Bændablaðið - 11.01.2018, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
UTAN ÚR HEIMI
Steinagarðurinn í Rosendal í Harðangursfirði í Noregi:
Þar sem fortíðin er falin í berginu
Steinagarðurinn í Rosendal
í Harðangursfirði í Noregi
hefur að geyma margar perlur
bergtegunda sem eru innan
þjóðgarðsins Folgefonna. Búið
er að slípa bergtegundirnar til
sem gerir þær að sannkölluðu
augnakonfekti fyrir gesti sem
ganga þar um því litbrigðin og
mynstrin sem björgin hafa að
geyma minna á sögu svæðisins og
jarðarinnar.
Þannig er ekki eingöngu að sjá
hinar ólíku bergtegundir í garðinum
heldur eru ýmsir steinaskúlptúrar,
fígúrur og saga jarðarinnar á 23
metra löngum póleruðum granítvegg
sem lýsa vel jarðfræðilegri og
líffræðilegri þróun jarðarinnar yfir
4.600 milljónir ára sem meitlað er
í vegginn. Margir sem heimsækja
garðinn velta fyrir sér hvernig
hinar mismunandi bergtegundir
hafi orðið til og hversu gamlar
þær eru og eru upplýsingarnar á
granítveggnum með mörg svör við
þeim spurningum.
Það er samhengi milli
berggrunnsins, loftslagsins hátt uppi
í fjöllunum þar sem bergtegundirnar
er að finna og lífsins sem þróast á
svæðinu. Í steinagarðinum er einnig
að finna um 130 mismunandi
plöntutegundir, þar á meðal nokkrar
háfjallaplöntur. Það eru miklir kraftar
sem hafa skapað bergtegundirnar
og er von forsvarsmanna garðsins
að það sé einn af þeim þáttum sem
fólk fræðist um og geri sér betur
grein fyrir eftir heimsókn þangað.
Oft er litið á steina og björg sem
grá og leiðinleg en ef litið er
gaumgæfilega kemst fólk að því að
steinar samanstanda af kristöllum og
mismunandi litum og stærðum. Þetta
kallast steinefni sem binda steininn
saman en samsetning steinefnanna
ráða litum steinanna.
Garðurinn er unninn í samvinnu
við jarðfræðingana Johan Naterstad,
Øystein J. Jansen, Torgeir Garmo og
Haakon Fossen, myndhöggvarann
Bård Breivik og bergbrotsmennina
Rolf Karlsen og Torkjell Nerhus.
Myndir / ehg
-
-
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is