Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
„Gleymið áhyggjum út af olíu
og gasi, þið ættuð frekar að hafa
áhyggjur út af því sem minna er
rætt um, en það er sú staðreynd
að heimurinn er að verða uppi-
skroppa með drykkjarhæft vatn.“
Þetta ritaði breski vísindamað-
urinn dr. Rupesh Paudyal, sem áður
starfaði við Leeds-háskóla, nú í jan-
úar og birti á vefsíðu phys.org og
einnig á talkplant.com og segir að
beiting hátækni í landbúnaði (erfða-
tækni) gæti afstýrt heimsstyrjöld út
af vatni.
Hann segist hafa ritað greinina
eftir veru sína í Katmandu, höfuð-
borg Nepals, sem býr nú við mik-
inn vatnsskort. Þrátt fyrir að allir
húseigendur í borginni greiði sér-
stakt gjald til að fá rennandi vatn
úr krönum, þá sé vatn ekki í boði
nema í örfáa klukkutíma tvisvar í
viku. Örvæntingarfullir íbúar séu
því knúnir til að leita til einkaaðila
um vatn. Þó slíkt sé vel á færi þeirra
ríku, þá geti það verið mikið vanda-
mál fyrir miðstéttirnar og þá sem
lægra eru settir. Fyrir fjölmarga íbúa
í þriðja heiminum, þá skipti aðgengi
að vatni sköpum varðandi velgengni
eða fátækt.
Paudyal segir að yfir þúsund
milljónir manna hafi ekki leng-
ur nauðsynlegt aðgengi að vatni.
Flestir sjúkdómar í þessum löndum
sem leiði til dauða milljóna manna
á hverju ári séu tengdir vatnsskorti.
Sem dæmi þá deyr eitt barn af völd-
um niðurgangs í heiminum á sautján
sekúnda fresti.
„Vegna alls þessa verðum við
að finna einhverja lausn varðandi
vatnsskortinn og það hratt áður en
hann leiðir til meiri háttar alþjóð-
legra átaka,“ segir Paudyal.
Mest af vatnsbirgðum heimsins
er bundið í sjónum og aðeins 3%
af öllu vatni heimsins er nothæft til
landbúnaðar og er drykkjarhæft. Þá
er megnið af þessum 3% vatnsbirgð-
anna bundið í jöklum á heimsskauts-
svæðunum. Það þýðir að í raun eru
aðeins um 0,5% af vatnsbirgðum
heimsins aðgengileg og um tveir
þriðju hlutar þess vatnsmagns eru
notaðir í landbúnaði.
Jarðarbúar verða að draga úr
vatnsneyslu
Paudyal segir að jarðarbúar verði að
draga úr vatnsneyslu og þar verði að
stefna á að gera landbúnað sjálfbær-
ari og skilvirkari. Þar sem jarðarbú-
um fjölgi ört verði að huga að því
að finna leiðir til að rækta meira en
samt með minni vatnsnotkun.
Um heim allan er aðeins um
37% mögulega nýtanlegs ræktar-
lands notað til landbúnaðar. Víða
sé ræktarland fyrir hendi en ekki
notað vegna skorts á nauðsynlegum
innviðum, vegna skóga og náttúru-
verndarsjónarmiða. Skortur á landi
sé því eiginlega ekki vandamál, held-
ur skortur á vatni.
Vatnsræktun í lokuðum
gróðurhúsum
Paudyal spyr sig hvernig hægt sé
að rækta með minni vatnsnotkun.
