Bændablaðið - 07.07.2016, Page 40

Bændablaðið - 07.07.2016, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Nú líður að lokum umfjöllun- ar um hina misvinsælu Sveip- jurtaætt. Í fyrra var hér skrifað um geitakálið (BBL. 11. tbl. 2015) og risahvannirnar (BBL. 15. tbl. 2015). Geitakálið er afar ágengt og óvinsælt af garðeigendum vegna þess að það er gjörsamlega ómögu- legt að losna við það þar sem það hefur náð fótfestu. Gerir sig samt vel sem botngróður í skógarlundum og er ágætis beitarjurt. Risahvannirnar sem hafa verið kallaðar „hræði- legar“, kannski óverðskuldað og vegna þess þekkingarskorts sem sífellt elur á óttanum og settar á útrýmingar- og bannlista þar til settra yfirvalda. Þeim er því sleppt hér en nýliðinn fagri, skógarkerfill, og íslensku hvannirnar sæhvönn og geitla kallaðar til sögunnar. Skógarkerfillinn Anthriscus sylvestris, er útbreiddur um mestan part Evrópu. Á Íslandi var fyrst getið um hann á þriðja ára- tug liðinnar aldar. Uppruni hans er í fjallendi Mið-Evrópu og austur um fjöll og dali Evrasíu. Útbreiðsla hans hefur verið stöðug vestur og norður á bóginn frá því að sögur hófust. Reyndar er hann nú orðið að finna í flestum þeim löndum heims sem byggð eru fólki og bjóða upp á kalda vetur, því skógarkerfillinn þarf glöggan mun á sumri og vetri. Hann þrífst ekki í hitabeltinu en spjarar sig í fjöllunum umhverfis Miðjarðarhaf. Skógarkerfillinn er að upplagi til tvíær jurt, nánar skil- greint einbær líkt og ætihvönnin. Það er að segja að flestar plönturn- ar deyja eftir að hafa blómgast og borið fræ einu sinni. En oftar en ekki mynda plönturnar hliðarbrum á rótarhálsinum og geta þannig treint sér ævina og blómgast nokk- ur sumur til viðbótar. Sjaldan verða plönturnar þó langlífar, varla meira en þriggja til fjögurra ára. Trójuhestar Á síðustu árum hefur skógarkerf- illinn tekið Ísland með trompi. Um miðja síðustu öld var hann sjaldséð- ur. Sást fyrst og fremst við Eyjafjörð. Á þessum tíma man ég bara eftir tveim brúskum á höfuðborgarsvæð- inu. En líklega hafa margir garð- eigendur fallið fyrir fegurð hans og glæsileika og fært hann í garðana sína vítt um landið. Plantan er form- fögur, með fagurgræn, fjöðruð blöð og yfir þeim svífa hvítir blómsveip- ir, liprir og léttir eins og ballerínur. Því fór að bera á honum á görðum víða um land á árunum milli 1950- 1960. Líklega vegna umsagnar – án viðvörunar – í Garðagróðri þeirra Ingólfs Davíðssonar og Ingimars Óskarssonar sem kom fyrst út árið 1949. Þar er sagt að hann þrífist ágætlega. Það gæti hafa kveikt áhuga hjá fólki sem leitaði eftir fal- legum og sérlega harðgerðum garð- jurtum. Enn eru meira að segja til garðaafbrigði af honum sem seld eru hér í garðplöntusölum. Til dæmis ‘Ravenswing’ með bronsslikjuð- um og purpurarauðum blöðum og fölbleikum blómsveipum sem svífa yfir honum eins og stjörnuregn. En hann, sem og önnur garðaafbrigði, eru ekki öll sem þau eru séð því þau geta líka þroskað fræ og sáð sér út ekkert síður en aðaltegundin. Og bara um fjórðungur afkomendanna fær útlit og yfirbragð móðurinnar. Afgangurinn verður bara venjuleg- ur skógarkerfill. Því þarf að vera á varðbergi ef slíkar fegurðardísir eru fluttar í garðinn, þær eru trójuhestar. Til að koma í veg fyrir að þær sái sér út þarf að klippa alla blómsveipi burt