Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 11.01.2018, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018 Þórarinn Ævarsson, framkvæmda- stjóri IKEA á Íslandi, segir að fyrirtækið reyni að vera sér sjálfbjarga með flesta hluti, meira að segja með snjómoksturinn á bílastæðunum. Stefnir hann m.a. á sjálfbærni í raforkumálum og kolefnisjöfnun á næstu árum. „Það hefur allavega gefist vel fyrir okkur. Við vorum að upplifa það fyrir nokkrum árum að eftir að snjóa leysti á vorin, þá var bílastæðið hálfónýtt eftir snjómoksturstæki og verktaka sem fengnir höfðu verið til að moka. Það var búið að brjóta alla kantsteina, blóm og tré. Það kostaði okkur því margar milljónir á ári að laga eftir moksturinn. Ástæðan var að verktakarnir voru með allt of stór tæki í þessu og á þeim voru menn svo að vinna í akkorði. Það gat bara ekki endað vel. Ég skil það hins vegar vel að þegar menn eru búnir að gera samning við tíu eða 15 aðila um að hreinsa frá þeim snjóinn fyrir klukkan átta á morgnana þá þurfi menn að flýta sér. Svo heldur kannski áfram að snjóa en verktakinn horfinn á braut. Oft er það líka þannig að það þarf að koma snjónum í burtu þótt síðustu ár hafi varla snjóað neitt að ráði. Á þessu svæði hér við IKEA er hvert einasta stæði feikilega mikilvægt, sérstaklega eftir að Costco opnaði í nágrenninu. Við megum því ekkert við því að hér séu öll stæði full af snjó. Svo þarf líka að koma honum í burtu. Ég er hér með starfsfólk á nóttunni sem vaktar húsið og hér er gæsla allan sólarhringinn. Ef það fer að snjóa þá eru þjófar yfirleitt ekki á ferðinni, þannig að við getum nýt mannskapinn í snjómokstur. Við erum með tvær stórar dráttarvélar og á þær eru til snjótennur, blásarar og saltarar. Við erum líka með fleiri tæki sem eru geymd inni. Afkastagetan er því mikil og við erum því bæði að moka okkar svæði og þjónustum öll önnur fyrirtæki í kringum okkur líka, eins og Toyota og fleiri. Þegar svo hættir að snjóa eru menn að dunda sér við að moka snjónum hér út í hraunið. Þetta kemur því ágætlega út. Hleðslutæki fyrir rafbíla starfsfólks og viðskiptavina Það er líka annað sem er tengt bílastæðunum og þjónustunni við viðskiptavini IKEA, en það er fjöldi hleðslutækja sem búið er að setja upp fyrir rafbíla. Hvaða hugsun er þar í gangi? „Við erum sannfærð um að þetta sé framtíðin, allavega upp að einhverju marki. Það er mjög gaman að sjá hvað bændur á Íslandi eru að gera í þeim efnum. Ég veit að þeir hafa leitað til þess fyrirtækis sem seldi okkur hleðslustöðvar og ég hef verið að forvitnast um hvernig þetta hefur gengið hjá þeim. Mér finnst algjör snilld að setja hleðslutæki heim á bæina. Það mun loka hringnum miklu betur varðandi aukna notkun rafbíla heldur en fimm eða sex stöðvar á leiðinni til Akureyrar.“ Telur uppsetningu bænda á hleðslustöðvum algjöra snilld Þórarinn telur líka borðleggjandi að ávinningurinn af uppsetningu rafhleðslustöðvanna sé mikill fyrir alla aðila. Það hafi t.d. mikið auglýsingagildi fyrir bændur sem eru með ferðaþjónustu. „Ég tel það algera markaðssnilld hjá bændum sem eru í ferðaþjónustu að vera með rafhleðslustöðvar heima við. Bæði er það þannig að bændur gætu verið með lítils háttar veitingarekstur og boðið vegfarendum upp á hleðslu í 60–90 míútur meðan menn snæða hjá þeim og eins náttúrlega yfir nóttina, fyrir þá sem eru að fara að gista. Þetta steinliggur hjá bændum, sérílagi þeim sem eru með heimavirkjun og fyrir þá sem hafa áhuga á að nýta sér stór hlöðu- eða fjárhúsþök fyrir sólarsellur. Krafan verður innan skamms sú að fólk ætlast til að geta hlaðið bíla þar sem það stoppar og þeir sem ekki fylgja með sitja eftir.