Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 MATVÆLI&MARKAÐSMÁL Afar vel heppnaður fundur á Hellu um markaðssetningu lambakjöts: Mikil bjartsýni á framtíð íslenska lambakjötsins Á þrettándanum 6. janúar var blásið til opins fundar á Hellu um markaðssetningu á lambakjöti. Aðsóknin var mjög góð og mættu á fjórða hundrað manns á fundinn víða að af landinu. Forsprakkinn að þessari fundarboðun var alþingismaðurinn Ásmundur Friðriksson og var hann að vonum ánægður með mætinguna. Fékk hann IKEA, Kjötkompaníið, Markaðsráð kindakjöts, Bændasamtök Íslands, Bændablaðið og sauðfjárbændur á Suðurlandi til liðs við sig. Fjögur erindi voru flutt á fundinum. Ræðumenn voru Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssambands sauðfjárbænda, Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, Jón Örn Stefánsson, framkvæmdastjóri og eigandi Kjötkompanísins, og Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Markaðsráðs kindakjöts. Við komuna á fundinn var gestum boðið upp á ástarpunga og kleinur frá IKEA sem bakaðar eru samkvæmt gamalli íslenskri uppskrift og steikt í íslenskri tólg. Eftir ræðuhöld var fundargestum svo boðið í lambaréttaveislu að hætti IKEA og Kjötkompanísins. Hlustum á þarfir og vilja neytenda Oddný Steina Valsdóttir sagði m.a. í ræðu sinni á fundinum að skoða þyrfti verðmyndunarferlið í sauðfjárræktinni niður í kjölinn og skoða alla möguleika. Sauðfjárbændur þyrftu stöðugt að vera að minna sig á og helst af öllu að sækja fram hvað varðar vöruþróun og framsetningu. „Við þurfum stöðugt að minna okkur á að hlusta eftir þörfum og vilja neytenda og haga okkar framleiðslu í takt við það.“ Hún sagði að sauðfjárbændur tækju fagnandi þeim fjölmörgu ábendingum sem þeir hafi fengið í almennum umræðum sem sköpuðust í ræðu og riti um vanda sauðfjárbænda í haust. „Þennan kraft þarf að nýta áfram og þess vegna er svo gleðilegt að vera hér í dag þar sem áherslan er á það sem verið er að gera í framsetningu og sölu á vörunni okkar.“ Sagði hún sauðfjárbændur þurfa að einhenda sér í þetta verkefni. „Ef við vinnum af metnaði og krafti, höfum vönduð vinnubrögð og göngum í takt, þá mun okkur takast að ná árangri í því starfi.“ Hefur þrítugfaldað sölu á íslenskum landbúnaðarafurðum á 12 árum Á fundinum lýsti Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, því hvað gert hafi verið þar á bæ til að stórauka sölu á réttum úr kindakjöti á veitingastað IKEA í Garðabæ. Hann talaði hispurslaust og á mannamáli um sína sýn á hvað þyrfti að gera til að ná árangri í sölu á lambakjöti. Sagðist hann almennt vera þeirrar skoðunar að það hljóti að vera betra fyrir alla að nýtt séu matvæli sem framleidd eru sem næst þeim stað þar sem þeirra er neytt, eða með öðrum orðum að takmarka innflutning á mat sé þess kostur. Þórarinn tók við rekstri IKEA árið 2005 og hefur þrjátíufaldað veltuna í veitingarekstri fyrirtækisins á 12 árum. Þá var veltan á veitingasviði verslunarinnar 48 milljónir króna og innlend hráefniskaup 14 milljónir fyrir utan virðisaukaskatt. Á síðasta ári, 2017, var veltan 1.400 milljónir og innlent hráefni, þ.e. kjötvörur, grænmeti, mjólkurvörur og fiskur, var keypt fyrir 400 milljónir króna. IKEA á Íslandi er einkarekið fyrirtæki sem rekið er undir leyfi hins alþjóðlega sænska fyrirtækis IKEA Group. Rekstur hófst á Íslandi árið 1981 sem deild í Hagkaup í Skeifunni. Sænska fyrirtækið var stofnað í Smálöndunum í Svíþjóð árið 1943. Nú er IKEA með rekstur um allan heim, bæði verslanir, eigin hönnunarstofur og verksmiðjur. Rekur fyrirtækið nú 400 verslanir og þar af um 250 í Evrópu og er í örum vexti. Hugmyndafræðin byggir á að framleiða og selja vörur sem flestir hafi ráð á að kaupa. Segir Þórarinn að þetta séu ekki innantóm orð og þetta eigi einnig við verðlagningu á veitingastað IKEA. Ætlar að selja 250 þúsund skammta af lambakjöti 2020 „Ég sé fyrir mér að árið 2020 verði veltan á veitingasviði komin í tvo milljarða gangi mínar hógværu væntingar eftir.“ Sagði Þórarinn að á árinu 2015 hafi verið seldir 14 þúsund skammtar af lambakjötsréttum á veitingastað IKEA. Á árinu 2016 var talan komin í 66 þúsund skammta og 84 þúsund skammta á árinu 2017. „Ég hef tekið þá ákvörðun, byggða á umhverfissjónarmiðum, ættjarðarást, samfélagsábyrgð, viðskiptalegum sjónarmiðum, en síðast en ekki síst á viðtökum viðskiptavina IKEA, að leggja aukna áherslu á lambakjöt á því ári sem var að byrja. Ég er þeirrar skoðunar að sumpart fyrir tilviljun þá hafi IKEA dottið þarna niður á eitthvað stórmerkilegt. Eitthvað sem gæti, ef rétt er haldið á spöðum, breytt landslaginu fyrir íslenska sauðfjárbændur. Á árinu 2018 ætla ég að selja 150 þúsund skammta af lambakjöti. Árið 2020 ætla ég að selja 250 þúsund skammta af lambakjöti.“ Með plön um að stækka IKEA verulega í Garðabæ „Í dag erum við í 26 þúsund fermetrum í Kauptúni og það er allt Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Forsprakkinn að þessari fundarboðun var alþingismaðurinn Ásmundur Friðriksson og var hann að vonum ánægður með mætinguna. Myndir / HKr. Uppskar hann mikið lófatak um 350 fundargesta fyrir þau orð, sem hann varpaði upp á tjald og sjá má á myndinni Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Markaðsráðs kindakjöts, lýsti því einnig frá nýlegri könnun meðal ferðamanna, sem sagt er frá á bls. 10. Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, kall- aði eftir samvinnu bænda, metnaði, krafti og vönduðum vinnubrögðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.