um leið og blómin byrja að láta á sjá. Það lengir líka ævi plöntunnar og bætir í blaðskrúðið. Útlendingahersveitin Um og upp úr 1980 varð eins konar sprenging í útbreiðslu skógarkerf- ilsins hér á suðvesturhorni landsins. Alaskalúpínan og skógarkerfillinn hittust. Það varð ást við fyrstu sýn. Hönd í hönd fara þau nú um holt og hæðir og skrýða landið ýmist í bláum eða hvítum lit fyrripart sum- arsins. Margir agnúast út í þessa útlendingahersveit og eru aldeilis ekki á því að þau megi fá þegn- rétt í íslensku flórunni. Sumum þykir þjóðlegra, eftir að íslensku holtin voru rúin birkiskógunum og blómgróðri hans, að landið sé látið halda nekt sinni, vindbörð- um og nauðnöguðum holtagróðri sem dregur fram lífið við sult og seyru eins og kvótaeignarlaus alþýða landsins. Feitu frænkunni frá Ameríku og hinum fríða sveini úr dölum Evrópu er því ekki alveg jafn vel tekið af öllum þótt þau skilji eftir sig þykkan og frjóan gróðursvörð fólki og framtíð til sældar. Á löngum tímaskala láta þau undan og hleypa nýjum og kröft- ugari gróðri að. Skógar og akrar koma í þeirra stað sem nauðsynleg auðlind fyrir vaxandi þjóð. Landinu er alveg sama og ferðamenn munu kæra sig kollótta. Hálendið verð- ur áfram bert, sandarnir svartir en barnabörn okkar og barnabarnabörn munu ekki sakna berangursins í byggðum landsins eins og hann var þegar flest okkar sem eldri erum vorum að alast upp. Þótt beitt sé skæruhernaði og efnavopnum á þetta par, eins og spurnir hafa verið af á síðustu árum, mun það hafa lítið að segja. Hvergi sér högg á vatni. Því er eina ráðið að sætta sig við orðinn hlut. Taka þeim bara opnum örmum og fylgja þeim eftir með friðsömum hætti og á skynsamlegan máta. Það er samt ekki heiglum hent að ráða niðurlögum skógarkerfils eftir að hann hefur numið land ein- hvers staðar. Sláttur og beit heldur honum nokkuð í skefjum. Hann þolir illa traðk stórgripa og erlendis halda stærri beitardýr, t.d. elgir og dádýr, aftur af honum. Fræ hans eru smá og berast auðveldlega um með vatni og vindum. Þau taka sér líka far með feldi dýra, fatnaði og farartækjum. Þau spíra að vori eftir kaldan vetur. Vinsæll víðast hvar Erlendis er skógarkerfill í miklum metum meðal náttúruunnenda og jafnvel má sjá hann í stórum breið- um sem undirgróður og bakgrunn í stórum skrúðgörðum, jafnvel þeim af fínasta taginu. Í nágrannalöndum okkar þar sem blómum skreyttar „miðsumarstangir“ eru reistar á jónsmessunni spila skógarkerfill og blágresi oft aðalhlutverkið í blómskrúðinu. Í breskum görðum kallast hann „Queen Anne’s lace“, þótt „cow parsley“ sé algengara að nota um hann úti í sveitum. Á þýsku er algengasta heitið „dalakerfill“ (Wiesen-Kerbel). Þar í landi þykir hann fínn, nema þegar hann fer í tún. Sænska heitið er „hundkäx“ en á norsku „hundkjeks“. Útbreiðsla hans hefur líka aukist í þeim lönd- um á síðustu árum, rétt eins og hér. Það rekja sumir til breyttra búskap- arhátta, þ.e. að útibeit nautgripa upp á gamla mátann hefur mikið dregist saman og í staðinn er fóðrið borið að skepnunum á stórbúum. Notagildi skógarkerfilsins hefur verið lítið í ræktunarsögunni. Blómin mátti nota til að lita gult ef álún var sett með í suðuna. Á nokkrum stöðum borðuðu menn blöðin þegar þau fóru að sjást á vorin, þá soðin með öðrum mat. Og sem lækningajurt þótti