Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 Loðnan er einn af mikilvægustu nytjafiskum Íslendinga og jafnframt sá fiskur sem mest óvissa ríkir um. Á árinu 2016 var útflutningsverðmæti loðnuafurða rúmir 18 milljarðar króna og kom loðnan næst á eftir þorskinum að verðmætum. Íslenski uppsjávarflotinn er öflugur og er loðnan drjúgur hluti af veiðiheimildum hans. Seinni árin hefur eiginleg loðnuvertíð ekki hafist fyrr en í janúar og oft og tíðum renna menn blint í sjóinn í upphafi vertíðar með hve mikið megi veiða af loðnu vegna þess hve erfiðlega hefur gengið að mæla veiðistofninn. Að þessu sinni liggur upphafskvóti í loðnu fyrir þótt hann sé ekki mikill. Því geta veiðar hafist en vonir standa til að kvótinn verði aukinn. Tínd á fjöru, veidd í beitu Loðnan var lengst af lítið sem ekkert nýtt hér við land. Helst var hún tínd upp á harðindatímum er hún fannst rekin á fjörur. Á fyrri hluta 20. aldar og fram til ársins 1964 er loðna veidd í beitu í takmörkuðum mæli. Árið 1965 verður gagngerð breyting. Þá er loðna veidd í fyrsta sinn að einhverju marki úr hrygningargöngum suður af landinu til bræðslu. Sumarveiðar íslenskra skipa á loðnu norðan Íslands hófust svo 1976. Norðmenn fóru að veiða loðnu sumarið 1978 nálægt Jan Mayen og skip fleiri þjóða stunduðu þessar veiðar utan lögsögu Íslands. Veiddu mest 1,3 milljónir tonna Loðnuveiðin var lítil fyrst framan af en jókst smám saman. Hún var 50 þúsund tonn árið 1965, tæp 200 þúsund tonn 1971 og 964 þúsund tonn 1979. Til viðbótar veiddu erlendar þjóðir 164 þúsund tonn það ár og heildarveiðin varð því 1.128 þúsund tonn. Mest náðu íslensk skip að veiða 1,3 milljónir tonna af loðnu árið 1997. Hér er um gríðarlegt magn að ræða en þess má geta að árið 2016 veiddu íslensk skip tæpa 1,1 milljón tonna af öllum fisktegundum samanlagt. Á þessari öld hefur loðnuveiðum hnignað. Það náðist að vísu að veiða 1,1 milljón tonna af loðnu árið 2001 en eftir það hefur veiðin verið undir 500 þúsund tonnum á ári. Nokkur ár veiddust aðeins 100 til 200 þúsund tonn og veiðin fór niður í 15 þúsund tonn eitt árið. Á árinu 2017 veiddu íslensk skip 196 þúsund tonn af loðnu. Fjölbreyttar afurðir og taugastríð í lokin Í upphafi var loðnan veidd til að afla hráefnis fyrir fiskismjölsverksmiðjur. Fljótlega var einnig farið að frysta loðnu í verðmætari afurðir til manneldis, í smáum stíl þó. Minni loðnan, jafnt hængur sem hrygna, er fryst fyrir markaði í Austur-Evrópu. Stærri loðnan er fryst fyrir Japansmarkað og er þar um verðmætari afurð að ræða. Í því tilviki er hrygnan flokkuð frá hængnum og fryst sér þegar ákveðinni hrognafyllingu er náð. Framleiðsla á frystri loðnu hefur verið mjög sveiflukennd. Hámarki náði framleiðslan árið 2014 en þá voru fryst rétt um 100 þúsund tonn. Hrognin eru langverðmætasta loðnuafurðin. Mest hefur árs fram- leiðslan náð um 15 þúsund tonnum en það var árið 2007. Hrognin eru unnin seint á vertíðinni þegar þau hafa náð fullum þroska. Þá er skammur tími til stefnu áður en loðnan leggst til hrygningar og ríkir gjarnan mikið taugastríð. Komi bræla síðustu viku vertíðar sem hamlar