Bændablaðið - 26.01.2017, Side 29

Bændablaðið - 26.01.2017, Side 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Sláturfélagið er einnig með umboð fyrir McCormick, sem er stærsta kryddfyrirtæki í heimi, Barilla, sem er stærsta pastafyrirtæki í heimi og Mars, sem er eitt stærsta matvælafyrirtæki í heimi og framleiðir meðal annars Mars og Snickers súkkulaði, M&M og Uncle Bens-hrísgrjón og sósur og dýramat svo dæmi séu nefnd.“ Steinþór segir að SS reyni að stýra innflutningnum þannig að hann sé ekki í samkeppni við þær vörur sem þeir framleiða á innanlandsmarkaði. „Auðvitað getur alltaf átt sér stað skör- un en við reynum að velja vörur sem eru ekki í andstöðu við okkar eigin framleiðslu.“ Vöruþróun á lambakjöti Því er stundum haldið fram að tak- mörkuð vöruþróun standi í vegi fyrir aukinni sölu á lambakjöti. Steinþór segir þetta ekki alls kostar rétt. „Hjá SS hafa verið þróaðir margs konar tilbúnir og auðmatreiddir réttir úr lambakjöti. Vandamálið er að koma þeim inn í yfirfullar verslanir. Þegar við komum með nýjar vörur, sem við viljum koma inn, erum við spurðir hvað við ætlum að taka út í staðinn. Í dag er tilbúinn eldaður kjúklingur gríðarlega vinsæll og til þessa hefur okkur einfaldlega ekki tekist að búa til eitthvað hliðstætt úr lambi. Víðast er samt sem áður boðið upp á margs- konar útfærslur á lambakjöti sem búið er að skera til og krydda. Megnið af kjúklingi, svína- og nautakjöti er selt sem ferskt af nýslátr- uðu og lítur því betur út en lambakjöt sem er búið að þíða upp af því að grip- unum sem er nánast öllum slátrað á haustin og afurðirnar geymdar eru frosnar stóran hluta ársins. Fyrir vorið ætlum við að setja á markað nýja vöru úr lambakjöti sem er foreldað lambalæri í sneiðum og í brúnni sósu fyrir tvo sem tekur tuttugu mínútur að elda. Það sem meira er, þessi réttur verður á svipuðu verði og tilbúinn kjúklingur.“ Margs konar áskoranir fram undan Steinþór segir að SS og landbúnaður í heild standi frami fyrir margs konar áskorunum í framtíðinni. „Innflutningur á matvælum mun aukast í náinni framtíð og við verðum að mæta honum með enn meiri hag- ræðingu en þegar hefur átt sér stað. Við munum að sjálfsögðu endur- meta aðstæður með tilliti til þess að það er búið að gera tollasamning við Evrópusambandið. Í kjölfar þess mun innflutningur á matvælum aukast verulega í náinni framtíð og við tapa hluta markaðarins vegna þess. Áhrifin verða mest í upphafi en ég reikna með að áhrifin minnki er frá líður og inn- lendur markaður stækkar svo fremi sem stjórnvöld geri ekki einhverjar meiri breytingar. Alvarlegasta ógnin við kjötmark- aðinn í dag, að mínu mati, er ef það verður leyft að flytja inn ferskt kjöt. Það mun stórauka innflutning og einnig hættuna á að hingað berist dýrasjúkdómar. Framtíðin býður einnig upp á margs konar tækifæri sem meðal annars er að finna á erlendum mörk- uðum þar sem neytendur eru tilbúnir að borga hátt verð fyrir gæði og sér- vörur. Sláturfélagið er að selja inn á nokkra slíka markaði, meðal annars í Bandaríkjunum og Japan, en magnið þarf að aukast verulega til að þetta telji að ráði í heildina.“ Ímyndarmál landbúnaðarins „Í mínum huga er deginum ljósara að landbúnaður og íslensk landbún- aðarframleiðsla hefur farið hallloka í ímyndarumræðunni undanfarin ár. Þeim, sem hafa hag af því að flytja inn matvöru, hefur tekist að hafa sterk áhrif á almenningsálitið og snúa því gegn íslenskum landbúnaði og mat- vælaframleiðslu. Vegna þessa er mjög mikilvægt að hagsmunaaðilar í landbúnaði vinni saman við að bæta ímynd greinarinnar. Síðastliðið sumar tókst að ná miklum fjölda fyrirtæja og samtaka saman í slíkt átak sem kallaðist Sumarilmur. Landbúnaður snýst ekki bara um framleiðslu á kjöti og mjólk. Hann er einnig grunnurinn að búsetu og þeirri þjónustu sem er að finna um allt land. Án landbúnaðar hefði ekki verið hægt að taka á móti öllum þeim erlendu ferðamönnum sem eru að heimsækja landið. Hvað þá veita þeim þjónustu nema af því að það er landbúnaður og byggð í sveitum landsins. Vöxtur ferðaþjónustunnar byggir því að hluta til á landbúnaði og virðisauki sem því fylgir réttlætir fyllilega að stutt sé við innlendan landbúnað. Annað sem skiptir máli og mun skipta mun meira máli í framtíðinni eru umhverfismál og hið svokallaða kolefnisspor. Þriðja atriðið sem ég vil nefna er að ef horft er lengra fram á veginn þá er greinilegt að landbúnaður víða erlendis stefnir í miklar ógöngur vegna vatnsskorts. Aðstæður á Íslandi til mat- vælaframleiðslu eru mjög jákvæðar fyrir framleiðslu á gæða matvælum og mikið glapræði að kasta því fyrir róða vegna hugsanlegs skammtíma- ávinnings,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands. /VH Pylsugerð SS í kringum 1940. Söltun og reyking 1930–1940. Útkeyrsla á SS-vörum á glæsilegum Chevrolet. Unnið við kjötskurð um 1950, Geir M. Jónsson heitinn, verksmiðjustjóri, fremst á myndinni.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.