Bændablaðið - 26.01.2017, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017
„Ég hef fengið mjög jákvæð við-
brögð, vefurinn hefur mikið verið
skoðaður og ég vona að umferð
eigi eftir að aukast þegar fram líða
stundir og fleiri vita af honum,“
segir Sigríður Ólafsdóttir, bóndi
og ráðunautur í Víðidalstungu í
Húnaþingi vestra, en hún hleypti
af stokkunum nýjum vef, sveito.is,
um áramót. Sigríður hyggst birta
nýjan pistil sem tengist landbúnaði
og daglegu lífi í sveitinni í hverri
viku, á fimmtudögum.
Sigríður býr ásamt foreldr-
um sínum, Ólafi og Brynhildi,
og Hallfríði, systur sinni, í Víði-
dalstungu en þar er rekið sauðfjárbú
með um 500 fjár, en að auki eru þar
haldin 13 hross. Jörðin er um 300
hektarar að stærð af vel grónu landi
auk um 300 hektara í sameign með
Víðidalstungu 2. Jörðinni fylgir upp-
rekstrarafréttur á Víðidalstunguheiði,
bæði fyrir kindur og hross.
Smávaxnar en fitusnauðar kindur
Ærnar í Víðidalstungu eiga uppruna
sinn að rekja til Snæfellsness, en
þaðan kom fé eftir niðurskurð árið
1991. Eftir tvö ár frá niðurskurði,
árið 1993, voru kindur aftur teknar
á bæinn og segir Sigríður snæfellsku
ærnar frekar smávaxnar, en vel gerð-
ar, fitusnauðar og vöðvastæltar. Þær
eigi það til stöku sinnum að vera
frekar óþekkar.
Sigríður starfar sem ráðu-
nautur hjá RML og hefur aðsetur á
Hvammstanga. Þá tekur hún þátt í
störfum heima á búinu en einkum
að sögn á álagstímum, við sauðburð,
heyskap, göngur og réttir svo dæmi
séu tekin. „Systir mín og faðir sjá að
mestu um hin daglegu störf yfir vetr-
artímann, en ég kem sterk inn þegar
mest er um að vera,“ segir hún.
Sigríður segir að tilgangurinn með
því að opna vefsíðu og skrifa vikulega
pistla sé einkum að koma á framfæri
ýmsum staðreyndum og hugtökum
um íslenskan landbúnað. „Mig langar
líka að leitast við að veita þeim, sem
ekki eru svo heppnir að hafa persónu-
lega tengingu við sveitina, tækifæri til
að kynnast daglegum störfum okkar
sem þar vinnum og því hvernig lífið
gengur fyrir sig á hefðbundnu fjöl-
skyldubúi í meðalstærð á íslenskan
mælikvarða,“ segir hún.
Minni tengingar en áður var
Sigríður kveðst hafa gengið með hug-
myndina um skeið, en það að hún
lætur til skarar skríða nú megi rekja til
vinkonu sinnar, Aldísar Gunnarsdóttur
á Svalbarði í Þistilfirði. „Það er eigin-
lega hún sem kom mér af stað í þetta
verkefni. Við höfum þekkst lengi og
rætt um þessi mál fram og aftur, okkur
hefur oft þótt vanta þónokkuð upp á
að almenningur hafi næga þekkingu á
landbúnaðarmálum, hvað verið er að
gera dagsdaglega í sveitum landsins.
Það kom t.d. berlega í ljós við miklar
umræður um síðustu búvörusamn-
inga þar sem menn tjáðu sig fram
og aftur en virtust ekki alltaf hafa á
hreinu um hvað þeir væru að tala.
Tengingar þéttbýlisbúa við sveitina
eru líka minni en áður var, það tíðkast
vart lengur að börn séu send í sveit
að sumarlagi og margir hafa aldrei
komið heim á íslenskan bóndabæ,“
segir hún.
Pistlar beint frá býli
Pistlar Sigríðar verða á léttum nótum,
en eru fyrst og fremst skrifaðir í því
skyni að miðla upplýsingum, færa
sveitina nær þéttbýlinu. Nú hafa birst
á vefnum fjórir pistlar og fjölmargir
væntanlegir enda af nógu að taka.
„Þetta leggst bara vel í mig, mig hefur
alltaf langað til að vera með í ein-
hvers konar framleiðslu í tengslum
við Beint frá býli en er ekki nægi-
lega liðtæk í matargerð. Ég kann hins
vegar að skrifa og hef mjög gaman af
því. Þessir pistlar verða mitt framlag
í beint frá býli,“ segir hún.
Sigríður vill að lokum þakka
Aldísi vinkonu sinni fyrir hug-
myndina og Helgu Hinriksdóttur,
skáfrænku og vinkonu, fyrir tækni-
lega aðstoð.
/MÞÞ
Sigríður Ólafsdóttir, ráðunautur og bóndi í Víðidalstungu, opnar vefsíðuna sveito.is:
Vill miðla sögum úr sveitinni ásamt léttum fróðleik
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Öryggisskór
í vinnuna!
Það getur verið þreytandi að reima.
eð Bóa Hvernig væri að prufa öryggisskó m
g losa snúrukerfi? Auðveldar að þrengja o
um skóna.
Verð: 19.988 kr.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Orðabókardæmi
Eitt af því sem finna má á vefsíðunni eru orðskýringar, eins konar orðabók
sem útskýrir ýmis orð sem tengjast sauðfjárbúskap. Hér eru nokkur dæmi:
• Blæsma – kind með egglos, líka talað um að beiða
• Einstaklingsnúmer – kennitala
• Erfðaframfarir – þegar næsta kynslóð er betri en sú á undan
• Fallþungi – skrokkþyngd þegar húð (gæra) og innyfli eru tekin frá
• Fengitími – tilhugalíf sauðfjár, á sér yfirleitt stað á tímabilinu nóvember
-febrúar
• Fitusnautt – kjöt með litla fitu
• Fjárhús – samastaður (heimili) kinda á veturna
• Fjárvís – skýrsluhaldskerfi fyrir kindur
• Frjóvga – koma á sambandi á milli eggs og sáðfrumu
• Garði – matarborð kinda
• Gæðastýring – kerfi sem er ætlað að tryggja gæði afurða og hámarks
nýtingu aðfanga
• Heimagangur – lamb sem missir móður sína og er fóstrað heima yfir
sumarið
• Heimaalningur – sama og heimagangur
• Hólf – afmarkað pláss í fjárhúsum
• Hrútur – karlkyns sauðfé
• Hrútaskrá – listi yfir bestu hrúta landsins
• Hvíta húsið – sláturhús
• Kind – kvenkyns sauðfé
Sigríður Ólafsdóttir, bóndi og ráðunautur í Víðidalstungu í Húnaþingi vestra,
er mikill dýravinur og lætur sig málefni þeirra og landbúnaðarins varða.
Pistlar Sigríðar verða á léttum nótum, en eru fyrst og fremst skrifaðir í því
skyni að miðla upplýsingum, færa sveitina nær þéttbýlinu.