Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 Búskapur er okkar fag: Bændafundir BÍ um allt land í næstu viku Forystufólk Bændasamtaka Íslands heldur til fundar við bændur nú í upphafi árs. Alls eru skipulagðir 18 almennir bændafundir víðs vegar um landið í næstu viku. Fundirnir hefjast á þriðjudaginn kemur. Fulltrúar Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verða með í för og ræða um framtíðarsýn og þróun ráðgjafarþjónustu. Að sögn Sindra Sigurgeirssonar, formanns BÍ, er af mörgu að taka. Rætt verður um stöðuna í landbúnaðinum og farið vítt yfir sviðið. Árið 2017 var fyrsta ár nýrra búvörusamninga og fyrir liggur fyrsta endurskoðun þeirra. Þá er nýlegur dómur EFTA- dómstólsins um innflutning á hráu kjöti og eggjum bændum umhugsunarefni og ljóst að því máli er hvergi nærri lokið. Sindri segir að viðfangsefni næstu missera verði áfram þau að bæta hag bænda og móta framtíðarsýn fyrir atvinnugreinina. Hann segir mikilvægt fyrir bændastéttina að standa saman og að rödd hennar hljómi sem víðast og sterkast. „Við verðum að gæta hagsmuna landbúnaðarins og þess vegna rekum við öflug Bændasamtök,“ segir Sindri í bréfi til félagsmanna á bls. 39 hér í blaðinu. Hádegis- og kvöldfundir Fundirnir hefjast í hádeginu þriðjudaginn 16. janúar með fundum á Ísafirði, Kópaskeri og Egilsstöðum. Á þriðjudagskvöld kl. 20.30 verða fundir í Kjós, Breiðamýri og Berufirði. Í hádeginu á miðvikudag 17. janúar verða fundir á Blönduósi, í Eyjafirði og í Hornafirði. Kvöldfundir á miðvikudag verða í Skagafirði, á Ströndum og á Kirkjubæjarklaustri. Í hádeginu á fimmtudag verða fundir á Snæfellsnesi, í Heimalandi og á Barðaströnd. Fundalotunni lýkur með kvöldfundum í Dölum, á Hvanneyri og í Þingborg í Flóa. Al l i r fé lagsmenn í Bændasamtökum Íslands eru velkomnir á fundina. Nánari upplýsingar um staði og tímasetningar er að finna á bondi. is og í auglýsingu á bls. 39. /TB Um síðustu áramót voru þrjú varnarhólf á Austurlandi losuð undan höftum riðuskilgreiningar. Enn eru þó níu af 26 hólfum á landinu skilgreind sem sýkt og ekki sér fyrir endann á baráttunni við sjúkdóminn. Matvælastofnun ítrekar mikilvægi þess að allir sauðfjáreigendur séu vakandi og hafi samband við héraðsdýralækni án tafar, verði þeir varir við einkenni sem gætu bent til riðu. Á heimasíðu Matvælastofnunar segir að samkvæmt reglugerð nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar er svæði skilgreint sem sýkt svæði í 20 ár frá staðfestingu riðutilfellis í hólfinu. Á sýktum svæðum eru allir flutningar á fé milli hjarða innan svæðanna og frá þeim, yfir varnarlínur, bannaðir. Hafi hins vegar ekkert tilfelli verið staðfest í 20 ár í hólfi, telst það hreint. Þrjú hólf losna Þann 31. desember 2017 losnuðu þrjú varnarhólf undan höftum riðuskilgreiningar. Það eru hólfin Norðausturhólf, Héraðshólf og Austfjarðahólf. Þá má flytja fé frjálst innan þessara hólfa, en áfram gildir þó að ekki er heimilt að flytja fé milli varnahólfa, það er að segja yfir varnarlínur nema að fengnu leyfi Matvælastofnunar. Suðurfjarðarhólf telst enn sýkt Við breytinguna varð Suðurfjarðahólf eina