Bændablaðið - 23.03.2017, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Big Bud 747 hefur lengi verið köll-
uð stærsta dráttarvél sem nokkru
sinni hefur verið smíðuð. Ekki
hefur Bændablaðið vitneskju um
að því stærðarmeti hafi enn verið
skákað.
Þessi vél var sérsmíðuð í Havre
í Montana í Bandaríkjunum árið
1977. Hún var líka kölluð 16V747
Big Bud og er af framleiðanda og
eigendum sögð vera stærsta dráttar-
vél heims, eða „World largest farm
Tractor“. Það þykir m.a. merkilegt
í dag að vélin var með 8 rása segul-
bandstæki auk útvarps í stýrishúsi.
50 plóga traktor
Þegar talað er um getu, þá miðuðu
amerískir bændur hér áður fyrr
oft við það hvað vél gat dregið af
svokölluðum „Mouldbord“plógum.
Í þeim samanburði var Big Bud 747
talinn vera 50 plóga traktor.
Helstu stærðir:
• Hæð: Frá jörð upp á þakbrún
var 4,3 metrar.
• Lengd: 8,2 metrar.
• Breidd á vél: 4,06 metrar.
• Breidd með brettum: 6,35
metrar.
• Hjólahaf: 4,95 metrar.
• Öxlar: Clark D-85840.
• Dekk: 8 stykki 2,4 metrar
í þvermál, 1,010 metrar á
breidd (38x35 16).
• Eigin þyngd: 48 tonn.
• Olíutankur: 3.800 lítrar.
• Þyngd með olíu og ballest:
68 tonn.
• Vél: Detroit Diesel 16V92T
- 16 strokka tvígengisvél.
• Afl: 760 hestöfl (570 kW). -
Var síðan aukið í 860 hestöfl
(640 kW) og aftur í 960 hest-
öfl (720 kW).
• Slagrými: Samtals 24,1 lítri
(1.472 cid), eða 1,5 lítarar á
hverjum strokk (sílindra)
• Inntak: 2 túrbínur og 2 ofur-
túrbínur.
• Tog vélar: 4.200 Newton
metrar við 3.401 snúning á
mínútu (ekki ljóst hvort það
er út við hjól eða frá vél)
• Startari: 24 volt.
• Rafkerfi á vél: 12 volt.
• Rafall: 75 amper.
• Skipting: Sex gírar áfram 1
gír afturábak.
• Átaksmiðað glussakerfi:
Hámarksflæði 245,96 lítrar á
mínútu.
• Glussatankur: 567,64 lítrar.
• Búnaður í stýrishúsi:
Loftkæling, miðstöð, vinnu-
konur, snúningsstóll og
aukasæti. AM/FM útvarp
og 8 ára segulband smíðað
1977.
Fyrstu tvær Big Bud voru minni
Fyrstu tvær Big Bud dráttarvélarnar
voru af 250 seríu sem var talsvert
minni en 747 og voru þær fram-
leiddar fyrir Leonard M. Semenza
á Semenza-búgarðinum árið 1968.
Þessi búgarður er staðsettur á milli
Fort Menton og Chester í Montana-
ríki. Jörðin er þokkaleg spilda, alla-
vega á íslenskan mælikvarða, eða
35 þúsund hektarar.
Big Bud 747 smíðaður fyrir
bómullarbændur
Big Bud 747 var aftur á móti upp-
haflega hönnuð af Wilbur Hensler
og smíðuð af Ron Harmon og
hans starfsmönnum hjá Northern
Manufacturing Company. Kostaði
fyrsta vélin 300.000 dollara, eða
sem svarar 33,3 milljónum króna
miðað við gengi um miðjan dag 13.
mars sl. Þessi risavél var smíðuð
fyrir Rossi Brothers sem stunduðu
bómullarrækt í Bakersfield eða á
Old River-svæðinu í Kaliforníu. Þar
var vélin notuð í 11 ár eða þar til
hún var seld til Willowbrook Farms
í Indialantic í Flórída.
Á báðum býlunum var hún notuð
til að „rippa“ eða djúprista land,
„deep ripping“. Eftir að vélin hafði
staðið ónotuð um tíma var hún svo
seld til Roberts og Randy Williams
frá Big Sandy í Montana. Sá bær er
í tæplega 100 km fjarlægð frá þeim
stað þar sem vélin var smíðuð 1997.
Var vélin síðan notuð af Williams-
bræðrum í Chouteau-sýslu til að
draga 24 metra langan rifherfi
(cultivator). Með þessu verkfæri
var hægt að plægja hálfan hektara
á mínútu miðað við 13 km hraða á
klukkustund.
Sérsmíðuð dekkin á Big Bud
747 voru framleidd af United Tire
Company í Kanada. Þegar ákveðið
var að hætta að nota Big Bud í júlí
2009 og setja gripina á safn, var
afleiðingin m.a. sú að dekkjafram-
leiðandinn fór á hausinn árið 2000.
Big Bud 747 var síðan sýndur
á safni Heartland Acres Agribition
Center í Independence í Iowa-ríki.
Vélin var síðan flutt á Heartland-
safnið í Clarion í Iowa þar sem
Williams-bræður kostuðu sérstakan
sýningarbás fyrir vélina árið 2013
undir nafninu Williams Big Bud.
/HKr.
TÆKNI&VÍSINDI
Stóri Bud er engin smásmíði en einu sinni þótti gamla John Deere-dráttarvélin, sem stendur við hlið hans, heldur enginn kettlingur.
Stærsta dráttarvél heims, Big Bud 747, er nú á Heartland-safninu í Clarion í Iowa í Bandaríkjunum. Myndir / HEARTLAND MUSEUM
Í kjölfar þess að ákveðið var að hætta notkun á Big Bud 747 og setja vélina
á safn fór kanadíski dekkjaframleiðandinn á hausinn.
– Fulllestuð af olíu og ballest vegur hún 68 tonn, er með 16 strokka og 960 hestafla tvígengisvél og 3.800 lítra eldsneytistank