Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Nýleg myndbönd sýna mjög
slæma meðferð á lifandi gripum
sem flutt eru til slátrunar frá
Evrópusambandinu til Tyrklands
og Mið-Austurlanda. Meðferð og
umgengni við dýrin við flutning-
ana og á áfangastað er í mörgum
tilfellum í bága við öll lög og reglur
Evrópusambandsins um dýravel-
ferð.
Breska blaðið Guardian birti
fyrir skömmu á heimasíðu sinni
umfjöllun um illa og ólöglega
meðferð á nautgripum og sauðfé
sem flutt eru lifandi frá löndum
Evrópusambandsins til slátrunar í
Tyrklandi og Mið-Austurlöndum.
Mest af afurðunum er neytt í landinu
þar sem gripunum er slátrað en dæmi
eru um að hluti þeirra sé fluttur til
landa Evrópusambandsins og seldar
þar eða fluttar út.
Í umfjöllun Guardian segist blað-
ið hafa undir höndum myndbönd
sem sýna að sláturdýrin séu barin
og gefið raflost til að reka þau áfram
og að illa sé um þau hugsað meðan
á flutningunum stendur. Einnig sýna
myndböndin að aðferðir við slátrun á
áfangastað eru langt frá því að vera
það sem kallast má manneskjulegar
eða ásættanlegar.
Umfjöllun Guardian í heild má
finna á slóðinni, https://www.thegu-
ardian.com/world/2017/mar/01/
revealed-exported-eu-animals-
-subject-to-abuse-illegal-conditions.
Barsmíðar og raflost
Í umfjöllun Guardian er meðal annars
sagt frá nautgripum frá Írlandi sem
tekur tólf daga að flytja til slátrunar
í Tyrklandi. Gripirnir eru fluttir með
skipi og ekki hirt um að þrífa undan
þeim á leiðinni og eru skepnurnar því
útataðar í mykju og skít þegar þær
berast á áfangastað.
Auk þess að sýna að gripunum
sé misþyrmt með barsmíðum og
rafstuði sýna myndböndin að grip-
unum er dögum saman haldið allt of
mörgum saman innan allt of þröngra
girðinga þar sem jarðvegurinn er lítið
annað en leðja og skítur.
Í sumum tilfellum sjást skelf-
ingu lostnir, spriklandi og hljóðandi
nautgripir og sauðfé frá Frakklandi,
Rúmeníu og Litháen sem verið er að
skera á háls og slátra við ömurlegar
aðstæður og jafnvel utandyra.
Teymi ástralskra
dýraverndunarsinna
Myndefninu var safnað á átta mánaða
tímabili af meðlimum í áströlsku
teymi dýraverndunarsinna sem starf-
aði, meðan á öflun upplýsinganna
stóð, við flutninga á dýrunum frá
löndum Evrópusambandsins í slát-
urhús í Króatíu, Tyrklandi og fimm
öðrum löndum í Mið-Austurlöndum.
Árið 2011 upplýsti teymi
ástralskra dýraverndunarsinna um
slæma meðferð á dýrum sem flutt
voru lifandi frá Ástralíu til Indónesíu
til slátrunar. Myndefni sem fylgdi
þeirri uppljóstrun vakti gríðarlega
athygli og olli því að flutningarnir
voru bannaðir um tíma og reglur um
þá hertar til muna.
Efni sem meðlimir ástralska
teymisins hafa aflað núna sýna að
ástandið er engu betra þegar kemur
að flutningi lifandi gripa frá Evrópu
og sýnir svo ekki verður um villst að
lög Evrópusambandsins um meðferð
á dýrum eru margoft þverbrotin í
nánast öllum löndunum sem könnuð
voru.
Samkvæmt evrópskum lögum
eiga gripir sem fluttir eru milli
landa að njóta góðrar meðferðar
meðan á flutningi þeirra stendur.
Á það að gilda hvort sem landið
sem flytja á dýrin til sé hluti af
Evrópusambandinu eða ekki.
Lögin gera ráð fyrir að gripirnir
séu meðhöndlaðir án ofbeldis og að
aðstæður við flutninginn séu þannig
að dýrin eigi ekki að upplifa hræðslu
né að hætta sé á að þau verði fyrir
slysi. Allur búnaður við flutninginn,
hvort sem það er flutningstækið eða
búnaður við fermingu eða afferm-
ingu gripanna, á að vera hannaður
með það í huga að gripunum líði sem
best meðan á flutningum stendur.
Einnig eru ákvæði í lögunum um að
flutninga skuli skipuleggja þannig að
þeir taki sem skemmstan tíma.
Flutningar standast ekki lág-
markskröfur
Guardian fól ítalskri lög-
fræðistofu, sem sérhæfir sig í dýra-
rétti, að leggja mat á myndefni sem
sýnir flutninga gripanna milli landa.
Í svari lögfræðistofunnar segir að
myndefnið sýni svo ekki verði um
villst að lög EC No 1/2005 um flutn-
inga á dýrum séu brotin. Enn fremur
kemur fram í svari lögfræðinganna
að í mörgum tilfellum hefði ekki átt
að heimila flutninga dýranna milli
landa þar sem flutningsaðilar hefðu
ekki getað sýnt fram á að þeir stæðust
lágmarkskröfur Evrópusambandsins
um dýravelferð meðan á flutningun-
um stendur.
