Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Þórarinn Ævarsson, framkvæmda-
stjóri IKEA á Íslandi, segir að
fyrirtækið reyni að vera sér
sjálfbjarga með flesta hluti, meira
að segja með snjómoksturinn á
bílastæðunum. Stefnir hann m.a.
á sjálfbærni í raforkumálum og
kolefnisjöfnun á næstu árum.
„Það hefur allavega gefist vel
fyrir okkur. Við vorum að upplifa
það fyrir nokkrum árum að eftir að
snjóa leysti á vorin, þá var bílastæðið
hálfónýtt eftir snjómoksturstæki
og verktaka sem fengnir höfðu
verið til að moka. Það var búið
að brjóta alla kantsteina, blóm
og tré. Það kostaði okkur því
margar milljónir á ári að laga
eftir moksturinn. Ástæðan var
að verktakarnir voru með allt of
stór tæki í þessu og á þeim voru
menn svo að vinna í akkorði.
Það gat bara ekki endað vel.
Ég skil það hins vegar vel að
þegar menn eru búnir að gera
samning við tíu eða 15 aðila
um að hreinsa frá þeim snjóinn
fyrir klukkan átta á morgnana
þá þurfi menn að flýta sér. Svo
heldur kannski áfram að snjóa
en verktakinn horfinn á braut.
Oft er það líka þannig að það
þarf að koma snjónum í burtu
þótt síðustu ár hafi varla snjóað
neitt að ráði.
Á þessu svæði hér við IKEA
er hvert einasta stæði feikilega
mikilvægt, sérstaklega eftir að
Costco opnaði í nágrenninu. Við
megum því ekkert við því að hér
séu öll stæði full af snjó. Svo þarf
líka að koma honum í burtu.
Ég er hér með starfsfólk á
nóttunni sem vaktar húsið og hér
er gæsla allan sólarhringinn. Ef það
fer að snjóa þá eru þjófar yfirleitt
ekki á ferðinni, þannig að við getum
nýt mannskapinn í snjómokstur. Við
erum með tvær stórar dráttarvélar og
á þær eru til snjótennur, blásarar og
saltarar. Við erum líka með fleiri tæki
sem eru geymd inni. Afkastagetan er
því mikil og við erum því bæði að
moka okkar svæði og þjónustum öll
önnur fyrirtæki í kringum okkur líka,
eins og Toyota og fleiri. Þegar svo
hættir að snjóa eru menn að dunda
sér við að moka snjónum hér út í
hraunið. Þetta kemur því ágætlega út.
Hleðslutæki fyrir rafbíla
starfsfólks og viðskiptavina
Það er líka annað sem er tengt
bílastæðunum og þjónustunni við
viðskiptavini IKEA, en það er fjöldi
hleðslutækja sem búið er að setja
upp fyrir rafbíla. Hvaða hugsun er
þar í gangi?
„Við erum sannfærð um að
þetta sé framtíðin, allavega upp að
einhverju marki. Það er mjög gaman
að sjá hvað bændur á Íslandi eru að
gera í þeim efnum. Ég veit að þeir
hafa leitað til þess fyrirtækis sem
seldi okkur hleðslustöðvar og ég hef
verið að forvitnast um hvernig þetta
hefur gengið hjá þeim. Mér finnst
algjör snilld að setja hleðslutæki
heim á bæina. Það mun loka
hringnum miklu betur varðandi
aukna notkun rafbíla heldur en
fimm eða sex stöðvar á leiðinni til
Akureyrar.“
Telur uppsetningu bænda á
hleðslustöðvum algjöra snilld
Þórarinn telur líka borðleggjandi
að ávinningurinn af uppsetningu
rafhleðslustöðvanna sé mikill
fyrir alla aðila. Það hafi t.d. mikið
auglýsingagildi fyrir bændur sem
eru með ferðaþjónustu.
„Ég tel það algera markaðssnilld
hjá bændum sem eru í ferðaþjónustu
að vera með rafhleðslustöðvar
heima við. Bæði er það þannig
að bændur gætu verið með lítils
háttar veitingarekstur og boðið
vegfarendum upp á hleðslu í 60–90
míútur meðan menn snæða hjá þeim
og eins náttúrlega yfir nóttina, fyrir
þá sem eru að fara að gista.
