Bændablaðið - 26.01.2017, Qupperneq 41

Bændablaðið - 26.01.2017, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA Í maí 2006 gekk Samband garð- yrkjubænda til þess verks að skrá íslensku fánaröndina og dropa- merki í íslensku fánalitunum hjá Einkaleyfastofu. Merkin höfðu þá verið í notkun meðal framleið- enda garðyrkjuafurða frá árinu 2003, einkum íslenska fánaröndin. Dropinn er hins vegar uppistaða í félagsmerki Sambands garðyrkju- bænda. Þetta þýðir með öðrum orðum að þessi tvö merki eru eign Sambands garðyrkjubænda og einkaleyfisvarin sem slík. Þannig má enginn nota þau eða önnur mjög áþekk merki til að kynna vöru eða þjónustu, án þess að fyrir liggi leyfi frá Sambandi garð- yrkjubænda. Samband garðyrkju- bænda hefur veitt félögum sínum, og aðilum sem selja afurðir þeirra, leyfi til notkunar merkisins, gegn skriflegum samningum þar sem not- endur undirgangast reglur félagsins um notkun merkjanna. Merkin voru á sínum tíma skráð á grundvelli markaðsfestu og taka til sölu og kynningar á öllum þeim vörum sem um getur í þeim flokk- um sem skráningin nær yfir. Það nær meðal annars yfir landbúnaðar- garð- ræktar- og skógræktarafurðir, græn- meti, ávexti hvort sem um er að ræða nýtt eða þurrkað, ávaxtahlaup, sultur, grauta, matarolíur, matarfeiti, svo og fræ, lifandi plöntur og blóm. Táknar innlendan uppruna Íslenska fánaröndin mun í framtíð- inni tákna innlendan uppruna og að framleiðendur fylgi ákveðnum gæðaferlum. Ástæða þess að félagar í Sambandi garðyrkjubænda hófu að nota sitt eigið vörumerki með skírskotun í íslenska þjóðfánann var fyrst og fremst eftirspurn kaupenda eftir upp- lýsingum um uppruna vöru. Sú umræða að neytendur eigi rétt á því að vita um uppruna og hvaðan varan kemur er ekki ný af nálinni og garðyrkjubændur svöruðu kallinu með því að merkja afurðir sínar með íslensku fánaröndinni. Íslenska fánaröndin táknar að varan er íslensk að uppruna og þeir sem selja undir merkjum íslensku fánarandarinnar eiga skýlaust að hafa til þess leyfi Sambands garðyrkju- bænda. Nú stendur yfir vinna við inn- leiðingu gæðahandbókar í íslenskri garðyrkju og endurskoðun á regl- um fyrir íslensku fánaröndina. Markmiðið er að í framtíðinni muni íslenska fánaröndin ekki einvörð- ungu tákna innlendan uppruna, held- ur einnig að þeir sem nota merkið fylgi fyrirfram ákveðnum gæðaferl- um. Verið er að leggja lokahönd á þróun og innleiðingu gæðahandbók- arinnar og úttektarferla vegna þess en vænta má að gæðahandbókin og úttektarferlar verði birtir opinberlega þegar þau gögn liggja fyrir í endan- legri mynd. Eins og gefur að skilja er nauðsyn- legt að úttekt á notkun gæðahand- bókar sé í höndum utanaðkomandi aðila. Þegar hefur Samband garð- yrkjubænda hafið samstarf við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins vegna þessa. Skráð vörumerki njóta verndar Á umliðnum árum hefur Samband garðyrkjubænda þurft að hafa nokk- uð fyrir því að verja merki sín gegn ágangi þeirra sem hagnast vilja á þeirri velvild sem innlendar afurð- ir og íslensk garðyrkja njóta meðal neytenda. Skráð vörumerki njóta verndar með ámóta hætti og hugverk samkvæmt lögum um vörumerki nr. 45/1997 og lögum um einkaleyfi nr. 17/1991 (sjá á vef Alþingis, www. althingi.is). Fjölmörg dæmi eru um að höfð hafi verið afskipti af aðilum sem notað hafa fánaröndina eða dropann, eða merki mjög áþekk þeim, í heim- ildarleysi. Stundum hefur verið um að ræða hreint gáleysi og hefur notkun þá verið hætt að undangengnum vin- samlegum ábendingum. Góðfúsleg tilmæli hafa þó ekki alltaf dugað til. Árið 2010 féll dómur í Hæstarétti þar sem staðfest var sú vörn sem í einkaleyfi felst og heimildaleysi annarra til notkunar á merkinu án leyfis eiganda. Nánar má lesa um það í dómaskrá Hæstaréttar á vefnum www.haestirettur.is. Íslenski þjóðfáninn Í apríl síðastliðnum voru gerðar breytingar á lögum um íslenska þjóðfánann. Nú er, samkvæmt ákveðnum skilyrðum, heimilt að nota þjóðfánann til kynningar á vörum og þjónustu enda „sé vara eða starfsemi sú sem í hlut á íslensk og fánanum