Bændablaðið - 07.07.2016, Page 37

Bændablaðið - 07.07.2016, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Minnislisti fjósbyggjandans Þegar hugað er að fjósbyggingum, hvort sem um er að ræða endur- byggingu eða nýbyggingu, er í afar mörg horn að líta og mjög mikil- vægt að gera allt sem hægt er til þess að koma í veg fyrir mistök við framkvæmdina. Árin 2010–2011 var unnið rannsóknaverkefni við Landbúnaðarháskólann sem kall- aðist „Betri fjós“ en verkefni þetta byggði á úttekt á um 30 nýlega byggðum og breyttum fjósum. Þetta verkefni leiddi m.a. í ljós að þrátt fyrir að töluverð reynsla hafi skapast hér á landi við hönnun, byggingu eða breytingu fjósa, þá reyndust öll fjós sem heimsótt voru í því rannsóknaverkefni innihalda einhverja galla. Flesta gallana hefði mátt koma í veg fyrir með meiri þekkingu á hönnun og/eða frágangi við byggingu eða breytingu fjósanna. Fá fjós byggð árlega Skýringuna á þeim mistökum sem fundust við úttekt fjósanna í fram- angreindu verkefni má vafalítið heimfæra upp á smæð markaðarins á Íslandi, en harla erfitt og raun- ar ólíklegt er að hægt sé að fá jafn góða þjónustu við hönnun fjósa og leiðbeiningar við byggingu eða breytingar fjósa hér á landi og kúa- bændur erlendis geta fengið, enda eru nýbyggingar eða breytingar á fjósum hér á landi ekki taldar nema í fáeinum tugum árlega. Margt verið gert Hér á landi hefur þó margt verið gert undanfarna áratugi í þeim tilgangi að miðla fræðslu og þekkingu á þessu sviði. Þannig hafa t.d. verið haldin fjósbyggingarnámskeið reglulega undanfarin 15 ár, þar sem bændur og hönnuðir hafa haft tækifæri til þess að sækja sér nýja þekkingu og læra af reynslu annarra. Tilgangur námskeiðanna hefur fyrst og fremst verið að miðla upplýsingum til verð- andi framkvæmdaaðila um það sem þarf að varast og að hverju þarf að huga svo ekki verði til óþarfa mistök. Námskeið þessi hafa alltaf verið afar vel sótt, en á þeim hefur einnig vaknað áhugi á því að bænd- ur og hönnuðir geti fengið í hendur „verkfæri“ sem geri þá betur færa um að yfirfara teikningar og áætlanir svo líkurnar á því að finna óþarfa mistök aukist og þar með að auð- velda bændunum að takast á við hið mikla og kostnaðarsama verkefni sem það er að byggja nýtt fjós eða breyta fjósi. Skýrslan „Betri fjós“, sem hægt er að hlaða niður af vef Landbúnaðarháskólans (www.lbhi. is), svarar þessari þörf að hluta til en skýrslan er í raun nokkuð ítar- leg handbók með ótal myndum sem sýna ýmis atriði sem vert er að hafa í huga. Fara í fjósaskoðun! Auk þess að sækja sér þekkingu með því að sækja námskeið og lesa grein- ar og skýrslur er alltaf einkar gagn- legt við undirbúning framkvæmda að skoða önnur fjós og framkvæmdir hjá öðrum, til þess að ná utan um sem flesta þætti hinnar nýju framkvæmd- ar og í framhaldi af slíkri undirbún- ingsvinnu að setja hugmyndir á blað ásamt fjóshönnuði. Á þessu stigi framkvæmda þarf að ákveða helstu grunnþætti komandi framkvæmda. Ef um nýbyggingu er að ræða má nefna hér atriði eins og hvers konar mjaltakerfi eigi að nota, hvernig legusvæði kúnna eigi að vera, fóðr- unaraðferðina og fóðrunartækn- ina, fara yfir helstu flutningaleiðir aðfanga, dýra og vinnuafls, hvernig standa eigi að smitvörnum, hvernig gólfgerð eigi að vera í fjósinu, hvar og hvernig standi til að meðhöndla mykjuna og hvernig loftræstingin eigi að vera. Þegar framangreint er valið er afar mikilvægt að skilja á milli þess sem er „gott að vera með“ og þess sem er „nauðsynlegt að vera með“. Allt of oft hækkar byggingar- kostnaður mikið við það eitt að valin er of dýr lausn miðað við eðli ver- kefnisins eða þeirrar framkvæmdar sem er fyrirhuguð. Rýning teikningar Í framhaldi ofangreindrar grunnvinnu er svo gert uppkast eða skissa af fyr- irhugaðri framkvæmd og svo síðar teikning með drögum að framkvæmd- inni. Þegar hún liggur svo fyrir er afar mikilvægt að rýna hana vel, þ.e. fara yfir teikninguna með helstu daglegu og önnur fjósverk í huga. Ég hef oft mælt með því að þegar þessu stigi er náð í hönnunarferlinu að þá sé