Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Í apríl síðastliðnum, þegar ég
prófaði Korando-jepplinginn frá
Bílabúð Benna, sagði sölumaður-
inn mér frá því að væntanlegur
væri enn smærri fjórhjóladrifinn
bíll frá SsangYong sem nefnist
Tivoli. Fyrir skömmu var mér
boðið að prófa þennan nýja bíl.
Eina vandamálið sem ég sit uppi
með er að setja Tivoli-bílinn í
flokk með öðrum bílum, en fyrir
mér er hann smæsti jepplingur-
inn en í augum sumra er Tivoli
fjórhjóladrifinn fólksbíll.
Þægilegur í akstri
og erfitt að stoppa
Ég hafði hugsað mér að prófa bein-
skipta bílinn (sem er ódýrastur og
kostar frá 3.790.000 kr.), en stuttu
áður en ég kom til að sækja bílinn
seldist hann. Í staðinn prófaði ég
sjálfskiptan Tivoli DLX - AWD sem
er með 1,6 lítra dísilvél sem skilar
115 hestöflum. Sá kostar 4.390.000
kr. Þegar ég byrjaði prufuaksturinn
hafði ég hugsað mér að taka stuttan
bíltúr upp í Kjósina, en þar sem
mér leið vel undir stýri á þessum
bíl endaði stutti bíltúrinn í yfir 300
km akstri. Það var einfaldlega svo
gott að keyra þennan bíl að erfitt
var að stoppa.
Hvar liggja mörkin?
Oft hef ég velt fyrir mér hvar
mörkin liggja á milli jepplings
og fjórhjóladrifins fólksbíls,
en fyrir nokkru fékk ég ágætis
ábendingu hvernig mætti flokka
þetta miðað við íslenskar aðstæð-
ur. Hjólbarðarnir sem bílar koma á
eru merktir með þriggja talna röð
og ef miðjutalan er undir 65 þá
er viðkomandi bíll fólksbíll fyrir
íslenskar aðstæður. Tivoli kemur á
hjólbörðum sem eru 205/60/16 og
samkvæmt ofangreindri flokkun er
bíllinn þá fjórhjóladrifinn fólksbíll.
Tivoli hefur vissulega útlit og burði
til að flokkast sem jepplingur, en
það er frekar stutt í lægsta punkt
þannig að á vegslóðum þarf að gæta
varúðar.
Góður kraftur og fín fjöðrun
Þyngd Tivoli er innan við 1500
kg. 1,6 lítra vélin sem skilar 115
hestöflum virkar vel í svona léttum
bíl, snerpan er góð og á augnabliki
er bíllinn komin á umferðarhraða.
Togkraftur er hins vegar ekki mikill
enda ekki við því að búast af vél
sem er ekki nema 1600cc. Þrátt
fyrir að vera með litla vél er upp-
gefin dráttargeta bílsins 1500 kg
vagn með bremsubúnaði. Á hol-
óttum vegi er fjöðrunin að vinna
vel og er bíllinn ágætlega mjúkur á
hraðahindrunum. Á malarvegi nýtur
fjórhjóladrifið sín vel. Það var sama
hvað ég reyndi að láta bílinn renna
til í lausamöl að þá tókst mér það
einfaldlega ekki. Gripið á lausamöl-
inni var fullkomið.
Lítið farangursrými
og eyðslan í hærri kantinum
Olnbogarými er gott fram í bílnum
og fótarými líka. Hins vegar er
fulllítið olnbogarými í aftursætinu
ef þrír fullorðnir eru þar. Sætin í
Tivoli eru mjög góð, bæði fremri og
aftari, en í Tivoli eins og í Korando
er hægt að stilla aftursætin (40/60).
Farangursrýmið er frekar lítið. Eini
mínusinn sem ég sé að bílnum
miðað við íslenskt vegakerfi er
að varadekkið er það sem ég kalla
„aumingi“. Í mælaborðinu er hægt
að kalla fram ýmsar upplýsingar,
s.s. loftþrýsting í hverju dekki
fyrir sig, eyðslu og hvað er langt
í kílómetrum eftir af eldsneyti á
tankinum. Í mínum prufuakstri
var bíllinn að eyða 5,8 lítrum
á hundraðið (meirihlutinn var
langkeyrsla. Eftir fyrstu 20 km
innanbæjar og ég að kynnast bílnum
var hann í 9,1 lítra eyðslu. Eftir það
minnkaði eyðslan eftir því sem ég
kynntist bílnum betur. Uppgefin
meðaleyðsla samkvæmt bæklingi
er 5,9 lítrar í blönduðum akstri.
Lokaniðurstaða
Góður bíll í flokki smærri bíla á
mjög hagstæðu verði. Hægt er að
fræðast meira um SsangYong bíla
á vefsíðunni www.benni.is.
SsangYong Tivoli. Myndir / HLJ
Þyngd 1.480 kg
Hæð 1.590 mm
Breidd 1.798 mm
Lengd 4.202 mm
Helstu mál og upplýsingar
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Spurning um að stækka dekk undir bílnum svo hærra verði undir lægsta punkt.Farangursrýmið er ekki stórt, en í samræmi við lítinn bíl.
Eini mínusinn er að þetta varadekk
kalla ég „aumingja“.