veiðum gæti það kostað þjóðarbúið milljarða í útflutningsverðmætum. Markaður fyrir loðnuafurðir til manneldis er takmarkaður. Ætla má að um og yfir 200 til 250 þúsund tonn af hráefni dugi fyrir manneldisvinnsluna og vel það. Sé heimilt að veiða meira færi sú loðna í vinnslu fiskimjöls og lýsis en ágætt verð hefur reyndar fengist fyrir þær afurðir lengst af undanfarin ár. Í öðru sæti í verðmætum Loðnan hefur skilað miklum verðmætum í þjóðarbúið þótt aflinn hafi verið afar sveiflukenndur síðustu 15 árin eins og rakið hefur verið. Skiptir þá miklu máli hve mikið tekst að framleiða til manneldis og hvernig staðan er á helstu mörkuðum. Á árinu 2016 nam útflutningur loðnuafurða alls um 18,3 milljörðum króna, eða um 7,9% af heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða það ár. Endanlegar tölur um verðmæti útflutnings fyrir árið 2017 liggja ekki fyrir. Loðnan er næst á eftir þorskinum að verðmæti en á eftir loðnunni koma karfaafurðir með 14,3 milljarða og afurðir ýsu með 14,4 milljarða. Loðnan hefur oft vegið þyngra, bæði í verðmætum og sem hlutfall af heild. Árið 2013 gaf loðnan 33,7 milljarða og nam 12,4% af heildarútflutningi sjávarafurða. Á árinu 2002 voru loðnuafurðir tæp 16% af heild. Rússabannið dýrkeypt Stærstur hluti af frystum loðnuafurðum frá Íslandi fer til ríkja í Austur-Evrópu. Lengi vel var Rússlandsmarkaður þýðingarmestur. Í kjölfar þess að Ísland tók þátt í viðskiptabanni Vesturveldanna gegn Rússum lokaðist Rússamarkaður fyrir matvæli frá Íslandi. Þetta var mikið högg fyrir íslenskan sjávarútveg, ekki síst fyrir framleiðendur á loðnuafurðum. Noregur er mikilvægasti markaðurinn fyrir loðnumjöl. Áhugaverður lífsferill Lífsferill loðnunnar er áhugaverður en hún ferðast óralangar leiðir á skammri ævi. Loðnan hrygnir aðallega frá suðaustanverðu landinu og allt vestur í Breiðafjörð. Einnig hrygnir lítill hluti af stofninum fyrir norðan land þegar skilyrði eru fyrir hendi. Seiðin berast vestur og norður fyrir land, inn í Grænlandssund og Íslandshaf. Ungloðna, eins árs og yngri, heldur sig við utanvert landgrunn, frá Grænlandssundi til Norðausturlands. Á öðru ári fer loðnan í miklar ætisgöngur lengst norður í höf. Hún snýr til baka og er komin á veiðislóðir norður af landinu undir lok ársins og þaðan gengur hún austur fyrir land. Hrygningargöngunni lýkur yfirleitt um og eftir miðjan mars. Loðnan drepst að hrygningu lokinni. Hér áður fyrr var loðna veidd á sumrin og haustin norður af landinu en á veturna fyrir austan og sunnan land. Í seinni tíð fer veiðin nær eingöngu fram að vetri og ber þriggja ára loðna þá veiðina uppi. Einhver lítill hluti veiðistofnsins er þó fjögurra ára. Breytt göngumynstur Hlýnun sjávar hefur haft mikil áhrif á loðnustofninn. Útbreiðsla hans hefur breyst og brestur í nýliðun orðið algengari. Uppeldisstöðvar ungloðnu eru nú vestar og meira inni í grænlensku lögsögunni en áður. Veiðistofninn heldur sig einnig vestar en hann gerði fyrir árið 2000. