Bændablaðið - 11.01.2018, Síða 38

Bændablaðið - 11.01.2018, Síða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 UTAN ÚR HEIMI Steinagarðurinn í Rosendal í Harðangursfirði í Noregi: Þar sem fortíðin er falin í berginu Steinagarðurinn í Rosendal í Harðangursfirði í Noregi hefur að geyma margar perlur bergtegunda sem eru innan þjóðgarðsins Folgefonna. Búið er að slípa bergtegundirnar til sem gerir þær að sannkölluðu augnakonfekti fyrir gesti sem ganga þar um því litbrigðin og mynstrin sem björgin hafa að geyma minna á sögu svæðisins og jarðarinnar. Þannig er ekki eingöngu að sjá hinar ólíku bergtegundir í garðinum heldur eru ýmsir steinaskúlptúrar, fígúrur og saga jarðarinnar á 23 metra löngum póleruðum granítvegg sem lýsa vel jarðfræðilegri og líffræðilegri þróun jarðarinnar yfir 4.600 milljónir ára sem meitlað er í vegginn. Margir sem heimsækja garðinn velta fyrir sér hvernig hinar mismunandi bergtegundir hafi orðið til og hversu gamlar þær eru og eru upplýsingarnar á granítveggnum með mörg svör við þeim spurningum. Það er samhengi milli berggrunnsins, loftslagsins hátt uppi í fjöllunum þar sem bergtegundirnar er að finna og lífsins sem þróast á svæðinu. Í steinagarðinum er einnig að finna um 130 mismunandi plöntutegundir, þar á meðal nokkrar háfjallaplöntur. Það eru miklir kraftar sem hafa skapað bergtegundirnar og er von forsvarsmanna garðsins að það sé einn af þeim þáttum sem fólk fræðist um og geri sér betur grein fyrir eftir heimsókn þangað. Oft er litið á steina og björg sem grá og leiðinleg en ef litið er gaumgæfilega kemst fólk að því að steinar samanstanda af kristöllum og mismunandi litum og stærðum. Þetta kallast steinefni sem binda steininn saman en samsetning steinefnanna ráða litum steinanna. Garðurinn er unninn í samvinnu við jarðfræðingana Johan Naterstad, Øystein J. Jansen, Torgeir Garmo og Haakon Fossen, myndhöggvarann Bård Breivik og bergbrotsmennina Rolf Karlsen og Torkjell Nerhus. Myndir / ehg - - Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.