“ Ókeypis rafmagn enn um sinn og stöðvum fjölgað eftir þörfum Hér við IKEA erum við með 60 stöðvar. Þar af 50 fyrir viðskiptavini og tíu fyrir starfsmenn. Fyrir okkur er þetta margþætt tilraun. Í fyrsta lagi erum við með þessu að gefa ákveðna yfirlýsingu um að við stuðlum að notkun vistvænna orkugjafa,“ segir Þórarinn. Hann segir að uppsetning þessara stöðva sé í takt við þeirra stefnu að hjálpa til við rafbílavæðingu landsins. Aðspurður um hvort raforkan verði áfram ókeypis á bíla hjá IKEA segir hann: „Þetta verður svona um fyrirséða framtíð, en á einhverjum tímapunkti, þegar greiðslumiðlunin verður orðin algerlega sjálfvirk, bíllinn talar við hleðslustöðina og greiðsla fer fram án posa eða starfsmanna, þá má skoða að rukka eitthvert lítilræði fyrir rafmagnið. Við munum fjölga hjá okkur stæðum fyrir rafhleðslu eftir því sem þörfin eykst og ætlum að passa upp á að vera ávallt með nóg af þessum stæðum.“ Hefja tilraunir með vorinu á virkjun sólarorku „Við erum að fara af stað með tilraun á vormánuðum með að setja sólarsellur á þak tæknibyggingar hér við hliðina. Það er um 200 fermetra flötur. Rafmagnið sem þær sellur framleiða ætlum við að nota til að knýja rafbílaflota starfsmanna og afsanna í leiðinni að það gangi ekki upp á norðurslóðum að nota sólarsellur. Það hafa orði feikilegar tækniframfarir í hönnun sólarsella. Sérfræðingar tala nú um að hægt sé að ná um 80% nýtingu hérna miðað við miðbaug á sömu breiddargráðu í Noregi. Við ætlum því að prófa þetta hér. Ef þetta gengur almennilega ætlum við að setja þetta líka hér upp á þakið á IKEA. Það er 25 ára ábyrgð á þessum sellum og þetta á að borga sig upp á fimm til sjö árum miðað við raforkuverð á Íslandi.“ Sólarsellur gætu hjálpað til á erfiðum stöðum „Víða eru menn mjög ragir við þessa rafbílavæðingu vegna þess að það eru ekki nógu sterkir flutningsstofnar AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL V ið ætlum að kolefnisjafna fyrirtækið innan tíu ára, það er okkar stefna og við ætlum að vera leiðandi á því sviði. Það verður gert á ýmsa vegu. Við ætlum að vera leiðandi í að framleiða okkar eigið rafmagn. Við ætlum að nota allan þann lífræna úrgang sem fellur til hér á veitingastaðnum til að framleiða metangas og moltu. Þórarinn Ævarsson, framkvæmda stjóri IKEA á Íslandi. Myndir / HKr. Búið er að koma upp 60 hleðslustöðv- um fyrir viðskiptavini og starfsfólk IKEA. Verður þeim fjölgað eftir þörf- um að sögn framkvæmdastjóra. Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, vill gera fyrirtækið umhverfisvænt á öllum sviðum: Hyggst kolefnisjafna IKEA innan tíu ára – Fjölgar hleðslustöðvum fyrir rafbíla eftir þörfum, er að hefja nýtingu sólarorku og kallar eftir tankvæðingu fyrir lífrænan úrgang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.