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um veiðar á loðnu byggist á mælingum á veiðistofni sem fram fara að hausti og síðan aftur í janúar/ febrúar þegar loðnan hefur náð að þétta sig og betur tekst að ná utan um stofninn. Oft hafa síðustu mælingar leitt til þess að kvótinn er aukinn. Misfarist haustmælingin, sem hefur iðulega gerst hin seinni ár, verður að treysta á að loðnan finnist í janúar/febrúar. Dæmi eru um það að ekki hafi legið fyrir fyrr en í lok janúar eða byrjun febrúar hvort yfirleitt mætti veiða einhverja loðnu á vertíðinni. Flókin skipting heildarkvótans Í haust lagði Hafrannsóknastofnun til í kjölfar stofnmælinga að í heild mætti veiða 208 þúsund tonn af loðnu. Kvótinn skiptist milli þriggja strandríkja: Íslendingar fá 81% af heildinni, Grænlendingar fá 11% og Norðmenn 8%. Þessi skipting segir ekki alla söguna því loðnukvótarnir eru að hluta til notaðir sem skiptimynt í margvíslegum fiskveiðisamningum þjóða í milli. Þannig hafa Íslendingar framselt rúm 30 þúsund tonn af sínum kvóta til Norðmanna sem gjald fyrir Smugusamninginn svonefnda sem veitir Íslendingum rétt til að veiða þorsk í norsku lögsögunni í Barentshafi. Af um 168 þúsund tonna kvóta sem Ísland átti rétt á í byrjun stóðu því aðeins eftir um 127 þúsund tonn sem úthlutað hefur verið til íslenskra skipa. Í þeirri tölu var gert ráð fyrir að Íslendingar létu Færeyingum í té 10.400 tonn af sínum kvóta. Sú veiðiheimild hefur reyndar verið afturkölluð þar sem ekki náðist samkomulag við Færeyinga um gagnkvæmar fiskveiðar. Grænlendingar láta ESB hafa um það bil tvo þriðju af loðnukvóta sínum. Yfirleitt leigja Norðmenn þennan kvóta af ESB. Eiginlegur kvóti Norðmanna er aðeins tæp 17 þúsund tonn. Þeir fá hins vegar tæp 17 þúsund tonn af grænlenska kvótanum frá ESB og um 30 þúsund tonn frá Íslendingum og geta því veitt alls tæp 64 þúsund tonn. Norðmenn mega veiða allan kvóta sinn í íslenskri lögsögu. Grænlendingar mega veiða hér tæp 7 þúsund tonn og ef Færeyingar og Íslendingar leysa ágreining sinn um gagnkvæmar veiðar og semji á sömu nótum og áður fá Færeyingar væntanlega að veiða hér 10.400 tonn. Loðnan skilar tugmilljarða verðmætum Málgagn Landssambands fiskeldisstöðva: Fiskeldisblaðið Fyrsta tölublað Fiskeldisblaðsins, sem gefið er út af fjölmiðlun.is í samstarfi við Landssamband fiskeldisstöðva, kom út í desember síðastliðnum. Til stendur að blaðið komi út átta sinnum á ári. Blaðið, sem er í dagblaðsformi, er prentað í tólf þúsund eintökum og dreift frítt inn á heimili á Austfjörðum og Vestfjörðum, auk þess sem blaðinu er dreift til valinna fyrirtækja og stofnana. Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar Landssambands fiskeldisstöðva, segir í leiðara blaðsins, sem ber fyrirsögnina Engir eftirbátar: „Það er vaxandi fæðuþörf í heiminum, eftirspurn eykst ár frá ári, lífskjör á heimsvísu hafa batnað, sjávaraflinn er takmörkuð auðlind og landrými til matvælaframleiðslu víða takmarkað. Það er því almennt viðurkennt að aukinni fæðuþörf verður að mæta með vaxandi fiskeldi.