Ein leið kunni að vera að finna sjálf-
bæra leið til að fjarlægja salt úr sjó
svo hann verði nýtanlegur. Í dag er
slíkt einkum gert með flóknum og
dýrum tækjabúnaði. Hann bendir
á búgarð í Suður-Ástralíu þar sem
sólarorku er beitt til að eima sjó og
framleiða vatn sem síðan er nýtt til
ræktunar í gróðurhúsum. Á þessum
stað er jarðvegur vart nýtanlegur til
ræktunar, en þess í stað fer ræktun
fram í lokuðu ferli í gróðurhúsum
þar sem fram fer vatnsræktun sem
ekki krefst jarðvegs [sama aðferð og
þekkist í íslenskum gróðurhúsum við
grænmetisframleiðslu]. Með þessum
hætti er hægt að nota mun minna
vatn en ella. Vandinn er, að sögn
Paudyal, kostnaðurinn við að koma
upp slíkum gróðurhúsum.
Framleiða 17.000 tonn af
tómötum á ári í eyðimörkinni
Umrætt gróðurhús heitir Sundrop
farms. Það nýtir 23.000 spegla sem
beina geislum sínum að 115 metra
háum turni til að framleiða hita, eima
sjó og búa til raforku. Er sjónum
dælt um 5 km leiðslur að turninum
þar sem eimingin fer fram. Í gróð-
urhúsinu sem nýtir eimaða vatnið
eru síðan framleidd 17.000 tonn af
tómötum á ári.
„Ekkert er erfðabreytt“
Í ljósi orða Paudyal um það sem
verið er að gera í Ástralíu er athygl-
isvert að fyrirtækið Sundrop farms
tekur sérstaklega fram á heimasíðu
sinni að það noti ekki erfðabreytt-
ar jurtir. Því gat Paudyal vart valið
óheppilegra fyrirtæki til að bakka
upp fögur orð sín sem á eftir koma
um notkun erfðatækni í landbúnaði.
Á heimasíðunni stendur; „Ekkert er
erfðabreytt,“ og bætt er við:
„Ef þú ert með hefðbundna rækt-
un þá gætir þú íhugað að nota erfða-
breytt sáðkorn. Það gæti gert það
sem þú ræktar þolnara fyrir sjúkdóm-
um. Þú þyrftir auðvitað líka jarð-
veg og mikið af vatni. Þú mátt ekki
heldur gleyma notkun á margvísleg-
um efnum fyrir þessar „leiðinlegu“
jurtir“. Síðan er framleiðsluferlinu
hjá Sundrop farms lýst á myndbandi
sem finna má á slóðinni http://www.
sundropfarms.com/produce/
Sundrop farms var stofnað
1976 og á bak við það stendur fjár-
festingarfélagið KKR og Aalborg
CPS sem er leiðandi á heimsvísu í
framleiðslu búnaðar fyrir sólorkuver.
Þá er Van Der Hoeven einnig aðili
að fyrirtækinu en það hefur sérhæft
sig í gróðurhúsaverkefnum víða
um heim allar götur síðan 1953. Að
þessu kemur líka ástralska verslunar-
keðjan Coles Supermarkets sem er í
eigu Wesfarmers, eins stærsta skráða
fyrirtækis í Ástralíu. Auk þess má
geta aðkomu Commonwelth Bank í
Ástralíu sem hefur séð um fjármögn-
un ýmissa verkefna af þessum toga
víða um heim.
Paudyal bendir á að vísindamenn
víða um heim vinni nú að því hörð-
um höndum að einangra gen sem
gerir plöntum kleift að vaxa við mjög
þurrar aðstæður. Eins og t.d. upp-
landahrís getur vaxið á mjög þurrum
svæðum á meðan láglandahrís vex
aðeins á vatnsósa ökrum.
Einangrun gena og
genabreytingar
Um leið og hægt sé að einangra gen
sem gera plöntum kleift að lifa og
dafna við mjög þurrar aðstæður, þá
sé hægt að koma slíkum genum fyrir
í nytjaplöntum með aðstoð erfða-
tækninnar. Þannig sé hægt að stytta
þá leið sem það tæki bændur annars
að rækta upp slíka nytjastofna með
víxlræktun á hefðbundinn hátt. Í
nýlegri rannsókn er slíkt skilgreint,
en þar er beitt fjölbreyttum „rótar
arkitektúr“ við ræktun á kjúklinga-
baunum. Vonast er til að frekari rann-
sóknir finni gen sem gerir rótarkerfi
skilvirkari við að ná upp raka og
næringarefnum úr þurrum jarðvegi.
