Bændablaðið - 07.07.2016, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Nú líður að lokum umfjöllun-
ar um hina misvinsælu Sveip-
jurtaætt. Í fyrra var hér skrifað
um geitakálið (BBL. 11. tbl. 2015)
og risahvannirnar (BBL. 15. tbl.
2015).
Geitakálið er afar ágengt og
óvinsælt af garðeigendum vegna
þess að það er gjörsamlega ómögu-
legt að losna við það þar sem það
hefur náð fótfestu. Gerir sig samt vel
sem botngróður í skógarlundum og
er ágætis beitarjurt. Risahvannirnar
sem hafa verið kallaðar „hræði-
legar“, kannski óverðskuldað og
vegna þess þekkingarskorts sem
sífellt elur á óttanum og settar á
útrýmingar- og bannlista þar til
settra yfirvalda. Þeim er því sleppt
hér en nýliðinn fagri, skógarkerfill,
og íslensku hvannirnar sæhvönn og
geitla kallaðar til sögunnar.
Skógarkerfillinn
Anthriscus sylvestris, er útbreiddur
um mestan part Evrópu. Á Íslandi
var fyrst getið um hann á þriðja ára-
tug liðinnar aldar. Uppruni hans er
í fjallendi Mið-Evrópu og austur
um fjöll og dali Evrasíu. Útbreiðsla
hans hefur verið stöðug vestur og
norður á bóginn frá því að sögur
hófust. Reyndar er hann nú orðið að
finna í flestum þeim löndum heims
sem byggð eru fólki og bjóða upp
á kalda vetur, því skógarkerfillinn
þarf glöggan mun á sumri og vetri.
Hann þrífst ekki í hitabeltinu en
spjarar sig í fjöllunum umhverfis
Miðjarðarhaf. Skógarkerfillinn er
að upplagi til tvíær jurt, nánar skil-
greint einbær líkt og ætihvönnin.
Það er að segja að flestar plönturn-
ar deyja eftir að hafa blómgast og
borið fræ einu sinni. En oftar en
ekki mynda plönturnar hliðarbrum
á rótarhálsinum og geta þannig
treint sér ævina og blómgast nokk-
ur sumur til viðbótar. Sjaldan verða
plönturnar þó langlífar, varla meira
en þriggja til fjögurra ára.
Trójuhestar
Á síðustu árum hefur skógarkerf-
illinn tekið Ísland með trompi. Um
miðja síðustu öld var hann sjaldséð-
ur. Sást fyrst og fremst við Eyjafjörð.
Á þessum tíma man ég bara eftir
tveim brúskum á höfuðborgarsvæð-
inu. En líklega hafa margir garð-
eigendur fallið fyrir fegurð hans og
glæsileika og fært hann í garðana
sína vítt um landið. Plantan er form-
fögur, með fagurgræn, fjöðruð blöð
og yfir þeim svífa hvítir blómsveip-
ir, liprir og léttir eins og ballerínur.
Því fór að bera á honum á görðum
víða um land á árunum milli 1950-
1960. Líklega vegna umsagnar – án
viðvörunar – í Garðagróðri þeirra
Ingólfs Davíðssonar og Ingimars
Óskarssonar sem kom fyrst út árið
1949. Þar er sagt að hann þrífist
ágætlega. Það gæti hafa kveikt
áhuga hjá fólki sem leitaði eftir fal-
legum og sérlega harðgerðum garð-
jurtum. Enn eru meira að segja til
garðaafbrigði af honum sem seld eru
hér í garðplöntusölum. Til dæmis
‘Ravenswing’ með bronsslikjuð-
um og purpurarauðum blöðum og
fölbleikum blómsveipum sem svífa
yfir honum eins og stjörnuregn. En
hann, sem og önnur garðaafbrigði,
eru ekki öll sem þau eru séð því þau
geta líka þroskað fræ og sáð sér út
ekkert síður en aðaltegundin. Og
bara um fjórðungur afkomendanna
fær útlit og yfirbragð móðurinnar.
Afgangurinn verður bara venjuleg-
ur skógarkerfill. Því þarf að vera á
varðbergi ef slíkar fegurðardísir eru
fluttar í garðinn, þær eru trójuhestar.
