Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Óskar Pétursson Þóra Einarsdóttir
Stórtónleikar í Hörpu 25. mars
Karlakórinn Heimir í Skagafirði í samstarfi við
Vesturfarasetrið á Hofsósi efnir til stórtónleika
í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 25. mars. Kórstjóri
píanóleikara annast undirleik. Einsöngvarar eru Þóra Einarsdóttir,
Óskar Pétursson og Birgir Björnsson. Gestakór er Hljómfélagið,
kórstjóri Fjóla Kristín Nikulásdóttir.
Miðasala og nánari upplýsingar má finna
á harpa.is og í síma 528 5050.
M
AT
VÆLALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR
Aðgangur er ókeypis
Skráning á vefnum si.is
RÁÐSTEFNA
UM MAT OG
ÞEKKINGU
ÞEKKING OG FÆRNI
Í MATVÆLAGREINUM
Kl. 11.30 Hádegishressing í samvinnu við meistarakokka
Grillsins
Setning og afhending verðlauna Ecotrophelia Ísland
– Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
Tæknin byltir matvælaiðnaði
– Hörður Kristinsson, rannsókna- og nýsköpunarstjóri Matís
Nýjar aðferðir við miðlun fræðslu til starfsmanna
Þjálfun í þenslu – hvernig næ ég til starfsmanna?
– Hlíf Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Securitas
Nýjar leiðir við þjálfun og miðlun
– Hróbjartur Árnason, lektor við Menntavísindasvið HÍ
Vinnustaðanám og fræðsla Icelandair hótela
– Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna- og
gæðasviðs Icelandair hótela
Menntanet sjávarútvegsins
– Hallveig Ólafsdóttir, hagfræðingur SFS
Reynslusögur úr fyrirtækjum
Gæði, öryggi og arðsemi í framleiðslu
– Bára Eyfjörð Heimisdóttir, gæðastjóri Norðlenska
Hverjir kaupa fiskinn okkar, erum við á réttri leið?
– Klemenz Sæmundsson og Ásdís Vilborg Pálsdóttir,
verkefnastjórar hjá Fisktækniskóla Íslands
Starfsþjálfunaráætlun
– Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs
Ráðgjöf til bænda – Nýjar áskoranir í breyttu umhverfi
– Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
Pallborðsumræður með þátttöku ungs fólks úr ýmsum
greinum og ráðstefnuslit kl. 16.00
Kynnir og ráðstefnustjóri: Pétur H. Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis
Samstarfsvettvangur um
Matvælalandið Ísland efnir
til ráðstefnu á Hótel Sögu
fimmtudaginn 6. apríl þar
sem fjallað verður um leiðir
til að efla þekkingu og færni
innan matvælagreina.
HÓTEL SÖGU - 2. HÆÐ
FIMMTUDAGINN 6. APRÍL
KL. 11.30-16.00
DAGSKRÁ:
Byggðastofnun:
Fleiri óska nú
eftir lánum
Mikil aukning hefur verið í láns-
beiðnum til Byggðastofnunar á
síðustu árum eftir erfiða tíma í
kjölfar fjármálahrunsins 2008.
Heildarupphæð lánsumsókna 2016
var um 4 milljarðar samanborið
við 4,4 milljarða 2015 og 3,3 millj-
arða 2014. Samþykktar voru 70
umsóknir en 28 var synjað.
Lánasafn stofnunarinnar er nú
rúmir 11 milljarðar króna og skiptist
nokkuð jafnt á milli landshluta, en
ferðaþjónusta og landbúnaður eru
fyrirferðarmestu greinarnar, með um
26% hvor fyrir sig.
Tvær nýjar tegundir lána
Árin 2014 og 2015 samþykkti stjórn
Byggðastofnunar tvær nýjar tegundir
lána. Annars vegar lán vegna jarða-
kaupa eða kynslóðaskipta í landbún-
aði, en þau lán eru með 5% verð-
tryggðum vöxtum til allt að 25 ára
og möguleika á að greiða einungis
vexti fyrstu 3 árin. Lánaflokkurinn
var svo útvíkkaður árið 2016 og
nær nú einnig til fjármögnunar
endurbóta og /eða uppbygginga á
húsakosti í landbúnaði. Hins vegar
lán til stuðnings fyrirtækjareksturs
kvenna, en þau geta verið allt að 10
milljónir króna í hvert verkefni og
til 10 ára. Vaxtakjör eru verðtryggð
og þau sömu og af lánum til land-
búnaðar, eða 2% álag á REIBOR í
óverðtryggðu.
Á síðasta stjórnarfundi Byggða-
stofnunar var svo samþykktur nýr
lánaflokkur vegna nýsköpunar.
Lánin eru sérsniðin að nýsköpunar-
verkefnum varðandi afborganaferli,
lengd og tryggingar. Þetta kemur
fram á vefsíðu stofnunarinnar. /MÞÞ
Sauðárkrókur, þar sem höfuðstöðvar Byggðastofnunar eru til húsa.
Mynd / HKr.