hrein- lega gráupplagt að bjóða vinum og nágrönnum í „teikningakaffi“ og fá sem flesta til þess að skoða og spyrja út í smáatriðin, sé þetta gert er mjög oft hægt að koma í veg fyrir að ein- hver smávægileg en hvimleið mistök eigi sér stað. Minnislistar góðir Erlendis er oft farin sú leið við yfir- ferð teikninga að notast við eins konar minnislista eða „tékklista“ sem tekur til helstu þekktra mistaka sem koma upp við hönnun, hvort sem um nýbyggingu er að ræða eða breytingu á fjósi. Slíkur listi verður vissulega seint 100% tæmandi, en með því að nota slíkan lista er oft hægt að forða því að mistök verði við hönnun eða frágang, sér í lagi við hönnun á helstu vinnurýmum svo sem mjaltaaðstöðu, mjólkurhúsi og aðstöðurými en langalgengast er að finna hönnunarmistök á þessum rýmum. Fyrsta útgáfa komin Í liðinni viku kom út í fyrsta skipti hér á landi áþekkur minnislisti og þekkist erlendis en hann inniheldur rúmlega 200 spurningar og tekur til helstu rýma í fjósum s.s. mjalta- aðstöðu (bæði hefðbundinnar og mjaltaþjóna), aðstöðurýmis, fóðrunar- aðstöðu, smákálfaaðstöðu, aðstöðu fyrir geldneyti, hvíldar- og göngurými kúa og tækjarýmis. Í minnislistann hefur verið safnað saman spurningum sem lúta að flestum þeim þáttum sem hafa misfarist við hönnun fjósa hér á landi undanfarin ár. Önnur grunnatriði eru sjálfgefin og ekki tekin fyrir. Eins og áður segir verða minnislistar seint 100% tæmandi, en með því að hafa þá rafræna er nokkuð einfalt að bæta við atriðum sem gott er að hafa með og til þess að gera þennan lista betri og betri er mikilvægt að fá ábendingar um það sem í hann vantar og/eða má eyða úr honum. Allar ábendingar ósk- ast sendar til undirritaðs. Þeim sem kunna að hafa áhuga á þessum lista má benda á að hann má hlaða niður af heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnað- arins (www.rml.is) eða heimasíðu Landssambands kúabænda (www. naut.is). Snorri Sigurðsson sns@seges.dk Ráðgjafi hjá SEGES P/S Danmörku Það er í mörg horn að líta þegar bændur fara út í nýbyggingar. Réttur undirbúningur getur skipt sköpum um gæði framkvæmdarinnar. Mynd / ÁÞ Spánarsnigill, (Arion lusitanicus) sást hér fyrst með vissu árið 2003 og síðan hefur hans reglulega orðið vart víðs vegar um landið. Upprunaleg heimkynni hans eru á Íberíuskaganum, þ.e. vestur- hluta Spánar, Portúgal og Suður- Frakklandi. Þar hefur hann ekki verið til vandræða enda loftslag heitt og þurrt sem er fremur óhagstætt sniglum og náttúruleg- ir óvinir halda honum í skefjum. Sniglar eru sem kunnugt er frem- ur hægfara og þurfa að reiða sig á aðra ef þeir hyggja á langferðir. Slímug egg og örlitlir sniglar geta loðað við dýr og borist þannig milli staða en útbreiðsla hans norður eftir Evrópu er fyrst og fremst af mannavöldum. Upp úr 1960 varð hans vart nokkuð víða utan upp- runalegra heimkynna, t.d. á Ítalíu og í Sviss. Með auknum milliríkja- viðskiptum á plöntum í pottum, hafa egg og sniglar tekið sér far sem laumufarþegar og dreifst víða. Árið 1975 sást spánarsnigill á Skáni í Svíþjóð, í Noregi árið 1988, og nú er hann útbreiddur um öll Norðurlönd, þar með talin Ísland og Færeyjar. Svalt og rakt loftslag í norðvestanverðri Evrópu virð- ist henta tegundinni vel og hefur hann náð að fjölga sér hratt þar sem hann hefur komið sér fyrir og hefur víða gert mikinn usla í görðum. Getur orðið allt að 15 cm langur Spánarsnigillinn er auðþekktur af stærð sinni og rauðbrúnum lit. Hann getur orðið allt að 15 cm að lengd en er þó yfirleitt minni en það á norður- slóðum, en þó alltaf töluvert stærri en hérlendir sniglar. Hann myndar ekki kuðung og skilur eftir sig slímuga slóð þar sem hann fer um. Auðveldast er að koma auga á sniglana að kvöld- og næturlagi þar sem þeir fela sig oft í skugga yfir daginn. Verpir allt að 400 eggjum Lífsferill spánarsnigla tekur eitt ár. Hann verpir eggjum síðsumars, eggin klekjast út og ungviðið yfir- vetrar undir laufblöðum eða öðrum einangruðum stöðum. Fullvöxnu dýrin drepast aftur á móti á haustin. Að vori skríða svo litlu sniglarnir úr