum hingað og erum hér nánast allt sumarið. Rætur okkar eru hér og erfitt að slíta þær upp.“ Guðmundur segir að þau hafi verið með hátt í 200 kindur síðasta árið sem þau bjuggu auk þess sem hann átti trillu sem hann reri til fiskjar. „Ég seldi trilluna þegar við hættum búskap og satt best að segja fæ ég alltaf smá sting þegar ég sé hana og sakna þess enn að fara á sjóinn.“ Guðmundur og Sólveig búa á Stykkishólmi á veturna og segjast una hag sínum vel en vildu gjarnan hafa meira að gera. Sólveig aðstoðar íbúa á dvalar- heimilinu við hannyrðir en Guð- mundur stokkar upp línur annað slagið milli þess sem hann les bækur. Sala á girðingastaurum úr rekavið dottin niður „Fyrstu árin eftir að við hættum með kindurnar var ég talsvert í að vinna rekavið í girðingastaura en sala á þeim hefur dottið niður vegna inn- flutnings á staurum. Við eigum helling af staurum úti í fjárhúsum sem eru orðnir lauflétt- ir og fínir en við losnum bara ekki við þá. Ég og bræður mínir höfum lengi gælt við þá hugsun að kaupa okkur almennilega sög til að geta sagað rekann í borðvið en ekkert orðið úr því enn og líklega erum við búin að draga það of lengi. Á sama tíma hrannast reki upp hér úti á nesinu og fjaran full af honum og skelfilegt að geta ekki nýtt hann. Ég á orðið haug af sparivið, eða það sem er kallað rauðaviður, af því að ég hef ekki tímt að nota hann í staura og þrátt fyrir að það hafi dregið mikið úr reka síðustu árin var ég að bjarga góðum bol upp í fjöru fyrir nokkrum dögum,“ segir Guðmundur. Sólveig segir leiðinlegt að sjá fjörurnar fulla af við og horfa á verð- mætin í honum grotna niður. „Það litla sem við notum af viðnum fer í að kynda húsið en það sér ekki högg á vatni þrátt fyrir að Guðmundur eyði drjúgum tíma í að kljúfa við í eldinn og að okkur sé aldrei kalt. Það er orðið erfitt að ganga fjörurnar víða og hreinlega hættulegt á köflum þar sem mest er af honum nema maður haldi sig alveg í flæðamálinu.“ /VH Hjónin Guðmundur Gísli Jónsson og Sólveig Stefanía Jónsdóttir frá Mun- aðar nesi við Ingólfsfjörð. Krossneslaug: Sundlaugin í fjörunni Sundlaugin á Krossnesi er staðsett niðri í fjöru, rétt við brimgarðinn og í stórviðrum gengur aldan yfir laugina. Hún er alltaf opin og einn heitasti staðurinn í Árneshreppi. Við laugina er heitur pottur sem íbúar hreppsins sækja mikið á veturna til að slappa af og horfa á stjörnurnar og norðurljósin sem eru engu síður töfrandi en að horfa á miðnætursól- ina kyssa hafsbrúnina norður við Selskersvita á sumarsólstöðum. Byggð 1954 Krossneslaug var byggð fyrir rúmum sextíu árum, árið 1954, af ungmenna- börn lærðu að synda í Árneshreppi, gistu þau í sundlaugarhúsinu í eina til tvær vikur meðan þau lærðu að synda. Sundlaugin er 12 x 6 metrar að stærð. Laugin var gerð upp fyrir allmörg- um árum og hefur verið vel haldið við síðan þá og smám saman er verið að bæta aðstöðuna. Það er kominn heitur pottur og búningsaðstaðan er góð. Hjónin Sigrún Sverrisdóttir og Davíð Már Bjarnason eru umsjónar- menn sundlaugarinnar í Krossnesi. Ein magnaðasta sundlaug landsins Davíð segir að sundlaugin á Kross- nesi sé án efa ein magnaðasta laugin á landinu þegar kemur að staðsetningu og útsýni. „Ég held að ég sé ekkert að ýkja þegar ég segi að sundlaugin sé hún sé orðin heimsfræg. Flestir sem heimsækja hreppinn koma í sund og okkur taldist til að á tveggja mánaða sex þúsund manns í laugina og þar af 320 á einum degi. Að meðaltali komu hingað um 100 manns á dag. Hingað koma líka margir útlending- um sem eru á ferðalagi sem þeir kalla pool hopping og felst í því að fara milli sundlauga. Ég man eftir einum sem var hingað kominn frá Ástralíu til að fara í sund.“ /VH Þrjátíudalastapi er í fjörunni skammt frá sundlauginni í Krossnesi. Sam- kvæmt þjóðsögunni eru þrjátíu ríkis- dalir faldir í stapanum. - með þér alla leið - 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali sími: 695 5520 jon@miklaborg.is Sala jarða og fasteigna Skoða og verðmet jarðir og aðrar eignir um allt land • Fagleg þjónusta löggilts fasteignasala • Góð kynning á eignum í vefmiðlum og dagblöðum • Vönduð ljósmyndataka af eignum, m.a. loftmyndir Einkunnarorð Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi, en mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning allra hlutaðeigandi í viðskiptunum. Hjá okkur geta eigendur fasteigna verið öryggir um að eign þeirra fái hámarkskynningu og einstaka þjónustu. Við leggjum mikla áherslu á að vera áberandi í störfum okkar með auglýsingum í blöðum og á netinu. Sundlaugin á Krossnesi er staðsett niðri í fjöru og rétt við brimgarðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.