Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 1
1. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 11. janúar ▯ Blað nr. 506 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Íslensk grænmetisframleiðsla er með um helmingi minna kolefnisspor en innflutt grænmeti: Innflutningur landbúnaðarafurða stóreykur losun kolefnis út í andrúmsloftið – Innfluttar matvörur og drykkir skilja eftir sig um eða yfir 41 þúsund tonn af koldíoxíði Samkvæmt úttekt sem verkfræði­ stofa gerði fyrir Samband garðyrkjubænda (SG) er kolefnis­ spor íslensks grænmetis allt niður í 26% af því sem innflutt grænmeti skilur eftir sig. Í afskornum blómum er talan um 18%. Að meðaltali getur verið nærri helmingsmunur á losun CO2 – íslenskri framleiðslu í hag. Samkvæmt útreikningum Bændablaðsins skilja flutningar á 280 þúsund tonnum af matvöru til Íslands vart eftir sig minna en 41 þúsund tonn af koldíoxíði (CO2) á ári. Þessar tölur styrkja óneitanlega þá hreinleikaímynd sem farið hefur af framleiðslu á íslenskum landbúnaðarafurðum. Þetta er um leið þversögn við þá áherslu sem talsmenn hagsmunasamtaka í verslun hafa lagt á aukinn inn­ flutning landbúnaðarafurða, ekki síst hvað varðar hrátt kjöt, egg, mjólkurafurðir og grænmeti. Mikill umhverfisávinningur af aukinni innlendri framleiðslu Mikið hefur verið rætt um að draga úr því kolefnisspori sem Íslendingar skilja eftir sig á hverju ári. Stefna stjórnvalda miðar við að búið verði að kolefnisjafna landið fyrir árið 2050. Ljóst er að það verður ekki gert nema með víðtækum aðgerðum á mörgum sviðum og liður í því gæti verið að efla innlenda matvælaframleiðslu til að draga úr mikilli kolefnismengun sem hlýst af innflutningi. Með því ynnist m.a. gjaldeyrissparnaður, aukið fæðuöryggi þjóðarinnar, styrking byggða og aukin atvinna. Kolefnisspor sem ræktun á grænmeti og ávöxtum skilur eftir sig er æði mismunandi eftir tegundum, samkvæmt gögnum SG sem Bændablaðið hefur undir höndum. Þar hefur kolefnislosun innlendu grænmetisframleiðslunnar verið reiknuð út á sömu forsendum og erlend framleiðsla. Eru erlendu tölurnar reyndar sagðar byggðar á mjög varfærnu mati. Þannig er ræktun á íslensku salati einungis að skilja eftir sig 26,17% af því kolefni sem innflutt erlend salatframleiðsla skilur eftir sig. Þá er gúrkuframleiðsla að skilja eftir sig 43,7% og venjulegir tómatar 54,8%. Munurinn liggur einkum í flutningum. Inni í þessum útreikningum sem gerðir voru fyrir SG er reiknað kolefnisspor á öllum aðföngum, orku og vegna tækja og búnaðar sem notaður er við ræktun á Íslandi og borið saman við það sem þekkist erlendis. Meira að segja íslensku kartöflurnar eru hagstæðari Athygli vekur að í samanburði á útiræktun, t.d. á kartöflum, koma íslenskir kartöflubændur aðeins betur út en kollegar þeirra t.d. í Bretlandi og Hollandi. Skýrist það einkum af orku sem notuð er í kæligeymslum og af kolefnislosun í flutningum. Þar er íslenska kartöfluræktunin að skila um 8 prósentustigum lægri kolefnislosun en erlenda framleiðslan. Það er þrátt fyrir hlutfallslega minni uppskeru og meiri olíunotkun á hvern hektara á Íslandi. Varðandi útiræktað grænmeti, eins og gulrætur, hvítkál og fleira, er kolefnislosunin á Íslandi 88,21% af því sem innflutta grænmetið skilur eftir sig. Íslensk afskorin blóm í ofurflokki Þegar skoðuð eru gögn Sambands garðyrkjubænda um íslenska blómarækt kemur í ljós að sú framleiðsla er í algjörum sérflokki í samanburði við innflutt afskorin blóm. Þar er kolefnisspor íslenskra afurða aðeins 18,44% sem hlutfall af kolefnisspori innfluttra afurða. Þar kemur líka fram að kolefnisspor hollenskra blóma er rúmlega 16 sinnum stærra en afskorinna blóma sem ræktuð eru á Íslandi. Skýringin liggur að stærstum hluta í þeirri hreinu raforku sem notuð er á Íslandi. Raforka sem hollenskir bændur nota losar um 100 til 200 sinnum meira af kolefni en íslensk raforkuframleiðsla. Við ræktun á trjám og runnum eru íslenskir bændur einungis að skilja eftir sig 46,55% af CO2 í hlutfalli af því sem innflutt framleiðsla gerir. Það er einungis við framleiðslu hluta sumarblóma að kolefnissporið á innfluttu framleiðslunni er samkvæmt úttektinni örlítið hagstæðara, eða sem nemur 5 prósentustigum. Öll önnur framleiðsla íslenskra garðyrkjubænda er umhverfislega hagstæðari en erlend og oftast verulega mikið betri. /HKr. – Sjá einnig umfjöllun um kolefnisspor af innfluttum matvörum á bls. 20–21. Hrossin í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð gæða sér á töðu í snjónum þegar mörsugur er að verða hálfnaður. Þessar harðgeru skepnur eiga eftir að þreyja þorrann, góuna og einmánuðinn áður en þau geta búist við að vorið gangi í garð fyrir alvöru. Það verður vart fyrr en í hörpu, sem stendur frá því síðla í apríl og fram í seinnipart maímánaðar samkvæmt gregoríska tímatalinu. Mynd / HKr. Um 54% erlendra ferðamanna hafa borðað íslenskt lambakjöt 10 Afar vel heppnaður fundur á Hellu um markaðssetningu lambakjöts 24–25 Skarar fram úr í handverki og hönnun úr sauðfjárafurðum 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.