Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Arcticus á Hjalteyri hleypir lífi í gamla síldarverksmiðju Bitafiskur seldur til Noregs og stór sölusamningur við Kína Fyrsta sending af bitafiski frá félaginu Arcticus Sea Product á Hjalteyri fór til Noregs í liðinni viku. Í fyrrasumar sendi félagið bitafisk á markað í Nígeríu en sá markaður lokaðist og beðið er átekta. Nú bíða framleiðendur eftir leyfi frá kínverskum yfirvöldum um að Arcticus megi flytja inn vöru sína inn á þann stóra markað. Fjöldi möguleika í stöðunni „Eftir að Nígería lokaðist höfum við unnið hörðum höndum að því að selja inn á aðra markaði og erum með í höndunum stóran sölusamn- ing inn á markað í Kína og eins inn á hluta af Evrópu, þar sem augum er sérstaklega beint að fólki með bakgrunn í Asíu. Það er gríðarleg- ur áhugi hvarvetna í heiminum eftir vörum sem teljast hollar og ekki þykir verra ef þær koma frá Íslandi. Nú er fyrsta sendingin farin til Noregs og við bindum miklar vonir við að Norðmenn taki okkar vöru opnum örmum. Það er fjöldinn allur af möguleikum í stöðunni, en tekur langan tíma að ljúka samningum og flytja út,“ segir Jóhannes Valgeirsson, framkvæmdastjóri Arcticus. Viðtökur á bitafiski í Nígeríu í fyrrasumar voru góðar, en Jóhannes segir bjartsýnustu menn ekki þora að nefna hvenær mögulegt verði að hefja þangað útflutning að nýju. „Það er ólíklegt að nokkuð gerist á meðan olíuverð og ástandið í landinu er með þeim hætti sem raun ber vitni,“ segir hann. Starfsemi Arcticus Sea Product fer fram í gömlu síldarverksmiðjunni á Hjalteyri. Húsnæðið er um 800 fermetrar að stærð og hentar vel. Góður frystiklefi var í húsnæðinu og skipti sköpum þegar að staðarvali félagsins kom. Eigendur tóku húsnæðið allt í gegn og komu sér upp rúmgóðum og öflugum þurrkklefa sem gegnir lykilhlutverki í framleiðslu á harðfiski. Ódýr, góð og holl vara Hópurinn á bak við fyrirtækið þróuðu nýja og annars konar aðferð við vinnslu á harðfiski en algengast er. Framleiðsluaðferðin gerir að verkum að bitafiskurinn er ódýrari en sambærilegar vörur á markaði og hafa viðtökur verið einkar góðar, að sögn Jóhannesar. „Þetta er ódýr, góð og holl vara og hefur svo sannarlega fallið í kramið hjá neytendum,“ segir Jóhannes, en rúmlega 80% er prótein og á Íslandi er örlitlu salti bætt við, 2,5 g eða svo. „Þannig vilja Íslendingar hafa sinn bitafisk, en aftur á móti vilja íbúar í Afríku sinn fisk saltlausan.“ Töluvert magn er selt innanlands, en harðfiskinn má fá í verslunum víða um land, í Bónus, Samkaupum, KS, N1, Fríhöfninni og víðar og segir Jóhannes sölu í þeirri síðastnefndu mjög góða. Brekka til að byrja með „Það gengur ágætlega, áhugi er fyrir hendi og margir möguleikar, en auðvitað er ekkert launungarmál að þetta hefur verið talsverð brekka til að byrja með. Fyrirtækið hefur átt marga góða að sem sýnt hafa verkefninu skilning og þolinmæði. Við sjáum nú glitta í ljósið í gangaendanum, margt jákvætt er að gerast hjá okkur og við erum staðráðnir í að koma Arcticus á góðan stað með þeirri fínu vöru sem við höfum þróað,“ segir Jóhannes. Gangi allt eftir samkvæmt áætlunum segir hann að fyrir liggi að byggja annan þurrkklefa í verksmiðjunni til að anna eftirspurn, „og þá fer nú að laumast bros á mannskapinn. Við erum í það minnsta bjartsýnir og horfum jákvæðum augum fram á veginn eftir þunga og erfiða fæðingu, sem tók mun lengri tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Jóhannes. /MÞÞ fyrirtækjafánar hátíðarfánar þjóðfána borðfána bannerar Njarðarnesi 1 sími 460 4350 Hjólbarðaþjónusta - Smurþjónusta - Þrif á bílum - vönduð handverkfæri og fl. Úrval hjólbarða á betra verði Fólksbíla-, traktora-, vinnuvéla-, vagna-, jeppa,- og vörubíladekk í úrvali. Beinn innflutningur til Akureyrar Smurþjónusta (Jason ehf.) % afsláttur af öllum dekkjum til . 201 Handverkfæri Ármann sími 896 8462 og Tryggvi 896 412 Staðsetning fyrirtækisins Arcticus Sea Product í gömlu síldarverksmiðjunum á Hjalteyri og sagan að baki þeim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.