Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Big Bud 747 hefur lengi verið köll- uð stærsta dráttarvél sem nokkru sinni hefur verið smíðuð. Ekki hefur Bændablaðið vitneskju um að því stærðarmeti hafi enn verið skákað. Þessi vél var sérsmíðuð í Havre í Montana í Bandaríkjunum árið 1977. Hún var líka kölluð 16V747 Big Bud og er af framleiðanda og eigendum sögð vera stærsta dráttar- vél heims, eða „World largest farm Tractor“. Það þykir m.a. merkilegt í dag að vélin var með 8 rása segul- bandstæki auk útvarps í stýrishúsi. 50 plóga traktor Þegar talað er um getu, þá miðuðu amerískir bændur hér áður fyrr oft við það hvað vél gat dregið af svokölluðum „Mouldbord“plógum. Í þeim samanburði var Big Bud 747 talinn vera 50 plóga traktor. Helstu stærðir: • Hæð: Frá jörð upp á þakbrún var 4,3 metrar. • Lengd: 8,2 metrar. • Breidd á vél: 4,06 metrar. • Breidd með brettum: 6,35 metrar. • Hjólahaf: 4,95 metrar. • Öxlar: Clark D-85840. • Dekk: 8 stykki 2,4 metrar í þvermál, 1,010 metrar á breidd (38x35 16). • Eigin þyngd: 48 tonn. • Olíutankur: 3.800 lítrar. • Þyngd með olíu og ballest: 68 tonn. • Vél: Detroit Diesel 16V92T - 16 strokka tvígengisvél. • Afl: 760 hestöfl (570 kW). - Var síðan aukið í 860 hestöfl (640 kW) og aftur í 960 hest- öfl (720 kW). • Slagrými: Samtals 24,1 lítri (1.472 cid), eða 1,5 lítarar á hverjum strokk (sílindra) • Inntak: 2 túrbínur og 2 ofur- túrbínur. • Tog vélar: 4.200 Newton metrar við 3.401 snúning á mínútu (ekki ljóst hvort það er út við hjól eða frá vél) • Startari: 24 volt. • Rafkerfi á vél: 12 volt. • Rafall: 75 amper. • Skipting: Sex gírar áfram 1 gír afturábak. • Átaksmiðað glussakerfi: Hámarksflæði 245,96 lítrar á mínútu. • Glussatankur: 567,64 lítrar. • Búnaður í stýrishúsi: Loftkæling, miðstöð, vinnu- konur, snúningsstóll og aukasæti. AM/FM útvarp og 8 ára segulband smíðað 1977. Fyrstu tvær Big Bud voru minni Fyrstu tvær Big Bud dráttarvélarnar voru af 250 seríu sem var talsvert minni en 747 og voru þær fram- leiddar fyrir Leonard M. Semenza á Semenza-búgarðinum árið 1968. Þessi búgarður er staðsettur á milli Fort Menton og Chester í Montana- ríki. Jörðin er þokkaleg spilda, alla- vega á íslenskan mælikvarða, eða 35 þúsund hektarar. Big Bud 747 smíðaður fyrir bómullarbændur Big Bud 747 var aftur á móti upp- haflega hönnuð af Wilbur Hensler og smíðuð af Ron Harmon og hans starfsmönnum hjá Northern Manufacturing Company. Kostaði fyrsta vélin 300.000 dollara, eða sem svarar 33,3 milljónum króna miðað við gengi um miðjan dag 13. mars sl. Þessi risavél var smíðuð fyrir Rossi Brothers sem stunduðu bómullarrækt í Bakersfield eða á Old River-svæðinu í Kaliforníu. Þar var vélin notuð í 11 ár eða þar til hún var seld til Willowbrook Farms í Indialantic í Flórída. Á báðum býlunum var hún notuð til að „rippa“ eða djúprista land, „deep ripping“. Eftir að vélin hafði staðið ónotuð um tíma var hún svo seld til Roberts og Randy Williams frá Big Sandy í Montana. Sá bær er í tæplega 100 km fjarlægð frá þeim stað þar sem vélin var smíðuð 1997. Var vélin síðan notuð af Williams- bræðrum í Chouteau-sýslu til að draga 24 metra langan rifherfi (cultivator). Með þessu verkfæri var hægt að plægja hálfan hektara á mínútu miðað við 13 km hraða á klukkustund. Sérsmíðuð dekkin á Big Bud 747 voru framleidd af United Tire Company í Kanada. Þegar ákveðið var að hætta að nota Big Bud í júlí 2009 og setja gripina á safn, var afleiðingin m.a. sú að dekkjafram- leiðandinn fór á hausinn árið 2000. Big Bud 747 var síðan sýndur á safni Heartland Acres Agribition Center í Independence í Iowa-ríki. Vélin var síðan flutt á Heartland- safnið í Clarion í Iowa þar sem Williams-bræður kostuðu sérstakan sýningarbás fyrir vélina árið 2013 undir nafninu Williams Big Bud. /HKr. TÆKNI&VÍSINDI Stóri Bud er engin smásmíði en einu sinni þótti gamla John Deere-dráttarvélin, sem stendur við hlið hans, heldur enginn kettlingur. Stærsta dráttarvél heims, Big Bud 747, er nú á Heartland-safninu í Clarion í Iowa í Bandaríkjunum. Myndir / HEARTLAND MUSEUM Í kjölfar þess að ákveðið var að hætta notkun á Big Bud 747 og setja vélina á safn fór kanadíski dekkjaframleiðandinn á hausinn. – Fulllestuð af olíu og ballest vegur hún 68 tonn, er með 16 strokka og 960 hestafla tvígengisvél og 3.800 lítra eldsneytistank
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.