hann duga vel til að lækna „fingrakveisu“, þ.e. liðverki í fingr- um og var því sumstaðar kallaður „kveisugras“ þess vegna. Allur er varinn góður Skógarkerfill er sláandi líkur tveim eitruðum sveipjurtategundum og fólk hefur verið varað við að nota eða nærast á skógarkerfli eða plöntum sem eru líkar honum úti í náttúrunni. Þessar tvær tegundir eru óðurt, Conium maculatum og beiskjujurt, Cicuta virosa. Báðar vaxa þær í nágrannalöndunum en hafa enn ekki borist hingað til lands. Óðurtin er sú tegund sem notuð var í eitrið sem Sókratesi var byrlað forð- um daga. Ekki þarf mikið af henni til að drepa mann en dauðdaginn verður tiltölulega átakalaus. Líkist skógarkerflinum mjög en þekkist best á að hún er rauðflekkótt á stilkunum og af henni leggur mjög óþægilega lykt. Beiskujurtin vex í vatni og hefur sérstaklega hola og loftríka stólparót sem oft slitnar upp og flýtur á milli staða. Blöð hennar minna meira á blöð skessujurtar- innar en skógarkerfilsins og af allri plöntunni leggur smeðjulega sellerí- lykt. Hún er mjög eitruð og veldur kvalafyllra dauðastríði en óðurtin. Sæhvönn Ligusticum scotium, vex við strend- ur landsins. Yfirleitt í hólmum, eyjum eða klettaskorum við sjó þar sem sauðfé kemst ekki að. Hana er helst að finna um vestanvert landið en á stöku stað í öðrum landshlut- um. Sæhvönnin er ein af stærri jurtunum í Íslandsflórunni. Hún er fjölær, snotur, fagurgræn með þrí- fingruðum blöðum sem aftur skipt- ast í þrjá flipa hvert. Blómin eru í sveip, nokkuð stór með hvítum eða rauðmenguðum krónublöðum. Oft eru blað- og blómstilkar líka ögn rauðleitir. Sæhvönn er skemmtilegt að rækta sem kryddjurt. Bragðið af henni er sterkt og minnir allt í senn á skessujurt, steinselju og ætihvönn. Auðveld í ræktun, en getur sáð sér út í görðum ef ekki er höfð gát á. Samt ekki til neinna ama og hún nær ekki að komast á legg í grónu landi. Sem kryddjurt er hún góð söxuð út á fiskrétti rétt eins og steinselja. Hún gefur góðan keim í hrá salöt. Sem lyfjajurt var sæhvönnin áður notuð til að bæta meltinguna, stemma vind, róa taugarnar, draga úr kvennakvillum, lina gikt og háls- verki.Fræin má steyta og nota í stað pipars. Geithvönn eða geitla Angelica sylvestris, er öll miklu nettari um sig en ætihvönn. Þær eru í sömu ættkvísl og líkjast mikið hvor annarri. Geithvönnin er samt öll í smærri skala, þurrari á að sjá og blað- og blómstilkar með áber- andi rauðum lit. Rauða litarins gætir einnig í blómsveipunum. Þeir eru líka smærri og flatari en á ætihvönn- inni. Geithvönnina má finna víða um land. Gjarna í skóglendi, deigu valllendi og annars staðar þar sem hún finnur skjól og frið fyrir beit. Geithvönnin er vel æt og nota má hana á sama máta og ætihvönn. En bragðið af geithvönninni er fremur rammt og óviðfelldið. Sums staðar voru samt blöðin matreidd snemma á vorin til að bæta skyrbjúg og fyr- irbyggja hann. Einnig var plantan notuð í te, bæði rót og blöð, þurrk- uð sem óþurrkuð, til að vinna á svipuðum vanda og getið var um í umfjölluninni um sæhvönnina. Stilkana mátti sjóða í sykurlegi rétt eins og ætihvannastilka og nota sem sælgæti. Fróðleiksbásinn Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur Hin misvinsæla Sveipjurtaætt – sjötta og síðasta grein

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.