“ Einar segir einnig að fiskeldi geti á næstu árum orðið meginstoð í íslensku atvinnulífi og skapað þúsundir starfa. Í blaðinu, sem er 16 síður, er einnig að finna viðtöl og umfjöllun um fiskeldi frá ýmsum áttum. Ritstjóri fiskeldisblaðsins er Freyr Einarsson og blaðamaður Friðrik Einarsson. /VH Bandaríkjamaðurinn William Miller, sem varð einna frægastur þessara manna, hóf að spá heimsendi árið 1831 og linnti ekki látum fyrr en 1843, árið sem hann taldi að heimsendir yrði. William Miller fæddist árið 1782 og ólst upp á bóndabæ í Massachusetts við lítil efni en las mikið. Miller kvæntist ungur en þótti sinna bókum sínum meira en konunni. Hann varð snemma afhuga öllum trúarbrögðum. Mikil breyting varð á högum Millers þegar hann gekk í herinn og barðist í borgarastríðinu 1812. Þegar Miller sneri heim úr stríðinu barðist hann við tilvistarþunglyndi og loks leiddi það hann til andlegrar íhugunar og trúar á Guð. Miller taldi sig geta reiknað út, samkvæmt bókum Biblíunnar, hvenær heimsendir yrði og eftir miklar reikningskúnstir komst hann að því að endalokin myndu eiga sér stað árið 1843. Hann sá einnig fyrir að hinir réttlátu færu til himna, grafir myndu opnast og útvaldir rísa upp og stíga til himna með hinum lifandi. Í fyrstu hélt Miller þessum hugleiðingum fyrir sig en dag nokkurn þegar hann sat og rýndi í góðu bókina þóttist hann heyra rödd sem sagði honum að fara og boða kenningu sína. Miller svaraði: „Drottinn, ég get ekki farið.“ „Af hverju ekki?“ svaraði röddin. Að lokum gerði hann samkomulag við Guð, Miller sagðist myndu boða kenningu sína ef hann einhvern tíma fengi tækifæri til að stíga í predikunarstól. Kraftaverkið lét ekki á sér standa því hálftíma síðar kom ungur maður og bað Miller að hlaupa í skarðið fyrir prest í næsta nágrenni. Miller þurfti ekki fleiri sannanir, Guð ætlaði honum hlutverk. Miller reiknaði út af nákvæmni að heimsendir yrði í apríl 1843 og byggði útreikninga sína að hluta til á Mattheusarguðspjalli, hann sagði einnig að áður en til tíðinda drægi mundu birtast tákn á himni. Honum vildi til happs að í mars 1843 birtist björt halastjarna á himninum, hún var sjáanleg um miðjan dag og á sama tíma fór að bera á einkennilegum hringjum í kringum sólina. Margir sem áður höfðu litið á Miller sem rugludall og bullukoll tóku að trúa orðum hans. Miller efaðist aldrei um útreikninga sína og beið örlaga sinna og heimsins á heimili sínu þar sem hann las Biblíuna. Þegar tók að líða að 21. mars tóku þúsundir fylgjenda hans að undirbúa sig fyrir heimsendi. Þeir hættu að sinna bústörfum og seldu jafnvel hús sín og jarðir. Hörðustu fylgjendurnir fóru meira að segja út í kirkjugarð til að vera viðstaddir þegar hinir látnu risu úr gröfum sínum og stigju upp til himna. Einn þeirra var karlmaður sem stóð við gröf fyrri eiginkonu sinnar og beið eftir uppstigningu hennar. Seinni kona hans reiddist þessu svo að hún neitaði að búa áfram með honum þegar ekkert varð úr heimsendi. Aðrir klifruðu upp í tré eða fóru út á húsþök með heimasmíðaða vængi sem þeir höfðu fest á sig og þegar klukkan sló tólf að kvöldi 21. mars reyndu þeir að fljúga til Guðs. Að minnsta kosti einn fótbrotnaði. /VH Heimsslitaspá STEKKUR HLUNNINDI&VEIÐI Kjartan Stefánsson kjartanst@simnet.is Loðna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.