ekki óvirðing gerð“ eins og segir í lögunum. Þessi breyting á lögum um þjóðfánann fellir ekki úr gildi það einkaleyfi sem Samband garðyrkju- bænda hefur á skráðum vörumerkjum sínum og það er grundvallarmunur á því hvort vara er merkt íslensku fánaröndinni eða íslenska þjóðfán- anum. Mikilvægt er að neytendur viti ævinlega hvort varan er íslensk og þá að hvaða marki. Það er ástæða til að hvetja alla til að halda vöku sinni varðandi merkingar og kynningu á vörum og þjónustu og snúa sér eftir atvik- um til seljenda, framleiðenda eða Neytendastofu, telji þeir einhverju áfátt í þeim efnum. Íslenska fánaröndin er skráð vörumerki Katrín María Andrésdóttir, framkvæmda- stjóri Sambands garðyrkjubænda Samtök iðnaðarins hafa stofnað framleiðsluráð Samtaka iðnaðarins sem er samstarfsvettvangur fram- leiðslu- og matvælagreina innan samtakanna. Því er ætlað að auka sýnileika framleiðslu á Íslandi, stuðla að bættu starfsumhverfi og efla umræðu um íslenska fram- leiðslu. Í ráðinu sitja níu stjórnend- ur frá ólíkum fyrirtækjum innan framleiðslugreinanna. Starfsemi framleiðslufyrirtækja á Íslandi er umfangsmikil og þau eiga stóran þátt í fjölbreyttu atvinnulífi á Íslandi. Framleiðslufyrirtækin velta 685 milljörðum króna sem er um 18% af heildarveltu allra íslenskra fyrir- tækja árið 2016 og hjá þeim starfa um 15.500 starfsmenn. Framlag iðnaðar- framleiðslu til verðmætasköpunar er um 10% en fluttar voru út iðnaðarvör- ur fyrir 331 milljarð króna á árinu sem vegur þungt í heildarvöruútflutningi Íslands, eða um 53%. Dæmi um fram- leiðslu sem aðildarfyrirtæki SI fást við eru matvæli, fóður, umbúðir, húsgögn, innréttingar, byggingavörur, tæki og vélar, prentverk og vinnsla úr málm- um og endurvinnsluefnum. Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland og formaður framleiðsluráðs SI, segir ánægjulegt að nú sé kom- inn sameiginlegur vettvangur til að vinna að hagsmunamálum íslenskra framleiðslufyrirtækja. „Innan okkar raða eru um 230 fyrirtæki í mjög fjölbreyttri framleiðslu. Með því að leggja saman krafta okkar getum við aukið sýnileika framleiðslugreinar- innar og stuðlað að enn fjölbreyttara atvinnulífi. Við viljum gera fram- leiðslugreinarnar að eftirsóttum starfs- vettvangi og laða til okkar starfsfólk með rétta þekkingu og færni,“ segir Gestur Pétursson. Iðnfyrirtæki vilja auka sýnileika framleiðslu á Íslandi – Velta 685 milljörðum króna á ári og með 15.500 starfsmenn Nýja framleiðsluráð Samtaka iðnaðarins. Bryndís Skúladóttir, SI, Gunnar Sverrisson, forstjóri Odda, Andri Daði Aðalsteinsson, markaðsstjóri Límtré Vírnet, Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, Bergþóra Þorkels dóttir, forstjóri ÍSAM, Þórður Theodórsson, framleiðslustjóri Marel, Margrét Ormslev, fjármálastjóri CRI, Steinþór Skúlason, forstjóri SS, Stefán Magnússon, markaðsstjóri hjá Coca-Cola og Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI. Á myndina vantar Einar Svein Ólafsson, framkvæmdastjóra Íslenska kalkþörungafélagsins. Mynd / SI Umtalsverðar veiðitekjur Jörðin Skógar er sunnan Flókadalsár. Bláfinnsvatn er í útnorð- urmörkum, og Skógavatn, sem að mestu er í Skógalandi, er á mörkum Hæls og Skóga. Í þessum vötnum var stunduð veiði, einkanlega Skógavatni. Í Flókadalsá er töluverð laxveiði og eru veiðitekjur Skóga u.þ.b. 2.3 millj. á ári en eignarhluti er um 12%. Jörðinni fylgir einnig veiði- og beitarréttur á Arnarvatnsheiði. Land jarðarinnar er allt slétt og víða vel gróið. Land Skóga sem talið er vera um 350 hektarar Húsakostur er allur gamall, en mjög snyrtilegur og að því er séð verður mjög vel um hirtur. Íbúðarhúsið hefur verið mikið endurnýjað en látið halda að mestu sínu upprunalega útliti. Góðar girðingar eru á jörðinni. Stutt í margar af helstu náttúruperlum Borgarfjarðar. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali magnus@fasteignamidstodin.is sími 550 3000 eða 892 6000 Til sölu jörðin Skógar í Flókadal, Borgarbyggð Bændablaðið á bbl.is og líka á Facebook

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.