Til að koma í veg fyrir að þær sái
sér út þarf að klippa alla blómsveipi
burt um leið og blómin byrja að láta
á sjá. Það lengir líka ævi plöntunnar
og bætir í blaðskrúðið.
Útlendingahersveitin
Um og upp úr 1980 varð eins konar
sprenging í útbreiðslu skógarkerf-
ilsins hér á suðvesturhorni landsins.
Alaskalúpínan og skógarkerfillinn
hittust. Það varð ást við fyrstu sýn.
Hönd í hönd fara þau nú um holt
og hæðir og skrýða landið ýmist í
bláum eða hvítum lit fyrripart sum-
arsins. Margir agnúast út í þessa
útlendingahersveit og eru aldeilis
ekki á því að þau megi fá þegn-
rétt í íslensku flórunni. Sumum
þykir þjóðlegra, eftir að íslensku
holtin voru rúin birkiskógunum
og blómgróðri hans, að landið sé
látið halda nekt sinni, vindbörð-
um og nauðnöguðum holtagróðri
sem dregur fram lífið við sult og
seyru eins og kvótaeignarlaus
alþýða landsins. Feitu frænkunni
frá Ameríku og hinum fríða sveini
úr dölum Evrópu er því ekki alveg
jafn vel tekið af öllum þótt þau
skilji eftir sig þykkan og frjóan
gróðursvörð fólki og framtíð til
sældar. Á löngum tímaskala láta þau
undan og hleypa nýjum og kröft-
ugari gróðri að. Skógar og akrar
koma í þeirra stað sem nauðsynleg
auðlind fyrir vaxandi þjóð. Landinu
er alveg sama og ferðamenn munu
kæra sig kollótta. Hálendið verð-
ur áfram bert, sandarnir svartir en
barnabörn okkar og barnabarnabörn
munu ekki sakna berangursins í
byggðum landsins eins og hann var
þegar flest okkar sem eldri erum
vorum að alast upp.
Þótt beitt sé skæruhernaði og
efnavopnum á þetta par, eins og
spurnir hafa verið af á síðustu árum,
mun það hafa lítið að segja. Hvergi
sér högg á vatni. Því er eina ráðið
að sætta sig við orðinn hlut. Taka
þeim bara opnum örmum og fylgja
þeim eftir með friðsömum hætti og
á skynsamlegan máta.
Það er samt ekki heiglum hent
að ráða niðurlögum skógarkerfils
eftir að hann hefur numið land ein-
hvers staðar. Sláttur og beit heldur
honum nokkuð í skefjum. Hann
þolir illa traðk stórgripa og erlendis
halda stærri beitardýr, t.d. elgir og
dádýr, aftur af honum. Fræ hans
eru smá og berast auðveldlega um
með vatni og vindum. Þau taka sér
líka far með feldi dýra, fatnaði og
farartækjum. Þau spíra að vori eftir
kaldan vetur.
Vinsæll víðast hvar
Erlendis er skógarkerfill í miklum
metum meðal náttúruunnenda og
jafnvel má sjá hann í stórum breið-
um sem undirgróður og bakgrunn í
stórum skrúðgörðum, jafnvel þeim
af fínasta taginu. Í nágrannalöndum
okkar þar sem blómum skreyttar
„miðsumarstangir“ eru reistar á
jónsmessunni spila skógarkerfill
og blágresi oft aðalhlutverkið í
blómskrúðinu. Í breskum görðum
kallast hann „Queen Anne’s lace“,
þótt „cow parsley“ sé algengara að
nota um hann úti í sveitum. Á þýsku
er algengasta heitið „dalakerfill“
(Wiesen-Kerbel). Þar í landi þykir
hann fínn, nema þegar hann fer í
tún. Sænska heitið er „hundkäx“ en
á norsku „hundkjeks“. Útbreiðsla
hans hefur líka aukist í þeim lönd-
um á síðustu árum, rétt eins og hér.
Það rekja sumir til breyttra búskap-
arhátta, þ.e. að útibeit nautgripa upp
á gamla mátann hefur mikið dregist
saman og í staðinn er fóðrið borið að
skepnunum á stórbúum. Notagildi
skógarkerfilsins hefur verið lítið
í ræktunarsögunni. Blómin mátti
nota til að lita gult ef álún var sett
með í suðuna. Á nokkrum stöðum
borðuðu menn blöðin þegar þau
fóru að sjást á vorin, þá soðin með
öðrum mat. Og sem lækningajurt
þótti hann duga vel til að lækna
„fingrakveisu“, þ.e. liðverki í fingr-
um og var því sumstaðar kallaður
„kveisugras“ þess vegna.