Nautgripir útataðir í skít
Eitt myndbandið sýnir gripi frá
Þýskalandi, Ungverjalandi, Póllandi
og Slóveníu sem er verið að reka um
borð í flutningaskip í Króatíu. Þaðan
átti að flytja gripina sjóleiðina til
Beirút. Myndbandið sýnir greinilega
að dýrin eru barin áfram, að sparkað
er látlaust í þau og þeim gefið raflost
í rassboruna til að reka þau áfram og
flýta fyrir lestun skipsins.
Sauðfé er rifið upp á ullinni og
því kastað um borð. Nautgripir missa
fæturna og renna aftur á bak niður
í lestina eftir að hafa í örvæntingu
reynt að klofast yfir sauðfé til að
komast undan raflosti.
Á öðru myndbandi má sjá afferm-
ingu nautgripa úr flutningaskipi í
Tyrklandi. Gripirnir, sem voru frá
Írlandi, höfðu verið tvær vikur um
borð í skipinu á leiðinni. Húð naut-
gripanna, frá klaufum og upp á haus,
er klepruð af skít þar sem ekki hefur
verið hirt um að þrífa undan þeim á
leiðinni. Til að spara lestarpláss eru
þrengsli mikil í lest flutningaskips-
ins. Við uppskipun er nautgripunum
troðið á opna vörubíla þar sem þeir
hossast og kastast til á meðan þeim
er ekið síðasta spölinn að geymslu-
hólfi við sláturhúsið.
Slátrað úti á götu
Dæmi eru um að nautgripum og
sauðfé sem flutt hefur verið frá lönd-
um Evrópusambandsins sé slátrað
á blóðvelli við götumarkaði eða á
götum utan við íbúðarhús en lög í
Evrópu banna slíkt. Í myndbandi
frá götumarkaði frá Jórdaníu sést
sauðkind, sem illa hafði tekist til við
að skera á háls, spriklandi í dauða-
teygjunum á blóðþakinni gangstétt.
Annað myndband frá Tyrklandi
sýnir spriklandi nautgrip, sem búið
er að hengja upp á öðrum afturfætin-
um, á meðan hann er margsinnis
skorinn á háls og látinn blæða út.
Auknir flutningar
Gríðarleg aukning hefur orðið í
flutningum á lifandi gripum frá lönd-
um Evrópusambandsins til slátrunar
í Mið-Austurlöndum undanfarin ár.
Fjöldi nautgripa sem fluttur var frá
Evrópu til Mið-Austurlanda til slátr-
unar árið 2015 var um 650 þúsund.
Fjöldi sauðfjár var á sama ári um 2,5
milljón og fór mest af því til Líbýu,
Líbanon og Jórdaníu.
Græðgi á kostnað dýravelferðar
Í umfjöllun Guardian er haft eftir
talsmanni dýraverndunarsamtak-
anna, Animal Welfare Foundation
(AWF), að dýraníðið sem á sér stað
við flutningana sé rekið áfram af
græðgi og gróðahyggju og ekki
sé hikað við að draga úr kostnaði
við flutningana á kostnað vel-
ferðar gripanna. Auk þess sem
Evrópusambandið hafi dregið úr
fjárframlögum sem ætluð eru til
eftirlits með dýravelferð.
Eftir að hafa horft á hluta mynd-
bandanna hafa Evrópuþingmenn
Þýskalands, Frakklands, Litháen
og Finnlands kallað eftir því að
farið verði fram á ítarlega rannsókn
á flutningunum og að eftirlit með
þeim verði aukið.
Fæðuöryggi, umhverfisvernd og
lýðheilsa
Í framhaldi af umræðu um illa með-
ferð á dýrum við flutninga á milli
landa var haft eftir framkvæmdastjóra
Eurogroup, sem er óopinber sam-
ráðsvettvangur fjármálaráðherra
Evrópusambandsríkjanna sem
nota evruna sem gjaldmiðil, að ríki
Evrópusambandsins væru í raun
að flytja út dýraníð í stórum stíl og
að það væri ósýnilegt langflestum
íbúum álfunnar.
„Brot á reglum um flutninga á lif-
andi dýrum milli landa sýna svo ekki
verður um villst að við ættum að
þróa kerfi þar sem húsdýr eru alin og
þeim slátrað sem næst fæðingarstað
þeirra. Þetta skiptir ekki einungis
máli hvað varðar dýravelferð held-
ur er einnig grundvallaratriði þegar
kemur að fæðuöryggi, umhverfis-
vernd og lýðheilsu.“ /VH
Útflutningur á dýraníði frá Evrópusambandinu:
Ill og ólögleg meðferð á sláturgripum
Nautgrip slátrað á götu í Mið-Austurlöndum.
Dæmi eru um að sauðfé sé slátrað á blóðvelli á matarmörkuðum.
Í sumum tilfellum sjást skel ngu lostnir, spriklandi og hljóðandi nautgripir
sem verið er að skera á háls og slátra við ömurlegar aðstæður.
UTAN ÚR HEIMI