Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Fjölbreytni búfjárkynja eða
afbrigða innan búfjárstofna í
heiminum er á hröðu undanhaldi.
Í World Watch List for Domestic
Animal Diversity sem Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna og Umhverfisstofnun
Sameinuðu þjóðanna gefa út í
sameiningu segir að síðastliðin
100 ár hafi um eitt þúsund
búfjárkyn dáið út og nýlegar
kannanir benda til að eitt af
hverjum þremur búfjárkynjum
sé í útrýmingarhættu.
Gögnum til vinnslu skýrslunnar
var safnað í 170 löndum og náði til
6.500 ólíkra kynja af nautgripum,
geitum, sauðfé, kameldýrum,
buffalóum, jakuxum, svínum,
hestum, kanínum, hænsnum,
kalkúnum, gæsum, dúfum og
strútum.
Samkvæmt viðmiðum FAO telst
búfjárkyn vera í útrýningarhættu sé
fjöldi kvendýra í hverju kyni undir
2.700 til 7.200 einstaklingar.
Bæði spendýr og fuglakyn
í hættu
Búfé er gríðarlega mikilvægt í
landbúnaði og fyrir matvæla-
framleiðslu í heiminum og
milli 30 til 40% af heimsveltu
fjármagns í landbúnaði tengist
búfjárframleiðslu. Um það bil einn
þriðji mannkyns byggir lífsafkomu
sína á störfum tengdum búfjárhaldi
og búfjárframleiðslu og gert er ráð
fyrir að framleiðsla á kjöti, mjólk
og eggjum á heimsvísu eigi eftir
að margfaldast á næstu árum til að
mæta auknum fólksfjölda.
Í alþjóðlegum gagnabanka FAO
er að finna upplýsingar um 6.379
búfjárkyn 30 ólíkra búfjártegunda,
spendýra og fugla. Upplýsingar
um fjölda einstaklinga í rúmlega
fjögur þúsund kynjum er þekktur.
Í gagnabankanum eru heimildir
um tæplega 800 kyn sem þegar
eru útdauð og tæplega 1.400, um
það bil þriðjungur, sem sögð eru
standa tæpt eða vera á mörkum þess
að deyja út.
Fjöldi búfjárkynja spendýra í
útrýmingarhættu hefur aukist frá
23 í 33% frá 1995. Ástand ólíkra
fuglategunda sem nytjaðir eru sem
búfé er enn verra því talið er að
ríflega 63% kynja ólíkra nytjafygla
séu í hættu. Í skýrslunni segir
að ef ekkert verði að gert muni
meira en 2.000 ólík búfjárkyn eða
afbrigði þeirra deyja út fljótlega.
Hvert kyn fyrir sig er sérstakt og
útdauði óafturkræfur og högg
fyrir líffræðilegan fjölbreytileika í
heiminum.
Innflutningur kynja ógn við
náttúrulega fjölbreytni
Helsta ógnin við fjölbreytileika
búfjárstofna í heiminum í dag
er flutningur kynbætts búfjár
með mikla framleiðslugetu, eða
svokallaðra framleiðslustofna, frá
þróuðum löndum til vanþróaðra.
Slíkur flutningur búfjár leiðir oft til
kynblöndunar við dýrastofnana sem
fyrir eru eða að þeim er skipt út fyrir
ný kyn.
Í þróunarlöndunum er oftast
litið svo á að búfé frá þróuðum
löndum gefi meira af sér innlent
búfé. Í flestum tilfellum er þetta rétt
en vandamálið er að innlenda féð
hefur þróast við aðstæðurnar í hverju
svæði fyrir sig og í fæstum tilfellum
þrífst mikið kynbætt eða framræktað
búfé við þær umhverfisaðstæður sem
er að finna víða í þróunarlöndunum.
Talið er að um 4.000 búfjárkyn
séu nytjuð í dag, þar af eru 400 í
skipulögðu eldi og er þau öll að
finna í þróuðu löndunum. Í mörgum
löndum er lítill markaður og því
fjárhagsleg hvatning fyrir bændur til
að halda við gömlum búfjárkynjum.
Í öðrum tilfellum hafa innlend kyn
neikvæða ímynd og sögð hafa litla
framleiðslugetu þrátt fyrir þolgæði
þeirra gagnvart umhverfisaðstæðum.
Dæmi um búfjárkyn í hættu
Samkvæmt upplýsingum frá
Erfðalindasetri Landbúnaðarháskóla
Íslands telst íslenski geitastofninn
vera í útrýmingarhættu þrátt fyrir
að mikið verk hafi verið unnið
undanfarin ár til að verja hann. Í dag
telur íslenski geitastofninn rúmlega
1.200 dýr. Einnig er líklegt að telja
verði íslenskt forustufé í flokk með
dýrum í útrýmingarhættu eftir að það
var greint sem sérstakt kyn.
Á Madagaskar er nautgripakyn
sem kallast Renitelo á mörkum þess
að deyja út. Kynið er mjög vel aðlagað
umhverfisaðstæðum á eyjunni og
þekkist hvergi annars staðar. Chiapas-
sauðfé, sem nýtt hefur verið í rúm 500
ár í Mexíkó vegna ullarinnar og er
talið heilagt og því ekki til matar, er
á hröðu undanhaldi í landinu vegna
minni sölu á varningi úr ull.
Í Víetnam er til nautgripakyn sem
kallast H'Mong og var nánast óþekkt
til ársins 1997 þar sem eldi þess var
á mjög einangruðu svæði. Kynið er
mjög vel aðlagað að lífinu í fjöllum í
3.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Auk
þess sem þýska Hinterwälder Rind-
nautgripakynið, sem finnst aðallega í
Svartaskógi, er talið vera í hættu og í
Rússlandi er kyn jakuxa, sem eru vel
aðlagaðir að ísköldu loftslagi Síberíu,
komið niður fyrir 1.000 dýr.
Viðhald kynja nauðsynlegt
Samkvæmt því sem segir í skýrslunni
er nauðsynlegt að viðhalda sem
flestum kynjum og staðbrigðum
búfjár. Fjölbreytnin gerir bændum
fært að nytja kyn sem brugðist geta
við umhverfisbreytingu, sjúkdómum
og eftirspurn neytenda.
Fjölbreytni í genamengi
búfjárstofna er einnig nauðsynleg
til að stofnarnir geti brugðist við
sjúkdómum.
Samkvæmt skýrslunni er sjálfbær
verndun besta leiðin til að viðhalda
fjölbreytni búfjárkynja í heiminum og
tryggja áframhaldandi tilvist þeirra.
Líffræðileg fjölbreytni á undir högg að sækja:
Eitt af hverjum þremur búfjárkynjum í útrýmingarhættu
Íslenski geitastofninn telst vera í útrýmingarhættu þrátt fyrir að mikið verk
Mynd/ghp
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is