Allur er varinn góður
Skógarkerfill er sláandi líkur tveim
eitruðum sveipjurtategundum og
fólk hefur verið varað við að nota
eða nærast á skógarkerfli eða
plöntum sem eru líkar honum úti
í náttúrunni. Þessar tvær tegundir
eru óðurt, Conium maculatum og
beiskjujurt, Cicuta virosa. Báðar
vaxa þær í nágrannalöndunum en
hafa enn ekki borist hingað til lands.
Óðurtin er sú tegund sem notuð var í
eitrið sem Sókratesi var byrlað forð-
um daga. Ekki þarf mikið af henni
til að drepa mann en dauðdaginn
verður tiltölulega átakalaus. Líkist
skógarkerflinum mjög en þekkist
best á að hún er rauðflekkótt á
stilkunum og af henni leggur mjög
óþægilega lykt. Beiskujurtin vex í
vatni og hefur sérstaklega hola og
loftríka stólparót sem oft slitnar upp
og flýtur á milli staða. Blöð hennar
minna meira á blöð skessujurtar-
innar en skógarkerfilsins og af allri
plöntunni leggur smeðjulega sellerí-
lykt. Hún er mjög eitruð og veldur
kvalafyllra dauðastríði en óðurtin.
Sæhvönn
Ligusticum scotium, vex við strend-
ur landsins. Yfirleitt í hólmum,
eyjum eða klettaskorum við sjó þar
sem sauðfé kemst ekki að. Hana er
helst að finna um vestanvert landið
en á stöku stað í öðrum landshlut-
um. Sæhvönnin er ein af stærri
jurtunum í Íslandsflórunni. Hún er
fjölær, snotur, fagurgræn með þrí-
fingruðum blöðum sem aftur skipt-
ast í þrjá flipa hvert. Blómin eru í
sveip, nokkuð stór með hvítum eða
rauðmenguðum krónublöðum. Oft
eru blað- og blómstilkar líka ögn
rauðleitir. Sæhvönn er skemmtilegt
að rækta sem kryddjurt. Bragðið af
henni er sterkt og minnir allt í senn
á skessujurt, steinselju og ætihvönn.
Auðveld í ræktun, en getur sáð sér
út í görðum ef ekki er höfð gát á.
Samt ekki til neinna ama og hún nær
ekki að komast á legg í grónu landi.
Sem kryddjurt er hún góð söxuð
út á fiskrétti rétt eins og steinselja.
Hún gefur góðan keim í hrá salöt.
Sem lyfjajurt var sæhvönnin áður
notuð til að bæta meltinguna,
stemma vind, róa taugarnar, draga
úr kvennakvillum, lina gikt og háls-
verki.Fræin má steyta og nota í stað
pipars.
Geithvönn eða geitla
Angelica sylvestris, er öll miklu
nettari um sig en ætihvönn. Þær
eru í sömu ættkvísl og líkjast mikið
hvor annarri. Geithvönnin er samt
öll í smærri skala, þurrari á að sjá
og blað- og blómstilkar með áber-
andi rauðum lit. Rauða litarins gætir
einnig í blómsveipunum. Þeir eru
líka smærri og flatari en á ætihvönn-
inni. Geithvönnina má finna víða
um land. Gjarna í skóglendi, deigu
valllendi og annars staðar þar sem
hún finnur skjól og frið fyrir beit.
Geithvönnin er vel æt og nota má
hana á sama máta og ætihvönn. En
bragðið af geithvönninni er fremur
rammt og óviðfelldið. Sums staðar
voru samt blöðin matreidd snemma
á vorin til að bæta skyrbjúg og fyr-
irbyggja hann. Einnig var plantan
notuð í te, bæði rót og blöð, þurrk-
uð sem óþurrkuð, til að vinna á
svipuðum vanda og getið var um
í umfjölluninni um sæhvönnina.
Stilkana mátti sjóða í sykurlegi rétt
eins og ætihvannastilka og nota sem
sælgæti.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Hin misvinsæla Sveipjurtaætt – sjötta og síðasta grein