varnarhólfið á Austurlandi sem enn telst sýkt. Riðuveikin lék Austfirðinga grátt hér á árum áður. Skipulagður niðurskurður vegna riðuveiki hófst á Austurlandi haustið 1986, þá voru skornar þrjú þúsund kindur. Ári síðar var fimmtán þúsund kindum lógað og haustið þar á eftir þrjú þúsund. Þar með lauk niðurskurði alls fjár á svæði sem afmarkast af botni Reyðarfjarðar að sveitarmörkum Valla og Skriðdals á Héraði norður að Lagarfljóti. Jafnframt var á þessum tíma öllu fé á Borgarfirði eystra lógað. Mikilvægt að sauðfjáreigendur haldi vöku sinni Í ljósi sögunnar verður áfram mikilvægt að sauðfjáreigendur séu vakandi fyrir einkennum riðuveikinnar og hafi samband við héraðsdýralækni ef kind sýnir grunsamleg einkenni. Einnig ef kindur drepast heima við eða þeim slátrað vegna sjúkdóma eða slysa. Þá skal hafa samband við Matvælastofnun og séð verður til þess að sýni séu tekin, bændum að kostnaðarlausu. /VH Innflutningur landbúnaðarvara hefur aukist hröðum skrefum undanfarin ár og má búast við að niðurfelling tolla auki þann innflutning enn frekar. Miðað við tölur Hagstofu Íslands um innflutning á búvörum í nóvember síðastliðnum, þá jókst innflutningur á nautakjöti frá áramótum til loka nóvember um 28% frá árinu 2016. Var breytingin á milli ára því 128%. Þá nam aukningin um 33% á svínakjöti og 15% á alifuglakjöti. Þá jókst innflutningur á reyktu, söltuðu og þurrkuðu kjöti um 21%. Eins ríflega tvöfaldaðist innflutningur á pylsum og unnum kjötvörum og var aukningin 106% og breyting þessa 11 mánuði því 206% frá sama tímabili 2016. Veruleg aukning á innflutningi mjólkurafurða Varðandi mjólkurvörur var aukningin mun meiri, eða hvað varðar mjólk, mjólkur- og undanrennuduft og rjóma. Þar var aukningin þessa 11 mánuði milli ára 72%. Umtalsverð aukning var einnig í innflutningi á sumu grænmeti og var þar t.d. aukning í innflutningi á tómötum um 14%. Aukinn innflutningur vinnur gegn minnkun á CO2 Athyglisvert er að skoða þetta í ljósi þess kolefnisspors sem matvælaframleiðsla og flutningar skilja eftir sig og fjallað er um á forsíðu og á blaðsíðum 20 og 21. Þar kemur í ljós að með hliðsjón af losun gróðurhúsalofttegunda, þá er í öllum tilfellum hagstæðara að framleiða vöruna sem næst neytendum og í mörgum tilfellum skilur íslenska framleiðslan eftir sig mun minna kolefnisspor en erlend framleiðsla. Þar spilar hrein orka á Íslandi stóra rullu, sér í lagi í garðræktinni. Aukinn innflutningur á landbúnaðarafurðum vinnur því greinilega gegn markmiðum um að draga úr losun CO2 og annarra gróðurhúsalofttegunda. /HKr. Innflutningur eykst stöðugt á landbúnaðarafurðum FRÉTTIR Nýtt áhættuflokkunarkerfi fyrir bændur tekið í notkun hjá MAST – Frammistöðuflokkun tekin upp eftir þrjú ár Í byrjun þessa árs tók Matvælastofnun í notkun nýtt áhættuflokkunarkerfi. Með kerfinu verður ákvörðuð tíðni eftirlits með frumframleiðslu matvæla og öðru dýrahaldi. Í kjölfarið verður tekin upp frammistöðuflokkun frumframleiðenda í landbúnaði. Kerfið var kynnt hagsmuna- aðilum á opnum fundi Matvælastofnunar 2. nóvember síðastliðinn og var svo til umsagnar í desember