fylgsnum sínum, éta sig stóra og feita, verpa eggjum og hringnum er lokað. Spánarsnigillinn er tvíkynja, hann tímgar sig með öðrum snigl- um en getur líka frjóvgað sig sjálfur ef svo ber undir. Hann verpir við góðar aðstæður allt að 400 eggjum á varptímanum þannig að viðkom- an getur orðið ansi mikil. Á hinum Norðurlöndunum sveiflast fjöldi spánarsnigla nokkuð milli ára, minnst er af þeim þegar frýs vel á snjólausa jörð. Broddgeltir, krákur og froskar éta snigla og aðstoða við að halda þeim í skefjum, en þessi dýr eru jú sjaldséð hér og hjálpa okkur varla. Kvikindi sem eirir fáu Spánarsnigillinn er gráðug alæta. Hann étur plöntur, plöntuleifar, ýmsan lífrænan úrgang, t.d. hunda- skít og líka dauða og lifandi snigla. Efst á óskalistanum eru lyktsterkar plöntur, t.d kryddjurtir og flauels- blóm. Skaðsemi spánarsnigilsins er ekki eingöngu fólgin í því að hann skemmir gróðurinn okkar og sóðar út með slímslóð sinni. Hann útrýmir líka öðrum sniglum þar sem hann nær fótfestu og raskar þannig nátt- úrulegu jafnvægi. Í Skandinavíu eru taldar líkur á að hann geti tímgast með skyldum þarlendum tegundum og jafvel myndað frjóa blendinga. Af framansögðu er ljóst að við þurfum að takmarka útbreiðslu spánarsnigilsins eins og kostur er. Spánarsnigillinn berst oftast milli svæða af mannavöldum með plöntum en getur einnig borist með jarðvegi og hlutum sem komast í snertingu við jarðveg. Því þurfa plöntufram- leiðendur og söluaðilar að tryggja að söluvara þeirra sé laus við þennan skaðvald. Það er hægt að gera með reglubundnu eftirliti, hreinlæti og sótthreinsun ræktunarsvæða milli ára. Verði plöntuframleiðendur/plöntu- salar varir við snigla í plöntunum ber þeim að farga þeim tafarlaust og gera aðrar viðeigandi ráðstafanir til að hindra frekara smit. Ráð til að stöðva spánarsnigilinn Verði almennir garðeigendur varir við spánarsnigla ættu þeir líka að reyna að hefta útbreiðslu þeirra. Sniglaeitur hefur einhverja virkni og virðist frekar duga á nýklakin dýr en fullorðin. Það ætti því frekar að nota síðsumars og á haustin. Áhrifaríkasta leiðin virðist þó vera að tína sniglana þegar þeir eru á ferli og farga þeim. Ekki dugar að höggva þá með verk- færum því þroskuð egg í búknum geta náð að klekjast út. Sniglar sækja í bjór (líka léttöl) og hægt er að útbúa gildrur með því að grafa niður ílát og hella í það bjór. Snigillinn skríður þá í bjórinn og drukknar. Einnig má lokka að snigla með því að skilja eftir sniglahræ, ávexti eða gæludýrafóður á skuggsælum stað og tína þá svo upp og farga þegar þeir mæta. Þar sem spánarsnigillinn er nýbúi á Íslandi er óvíst hversu útbreiddur og alvarlegur skaðvaldur hann getur orðið. Frostkaldir vetur ættu að öllum líkindum að takmarka fjölda þeirra en við ættum þó af fremsta megni að tak- marka útbreiðsluna. Með samstilltu átaki plöntuframleiðenda, plöntusala og garðeigenda ætti að vera hægt að stöðva frekari útbreiðslu og sjálfsagt að reyna að útrýma honum þótt litlar líkur séu á að það takist. Nánari upplýsingar Matvælastofnun og Umhverfis- stofnun ætla að safna saman og miðla upplýsingum um spánarsnigil til þess að auðvelda bæði almennum garð- eigendum og plöntuframleiðendum að glíma við þennan vágest. Á heimasíðu Náttúru fræði- stofnunar er að finna upplýsingar um spánarsnigla og þar er skorað á þá sem finna spánarsnigla að koma upplýsingum til stofnunarinnar til að hægt sé að kortleggja útbreiðslu tegundarinnar. Helstu heimildir: Aarild Andersen 2009. Iberia- skogsnegl – biologi og bekjempelse. Bioforsk fokus 4(2) 112-113, 2009. María Ingimarsdóttir og Erling Ólafsson 2005. Spánarsnigill finnst á Íslandi því miður. Náttúrufræðingurinn 73 (3-4) bls. 75-78, 2005. Spánarsnigill – óboðinn gráðugur gestur Helgi Jóhannesson garðyrkjuráðunautur RML helgi@rml.is Spánarsnigillinn er gráðug alæta og getur náð allt að 15 cm lengd. Hann étur plöntur, plöntuleifar, ýmsan lífrænan úrgang, t.d. hundaskít og líka dauða og lifandi snigla. Mynd / Hulda Guðmundsdóttir

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.