Bændablaðið - 26.01.2017, Page 1

Bændablaðið - 26.01.2017, Page 1
Útflutningur á íslensku grænmeti til Danmerkur í sjónmáli: Danir vilja íslenskt grænmeti Samkvæmt heimildum Bænda- blaðsins eru samningar um útflutning á íslensku grænmeti til Danmerkur langt á veg komnir. Búið er að hanna umbúðir fyrir grænmetið á danskan markað og ein hugmyndin er að mark- aðssetja það undir slagorðinu „Ræktað undir norðurljósunum“. Gunnlaugur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garðyrkju- manna, segir að viðræður við Dani um innflutning á íslensku grænmeti séu vel á veg komnar og ekki lengur á hugmyndastigi. Hreinleiki og gæði „Búið er að senda prufur af mörg- um tegundum af grænmeti til Danmerkur til bragðprófana og Danirnir eru sammála um að bragð- gæði íslenska grænmetisins séu mjög mikil. Í fyrstu fóru Danirnir fram á að grænmetið yrði lífrænt vottað en eftir að þeir komu hingað og sáu hvernig ræktunin fer fram féllu þeir frá þeirri kröfu. Að þeirra mati eru ræktunaraðferðirnar og sérstaklega hreinleiki vatnsins langt umfram það sem þekkist í öðrum löndum. Undanfarin ár hefur orðið mikil vakning í Danmörku um hreinleika matvæla og segja þeir íslenska vatn- ið einstaklega hreint og þar sem í grænmeti sé mikið vatn skipti hrein- leiki þess gríðarlega miklu máli þegar kemur að bragðgæðum. Meðal verslana sem hafa sýnt grænmetinu frá okkur áhuga er Irma og mögulegt að það fari í sölu hjá þeim strax næsta haust.“ Flogið með grænmetið Gunnlaugur segir að grænmetið verði flutt út í flugi enda um við- kvæma vöru að ræða. „Við erum ekki enn búin að semja um neitt ákveðið magn en ef allt fer á besta veg spýtum við bara í og aukum ræktunina enda góðar aðstæður til þess hér á landi.“ Að sögn Gunnlaugs er verðið sem fæst fyrir grænmetið í Danmörku mjög ásættanlegt og svipað og hér á landi. Grænmeti í forsetaveislu Í móttöku forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, til heiðurs Margréti Þórhildi Danadrottningu, í Nordatlantens Brygge, var lögð sérstök áhersla á að kynna íslensk matvæli. Flogið var sérstaklega út með grænmeti vegna opinberrar heimsóknar forsetans til Danmerkur. Einnig var boðið upp á íslenskt hunang frá Elliðahvammi og fleiri íslenskar matvörur í móttökunni. /VH Mynd /TB Skyrsala heldur áfram að aukast en hún jókst um tæp 17% á milli áranna 2015 og 2016. Rjómasala hefur aukist um 1,8% og sala á smjöri um 4,2%. Sala á drykkjarmjólk dregst örlítið saman í heildina en athygli vekur að sala á G-mjólk, sem er mikið notuð í kaffidrykki, hefur aukist um tæp 11% á einu ári. Sala á nýmjólk hefur aukist örlítið, eða um hálft prósent, en sala á léttmjólk og undanrennu hefur minnkað nokkuð. Söluaukning í ostum nemur 3,2% á milli ára. Þetta kemur fram í nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði um sölu mjólkur- vara á síðasta ári. Sala á fitugrunni var 139,2 millj- ónir lítra síðasta ár og er það aukn- ing frá fyrra ári um 4,8%. Ef miðað er við söluþróunina frá janúar 2012 til og með desember 2016, er sölu- aukningin á fitugrunni slétt 25% á fimm árum. Greinileg söluaukning er því í fituríkari mjólkurvörum á síðustu árum. Sala á próteingrunni árið 2016 var 129,0 milljónir lítra, sem er aukning um 5,2% á milli ára. Innvegin mjólk árið 2016 var 150,3 milljónir lítra, sem er 2,9% aukning frá árinu á undan. Síðustu þrjá mánuði ársins var hins vegar samdráttur í innvigtun miðað við sömu mánuði í fyrra um 4,2%./TB Nýliðið ár: Drjúg söluaukning mjólkurvara 2016 2. tölublað 2017 ▯ Fimmtudagur 26. janúar ▯ Blað nr. 483 ▯ 23. árg. ▯ Upplag 32.000 Mynd / irma.dk Mynd / BBL 24–25 28–29 45

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.