síðastliðnum. Jónína Þ. Stefánsdóttir, fagsviðsstjóri samhæfingar hjá Matvælastofnun, hefur umsjón með áhættuflokkuninni. Spurð hvort kerfinu sé meðal annars ætlað að koma í veg fyrir að aðbúnaðarvandamál komi upp hjá frumframleiðendum, eins og gerðist til að mynda í Brúneggjamálinu, segir hún að kerfið taki á samræmdu mati á þörf á eftirliti. „Kerfið mun ekki eitt og sér koma í veg fyrir að upp geti komið vandamál með aðbúnað eða umhirðu dýra. Kerfið er liður í að allt reglubundið eftirlit sé byggt á áhættumati og taki mið af frammistöðu eftirlitsþega. Kerfið hefur verið innleitt fyrir eftirlit Matvælastofnunar í matvæla- og fóðurfyrirtækjum á undanförnum árum og nú er verið að innleiða það á bændur. Þessu kerfi er ætlað að meta þörf á eftirliti á samræmdan hátt milli allra eftirlitsþega þannig að þunga eftirlitsins sé beint þar sem áhætta er mest og frammistaða verst.“ Frammistöðuflokkun að þremur árum liðnum Jónína segir að bændur muni finna fyrir því að tíðni eftirlits með þeirra starfsemi breytist í kjölfar áhættuflokkunar og það verði markvissara. „Neytendur munu einnig njóta góðs af markvissara eftirliti með matvælaöryggi og dýravelferð. Að þremur árum liðnum mun frammistöðuflokkun taka gildi. Þá getur eftirlitstíðni aukist eða minnkað eftir því hvernig gengur að uppfylla kröfur löggjafar og uppfylla þannig skilyrði sem sett eru fyrir færslu milli frammistöðuflokka. Gera má ráð fyrir að niðurstöður úr frammistöðuflokkunarkerfinu geti orðið aðgengileg almenningi, en samkvæmt texta í frumvarpi um breytingar á lögum um matvæli sem kynntar voru síðastliðið sumar var ráðgert að ráðherra myndi ákveða með hvaða hætti frammistöðuflokkun yrði birt og hvort skýrslur yrðu birtar.“ Í inngangi skjalsins um kerfið kemur fram að kerfið verði notað af Matvælastofnun til að meta eftirlitsþörf út frá áhættu starfseminnar og niðurstöðum úr eftirliti. Samkvæmt íslenskri löggjöf er Matvælastofnun skylt að haga tíðni opinbers eftirlits með dýravelferð og matvælaöryggi eftir áhættu. Kerfið tekur til þeirra sem halda nautgripi, sauð- og geitfé, hross, svín, alifugla og loðdýr – og falla undir lögbundið eftirlit MAST. Áhættuflokkun sem unnið verður eftir hefur farið fram; annars vegar varðandi dýravelferð og hins vegar matvælaöryggi. Áhættuflokkar gefa ákveðna grunneftirlitstíðni. Aðrir þættir hafa áhrif á hver heildareftirlitstíðni verður og á það hversu marga eftirlitstíma þarf. Þrír frammistöðuflokkar Frammistaða verður flokkuð í flokkana A, B og C eftir fjölda og alvarleika frávika við einstök skoðunaratriði og hvernig staðið er að úrbótum. Þetta er að sögn Jónínu með líkum hætti og gert er varðandi frammistöðuflokkun fóður- og matvælafyrirtækja. Þeir sem standa sig vel fá minna eftirlit og þar með lægri eftirlitsgjöld, en þeir sem standa sig illa fá tíðara eftirlit og hærri eftirlitsgjöld. /smh Í ljósi sögunnar verður áfram mikilvægt að sauðfjáreigendur séu vakandi fyrir einkennum riðuveik- - dýralækni ef kind sýnir grunsamleg einkenni. Sauðfjárveikivarnir: Aflétting riðuhafta í varnarhólfum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.