Paudyal segir að lykilatriðið varð-
andi þurrkþol plantna liggi í plöntu-
hormóninu abscisic acid (ABA). Það
eykur vatnsupptökuhæfni plantna í
þurrkum. Gallinn er að ABA hormón
dregur um leið úr ljóstillífunarhæfni
jurtanna og dregur úr vexti til langs
tíma. Árangurinn verður minni upp-
skera.
Engin ný sannindi
Þegar skoðað er það sem Paudyal er
að segja virðist nokkuð augljóst fyrir
leikmenn að þurrkar leiði til minni
uppskeru þar sem plöntur og ekki síst
nytjaplöntur eru vel yfir 90% vatn.
Vart þurfi ítarlegar rannsóknir til að
komast að þeirri niðurstöðu.
Nútíma nytjaplöntur hafa glatað
upprunalegum eiginleikum
Paudyal segir aftur á móti að plöntur
hafi ekki alltaf haft þessa vankanta
í þurrkatíð. Nútíma nytjajurtir hafi
tapað lykilgeni sem frumjurtirnar
höfðu til að takast á við óblíðar
aðstæður og ofþornun. Bendir hann
þar t.d. á mosa. Þessi hæfni hafi gert
frumplöntum mögulegt að nema
land í yfir 500 metra hæð yfir sjó.
Eyðimerkurmosi hafi t.d. enn í dag
þennan hæfileika til að safna vatni
úr loftinu í gegnum lauf sitt. Segir
Paudyal að það sé mikil áskorun
fyrir vísindamenn að „hanna“ jurtir
sem geti vaxið og dafnað við lág-
marksvökvun sem hjálpi um leið til
við að draga úr vatnsnotkun.
Segir umdeilda tækni
nauðsynlega
Hann segir þó að notkun erfða-
tækni á þessu sviði sé og verði
mjög umdeild, þrátt fyrir að ýmsar
rannsóknir hafi sýnt fram á að fæða
úr erfðabreyttum jurtum sé örugg
til neyslu.
Heldur Pauydyal því fram
að vandinn varðandi tortryggni
manna út í erfðatæknina sé fyrst og
fremst mistök við upplýsingagjöf.
Staðreyndin sé eftir sem áður að
jarðarbúar muni á endanum neyðast
til að nýta sér alla mögulega tækni
sem völ er á. Erfðabreyttar jurtir hafi
of mikla eiginleika til að réttlætan-
legt sé að sniðganga þær. /HKr.
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R lvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Dr. Rupesh Paudyal hefur áhyggjur af vatnsskorti í heiminum og fjallar m.a. um notkun á erfðatækni í landbúnaði:
„Hátækni í landbúnaði gæti afstýrt
heimsstyrjöld út af vatni“
– Paudyal segir að mannkynið muni neyðast til að nýta sé alla þá tækni sem völ er á til að spara vatn í landbúnaði
Sundrop farms-gróðrarstöðin í Ástralíu er staðsett á gróðursnauðu og
vatnslitlu landi. Hún nýtir 23.000 spegla sem beina geislum sínum að 115
metra háum turni til að framleiða hita, eima sjó og búa til raforku. Er sjónum
dælt um 5 km leiðslur að turninum þar sem eimingin fer fram. Í gróðurhúsinu
sem nýtir eimaða vatnið eru síðan framleidd 17.000 tonn af tómötum á ári.
Þar er samt engri erfðatækni beitt við ræktunina.
Upplanda hrísgrjónaræktun. Þessar hrísgrjónaplöntur hafa þann náttúru-
lega eiginleika að þurfa ekki eins mikið vatn til að dafna og hrísgrjón sem
algengust eru í ræktun í miklu vatni á láglendinu.