Þetta steinliggur hjá bændum,
sérílagi þeim sem eru með
heimavirkjun og fyrir
þá sem hafa áhuga á að nýta sér
stór hlöðu- eða fjárhúsþök fyrir
sólarsellur.
Krafan verður innan skamms sú
að fólk ætlast til að geta hlaðið bíla
þar sem það stoppar og þeir sem ekki
fylgja með sitja eftir.“
Ókeypis rafmagn enn um sinn og
stöðvum fjölgað eftir þörfum
Hér við IKEA erum við með 60
stöðvar. Þar af 50 fyrir viðskiptavini
og tíu fyrir starfsmenn. Fyrir okkur
er þetta margþætt tilraun. Í fyrsta lagi
erum við með þessu að gefa ákveðna
yfirlýsingu um að við stuðlum að
notkun vistvænna orkugjafa,“ segir
Þórarinn.
Hann segir að uppsetning þessara
stöðva sé í takt við þeirra stefnu
að hjálpa til við rafbílavæðingu
landsins. Aðspurður um hvort
raforkan verði áfram ókeypis á bíla
hjá IKEA segir hann:
„Þetta verður svona um fyrirséða
framtíð, en á einhverjum tímapunkti,
þegar greiðslumiðlunin verður orðin
algerlega sjálfvirk, bíllinn talar við
hleðslustöðina og greiðsla fer fram
án posa eða starfsmanna, þá má
skoða að rukka eitthvert lítilræði
fyrir rafmagnið.
Við munum fjölga hjá okkur
stæðum fyrir rafhleðslu eftir því sem
þörfin eykst og ætlum að passa upp
á að vera ávallt með nóg af þessum
stæðum.“
Hefja tilraunir með vorinu á
virkjun sólarorku
„Við erum að fara af stað með
tilraun á vormánuðum með að setja
sólarsellur á þak tæknibyggingar hér
við hliðina. Það er um 200 fermetra
flötur. Rafmagnið sem þær sellur
framleiða ætlum við að nota til
að knýja rafbílaflota starfsmanna
og afsanna í leiðinni að það gangi
ekki upp á norðurslóðum að nota
sólarsellur.
Það hafa orði feikilegar
tækniframfarir í hönnun sólarsella.
Sérfræðingar tala nú um að hægt sé
að ná um 80% nýtingu hérna miðað
við miðbaug á sömu breiddargráðu í
Noregi. Við ætlum því að prófa þetta
hér. Ef þetta gengur almennilega
ætlum við að setja þetta líka hér upp
á þakið á IKEA.
Það er 25 ára ábyrgð á þessum
sellum og þetta á að borga sig upp
á fimm til sjö árum miðað við
raforkuverð á Íslandi.“
Sólarsellur gætu hjálpað til á
erfiðum stöðum
„Víða eru menn mjög ragir við þessa
rafbílavæðingu vegna þess að það
eru ekki nógu sterkir flutningsstofnar
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
V ið ætlum að kolefnisjafna fyrirtækið innan tíu ára, það er okkar stefna og við ætlum að
vera leiðandi á því sviði. Það verður gert á
ýmsa vegu. Við ætlum að vera leiðandi í að
framleiða okkar eigið rafmagn. Við ætlum
að nota allan þann lífræna úrgang sem
fellur til hér á veitingastaðnum til
að framleiða metangas
og moltu.
Þórarinn Ævarsson, framkvæmda stjóri IKEA á Íslandi. Myndir / HKr.
Búið er að koma upp 60 hleðslustöðv-
um fyrir viðskiptavini og starfsfólk
IKEA. Verður þeim fjölgað eftir þörf-
um að sögn framkvæmdastjóra.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi, vill gera fyrirtækið umhverfisvænt á öllum sviðum:
Hyggst kolefnisjafna IKEA innan tíu ára
– Fjölgar hleðslustöðvum fyrir rafbíla eftir þörfum, er að hefja nýtingu sólarorku og kallar eftir tankvæðingu fyrir lífrænan úrgang