Bændablaðið - 07.07.2016, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Arcticus á Hjalteyri hleypir lífi í gamla síldarverksmiðju
Bitafiskur seldur til Noregs og
stór sölusamningur við Kína
Fyrsta sending af bitafiski frá
félaginu Arcticus Sea Product á
Hjalteyri fór til Noregs í liðinni
viku. Í fyrrasumar sendi félagið
bitafisk á markað í Nígeríu en
sá markaður lokaðist og beðið er
átekta. Nú bíða framleiðendur eftir
leyfi frá kínverskum yfirvöldum
um að Arcticus megi flytja inn
vöru sína inn á þann stóra markað.
Fjöldi möguleika í stöðunni
„Eftir að Nígería lokaðist höfum
við unnið hörðum höndum að því
að selja inn á aðra markaði og erum
með í höndunum stóran sölusamn-
ing inn á markað í Kína og eins inn
á hluta af Evrópu, þar sem augum
er sérstaklega beint að fólki með
bakgrunn í Asíu. Það er gríðarleg-
ur áhugi hvarvetna í heiminum eftir
vörum sem teljast hollar og ekki
þykir verra ef þær koma frá Íslandi.
Nú er fyrsta sendingin farin til
Noregs og við bindum miklar vonir
við að Norðmenn taki okkar vöru
opnum örmum. Það er fjöldinn allur
af möguleikum í stöðunni, en tekur
langan tíma að ljúka samningum og
flytja út,“ segir Jóhannes Valgeirsson,
framkvæmdastjóri Arcticus.
Viðtökur á bitafiski í Nígeríu í
fyrrasumar voru góðar, en Jóhannes
segir bjartsýnustu menn ekki þora
að nefna hvenær mögulegt verði að
hefja þangað útflutning að nýju. „Það
er ólíklegt að nokkuð gerist á meðan
olíuverð og ástandið í landinu er með
þeim hætti sem raun ber vitni,“ segir
hann.
Starfsemi Arcticus Sea Product
fer fram í gömlu síldarverksmiðjunni
á Hjalteyri. Húsnæðið er um 800
fermetrar að stærð og hentar vel.
Góður frystiklefi var í húsnæðinu
og skipti sköpum þegar að staðarvali
félagsins kom. Eigendur tóku
húsnæðið allt í gegn og komu
sér upp rúmgóðum og öflugum
þurrkklefa sem gegnir lykilhlutverki
í framleiðslu á harðfiski.
Ódýr, góð og holl vara
Hópurinn á bak við fyrirtækið
þróuðu nýja og annars konar aðferð
við vinnslu á harðfiski en algengast
er. Framleiðsluaðferðin gerir að
verkum að bitafiskurinn er ódýrari
en sambærilegar vörur á markaði og
hafa viðtökur verið einkar góðar, að
sögn Jóhannesar. „Þetta er ódýr, góð
og holl vara og hefur svo sannarlega
fallið í kramið hjá neytendum,“
segir Jóhannes, en rúmlega 80% er
prótein og á Íslandi er örlitlu salti
bætt við, 2,5 g eða svo. „Þannig
vilja Íslendingar hafa sinn bitafisk,
en aftur á móti vilja íbúar í Afríku
sinn fisk saltlausan.“
Töluvert magn er selt innanlands,
en harðfiskinn má fá í verslunum
víða um land, í Bónus, Samkaupum,
KS, N1, Fríhöfninni og víðar og segir
Jóhannes sölu í þeirri síðastnefndu
mjög góða.
Brekka til að byrja með
„Það gengur ágætlega, áhugi er
fyrir hendi og margir möguleikar, en
auðvitað er ekkert launungarmál að
þetta hefur verið talsverð brekka til að
byrja með. Fyrirtækið hefur átt marga
góða að sem sýnt hafa verkefninu
skilning og þolinmæði. Við sjáum nú
glitta í ljósið í gangaendanum, margt
jákvætt er að gerast hjá okkur og við
erum staðráðnir í að koma Arcticus á
góðan stað með þeirri fínu vöru sem
við höfum þróað,“ segir Jóhannes.
Gangi allt eftir samkvæmt
áætlunum segir hann að fyrir
liggi að byggja annan þurrkklefa í
verksmiðjunni til að anna eftirspurn,
„og þá fer nú að laumast bros á
mannskapinn. Við erum í það minnsta
bjartsýnir og horfum jákvæðum
augum fram á veginn eftir þunga og
erfiða fæðingu, sem tók mun lengri
tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir,“
segir Jóhannes.
/MÞÞ
fyrirtækjafánar hátíðarfánar
þjóðfána borðfána bannerar
Njarðarnesi 1 sími 460 4350
Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta -
Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl.
Úrval hjólbarða á betra verði
Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-,
jeppa,- og vörubíladekk í úrvali.
Beinn innflutningur til Akureyrar
Smurþjónusta
(Jason ehf.)
%
afsláttur af öllum dekkjum
til . 201
Handverkfæri
Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412
Staðsetning fyrirtækisins Arcticus Sea Product í gömlu síldarverksmiðjunum á Hjalteyri og sagan að baki þeim