Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 39

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 ur og njóta þess.“ Á Losætra getur almenningur leigt sér aðgang, eins konar skóla- garða-fyrirkomulag og þar má einnig finna býflugnabú og krydd- jurtagarð. „Við erum á stað þar sem ætti í raun ekki að vera hægt að rækta nokkurn skapaðan hlut og hér er að sjálfsögðu töluverð hljóðmeng- un. Stofnun fyrir lífræna ræktun (NIBIO) rannsakaði svæðið í nokk- ur ár áður en verkefnið hófst og er með í því áfram. Það sýnir sig að það eru góð gæði á þeim matvælum sem við framleiðum hér. Plönturnar taka vissulega í sig CO2 og svifryk- ið fer ekki í burtu svo það er gott að skola grænmetið áður en það er borðað en að sama skapi sýna mæl- ingar að maturinn er vel nothæfur þrátt fyrir staðsetningu svæðisins.“ Verkefnið vindur upp á sig Andreas segist ekki geta kvartað yfir félagslega þætti verkefnisins en hann hefur varla átt stund einn með sjálfum sér síðan verkefnið hófst, svo mikill er áhugi fyrir því og allir tilbúnir að leggja sitt af mörkum. „Skólagarðafyrirkomulagið er ekki nýtt af nálinni og er þetta fimmta árið sem það er í boði. Um 100 manns eru með skika hér og nokkrir leikskólar eru líka með og rækta sitt eigið grænmeti. Það er í raun einfalt að rækta og maður þarf ekki svo mikið til að ná því góðu sem maður er að gera,“ segir Andreas og bendir á sem dæmi að hann rækti kartöflur í fötum á svæðinu. Fyrir stuttu hófu samtökin Futurefarmers Flatbread Society byggingu á bökunarhúsi í skúlpt- úrlíki og gróðurhúsi þar sem bakað verður brauð með hráefni af korn- akrinum á Losætra. „Fólki finnst það skemmtilegt og spennandi að við notum kon- unglega kúamykju sem áburð sem kemur frá sveitabæ konungshjón- anna. Einnig getum við státað af að nota korg frá Kaffibrennslunni hér nálægt okkur og matarúrgang sem kokkar með Michelin-stjörnur hafa handleikið. Allir þessir litlu þættir eru með í að vekja athygli á verk- efninu sem ég og allir aðstandendur þessarar vinnu erum afar ánægð með hvernig til hefur tekist hingað til.“ /ehg Almenningur hefur tekið verkefninu afar vel og hefur Andreas nóg að gera við að leiðbeina fólki við sveita- Skóla- og leikskólabörn frá svæðinu eru dugleg að koma í „sveitina“ á Losætra og rækta jafnvel sitt eigið Skógardagurinn mikli var haldinn í blíðskaparveðri á Hallormsstað nýverið og nú í tólfta sinn. Sú breyting var gerð að þessu sinni að sauðfjárbændur á Héraði og Fjörðum tóku þátt í sjálfum Skógardeginum en fram að þessu hafa þeir grillað lambakjöt ofan í gesti skógarins kvöldið áður. Að sjálfsögðu var heilgrillaða nautið líka á sínum stað og pylsur í hundraðavís Ólafur Árni Mikaelsson hreppti Íslandsmeistaratitilinn í skógarhöggi sem jafnan er efnt til á Skógardeginum. Í öðru sæti lenti Bjarki Sigurðsson og Kristján Már Magnússon í því þriðja. Í skógarhlaupinu kom Hjalti Þórhallsson fyrstur í mark í karla- flokki og Meredith Cricco í kvenna- flokki. Margt fleira var á dagskránni, m.a bauð Ólafur Oddsson, fræðslu- fulltrúi Skógræktarinnar, upp á leið- sögn í tálgun og reyndu um 300–400 manns fyrir sér í þeirri list. Norski keðjusagarlistamaðurinn Arne Askeland lék listir sínar, Ketilkaffið og lummurnar runnu ljúflega niður og einnig fengu krakkar deig á prik og grilluðu sér ormabrauð yfir eldi. Sömuleiðis var teymt undir börnum og ýmiss konar skemmtiatriði á palli. Verði landsviðburður Skógardagurinn mikli hefur fyrir löngu fest sig í sessi á Hallormsstað. Hin nýja stofnun, Skógræktin, stefnir að því að slíkur dagur verði haldinn í öllum landshlutum á komandi árum, jafnvel að þegar næsta sumar verði Skógardagurinn mikli landsviðburð- ur sem haldin verði samtímis um allt land. Skógardagurinn mikli í sól og blíðu á Hallormsstað Hlauparar á öllum aldri taka þátt í skógarhlaupinu á Skógardeginum mikla

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.