Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017
Í byrjun hvers árs keppast inn-
flutningsaðilar nýrra bíla við að
auglýsa frumsýningar á nýjasta
trompi hvers umboðs. Úrvalið
er töluvert og erfitt getur verið
að velja úr mörgum kostum. Í ár
byrjaði ég á að fara í Hyundai-
umboðið. Þar varð fyrir valinu
Hyundai Tucson eindrifsbíll sem
hingað til hefur eingöngu verið í
boði sem fjórhjóladrifinn jepp-
lingur.
Aukin þægindi
Eins og áður sagði er Hyundai
Tucson bíllinn eindrifs bíll og er fyrir
vikið verðið á honum um 800.000
kr. lægra en á fjórhjóladrifsbílnum. Í
boði eru þrjár mismunandi bifreiðar
af Hyundai Tucson og er verðið frá
3.890.000 á þeim ódýrasta, en bíll-
inn sem prófaður var heitir Hyundai
Tucson Comfort og er með 141 hest-
afli 1,7 lítra dísilvél, sjálfskiptur
með 7 þrepa skiptingu. Strax og ég
settist inn í bílinn var ég hrifinn af
sætunum sem eru afar þægileg með
stillanlegan bakstuðningi. Hitarinn
er fljótur að hita sætið sem er kostur.
Fótapláss er gott fyrir bæði ökumann
og farþega í framsætum. Í stýrinu
er hitari sem mér er farið að finnast
að ætti að vera staðalbúnaður í inn-
fluttum bílum á Íslandi (þetta er svo
þægilegt í vetrarkuldanum).
Sparneytin vél og nánast stiglaus
skipting
Það verður ekki annað sagt en að það
er afar þægilegt að keyra Hyundai
Tucson Comfort. Sjö þrepa skipt-
ingin er það mjúk að maður finn-
ur ekkert fyrir skiptingum, hvorki
þegar bíllinn skiptir sér upp eða
niður. Eyðslan á 1,7 lítra vélinni
er afar lítil, en rétt fyrst á meðan
vélin er að hitna er maður að sjá háar
eyðslutölur í aksturstölvu bílsins.
Eftir um þriggja til fimm mínútna
akstur er vélin búin að ná kjörhita
og eyðslan er komin niður undir
fimm lítra á hundraðið í blönduðum
akstri. Uppgefin eyðsla á bílnum er
4,9 lítrar á hundraðið í blönduðum
akstri. Í prufuakstrinum hjá mér var
mín eyðsla 7,1 lítri að meðaltali, en
þess ber að geta að allan tímann var
hávaðarok og ausandi rigning. Ég er
mjög sáttur við eyðsluna miðað við
að bíllinn var prófaður við verstu
hugsanlegu aðstæður gagnvart
eyðslu.
Mikið farangursrými og
aðgengilegt
Flestir nýir bílar eru með ljósabúnað
þar sem bara eru ledljós framan á
bílnum, en ekki er löglegt að vera
þannig „ljósaður“ í umferð. Á
Hyundai Tucson þarf að kveikja
ljósin til að fá afturljósin á og mæli
ég með því til þeirra sem eiga svona
bíl að hafa alltaf ljósatakkann, á þar
sem að þegar drepið er á bílnum og
honum læst slokkna öll ljós eftir
7–10 sek. Ekki er hægt að skilja
við umræðuna um ljós á þessum bíl
án þess að hæla góðum og velsjá-
anlegum afturljósum sem eru bæði
stór og skær. Þau sjást mjög vel í
slæmu skyggni. Farangursrýmið
er stórt, 513 lítra með sætin uppi
og 1.503 lítrar með sætin niðri.
Undir farangursrýminu er fullbú-
ið varadekk sem er ekki sjálfgef-
ið í mörgum öðrum nýjum bílum
(margir án varadekks eða með það
sem ég kalla „aumingja“).
Hyundai hefur skapað sér traust
vegna lágrar bilanatíðni
Þessi bíll er nánast óaðfinnanleg-
ur sem eindrifsbíll (sjálfur vil
ég helst hafa fjórhjóladrif). Allir
Hyundai eru með 5 ára ábyrgð
enda hefur Hyundai verið sá bíll
sem hefur einna lægstu bilanatíðni
af öllum bílum samkvæmt erlend-
um vefmiðlum um bilanatíðni bíla
undanfarin ár. Kaup á Hyundai
Tucson eindrifsbílnum miðað við
verð og þægindi eru góð kaup að
mínu mati. Allar nánari upplýs-
ingar um bílinn veita sölumenn
hjá Hyundai eða á vefsíðunni
www.hyundai.is.
Hyundai Tucson Comfort 2wd, 1,7 dísil. Myndir / HLJ
Hæð 1.645 mm
Breidd 1.850 mm
Lengd 4.475 mm
liklegur@internet.is
Hjörtur L. JónssonVÉLABÁSINN
Eindrifs Hyundai Tucson með 141 hestafla vél:
Fólksbíll sem lítur út eins og jepplingur
Ljósin slokkna sjálfkrafa eftir 7–10
sek. ef ljósatakkinn er alltaf svona
þegar skilið er við bílinn.
Hátt undir bílinn sem hentar vel til
aksturs á malarvegum og í snjó.
Stór og björt afturljós er mikill kostur
við aðstæður sem oft skapast á ís-
lenskum vegum.
Fullbúið varadekk á álfelgu undir stóru farangursrýminu.
Framsætin eru góð og óvenju mikið fótarými.
Helstu mál