Bændablaðið - 24.05.2018, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
Samkvæmt nýjustu búfjártölum
Búnaðarstofu Matvælastofnunar
fyrir 2017–2018, þá telst búfé
landsmanna nú vera 643.474
gripir auk 910.363 alifugla.
Það er samtals 1.553.837
ferfætlingar og fiðurfé. Af
frátöldum alifuglum, sem voru
augljóslega verulega vantaldir í
síðustu tölum, þá fækkaði búfé
landsmanna um 21.912 gripi
milli talninga.
Af þessum fjölda eru 80.895
nautgripir á 619 búum. Hefur
nautgripunum fjölgað úr 80.024
eða um 871 grip á sama tíma og
kúabúum á landinu hefur fækkað
um 26.
Enn nýtt met í fjölda nautgripa
Í fyrra var greint frá því að
nautgripastofninn á Íslandi hafi
aldrei verið stærri og hefur nú enn
bætt í það met. Nokkuð ört hefur
fjölgað í stofninum frá 2013, eða
úr 68.776 gripum 2013 í 80.024
2016 og 80.695 gripi um síðustu
áramót. Þannig hefur fjölgað frá
2013 um 12.119 gripi.
Jafn margir íbúar um hvern
nautgrip 1981 og 2018
Ef miðað er við höfðatöluna frægu,
þá voru 4,3 Íslendingar um hvern
nautgrip árið 1981, en þá voru
Íslendingar samtals 229.327. Þann
1. janúar 2018 voru íbúar landsins
orðnir 350.710 og hafði fjölgað
um 12.361 á milli ára. Miðað við
sama góða höfðatöluútreikninginn
eru hlutfallslega alveg jafn margir
íbúar um hvern nautgrip nú og árið
1981 eða 4,3.
Sauðfjárbúum fækkaði um 91 og
sauðfé fækkaði um 16 þúsund
Sauðfé á fóðrum er 459.766
samkvæmt tölum MAST á 2.379
búum. Hefur sauðfé fækkað frá
því að vera 475.893 skepnur skv.
síðustu tölum, eða um 16.127
skepnur. Þá hefur sauðfjárbúum
fækkað um 91 frá tölum MAST í
fyrravor. Inni í sauðfjártölunum
eru 9.066 lambhrútar og geldingar.
Geitum fjölgar
Alls voru 1.300 geitur og lífkið í
landinu á 113 búum um síðustu
áramót. Á árinu 2016 töldust vera
1.188 geitur og lífkið svo fjölgunin
er rúmlega 9%.
Gríðarleg fækkun sauðfjár
á 37 árum
Töluvert aðra sögu er að segja
af sauðfjárstofni landsmanna.
Á árinu 1981 voru 794.097
vetrarfóðraðar kindur í landinu,
eða um 3,5 sauðkindur á hvern
einasta landsmann. Samkvæmt
nýjustu tölum var vetrarfóðrað
sauðfé komið niður í 459.766 um
síðustu áramót en landsmönnum
hafði fjölgað um 121.383 frá 1981.
Því eru ekki lengur 3,5 sauðkindur
á fóðrum á hvern íbúa eins og áður
heldur einungis 1,3 kindur. Hefur
því fækkað gríðarlega í stofninum
á undanförnum áratugum, eða
um hartnær helming að höfðatölu
fjárins og enn meira sem hlutfall
af íbúafjölda. Frá 1995 hefur
sauðfé aldrei farið yfir 500 þúsund
vetrarfóðraðar skepnur.
Styttist í að framboð anni
ekki eftirspurn?
Eftir nokkurn stöðugleika í
sauðfjárstofninum frá 2003 til
2008 fór stofninn nokkuð að vaxa
á nýjan leik. Var hann kominn í
487 þúsund fjár árið 2014. Þá var
fækkun um 14.540 fjár til 2015.
Vetrarfóðruðu sauðfé fjölgaði síðan
aðeins á milli áranna 2015 og 2016,
eða úr 472.461 í 475.893. Það er
fjölgun upp á 3.432 skepnur sem
framleiddu fleiri lömb og meira kjöt
en markaðurinn virðist tilbúinn að
taka við. Fækkun nú á milli ára
um ríflega 16 þúsund skepnur
á fóðrum samfara fólksfjölgun
hlýtur því að hafa umtalsverð áhrif
á markaðsstöðuna. Er því líklegt
að það styttist í að framleiðsla á
kindakjöti anni ekki eftirspurn. Það
yrði sögulega mjög sérstök staða í
ræktun sauðfjár á Íslandi.
Hrossum hefur fækkað
um nær 2.300
Þá eru hross í landinu nú talin vera
64.792 á 2.262 búum. Hrossin voru
hins vegar talin vera 67.186 í tölum
Búnaðarstofu MAST vorið 2017 og
hefur því fækkað um 2.394 hross. Þá
hefur hrossabúunum eða ræktendum
einnig fækkað, eða um 208.
Að mati sérfræðinga í
hrossaræktinni hefur sannarlega
orðið fækkun í hrossastofninum,
en heildartalan bæði nú og í fyrra
er samt ekki talin ná alveg yfir öll
hross í landinu. Þar getur verið um
einhverja skekkju að ræða vegna
hrossa sem ekki eru gefin upp í
skýrslum og þá einkum í þéttbýlinu.
Örlítil fjölgun í svínastofninum
Svín eru 66 fleiri en í síðustu tölum,
eða 3.576 á móti 3.510 í fyrra. Þá
eru svínabú nú sögð vera 20 en
voru 19 í fyrravor. Þarna er aðeins
verið að tala um fullorðnar gyltur
og gelti, en ekki grísi. Ef grísirnir
eru taldir með er heildarfjöldi svína
mun meiri, því þar eru 20.421
eldisgrís, 7.000 smágrísir og 9.528
fráfærugrísir. Fjöldi grísa er mjög
rokkandi á milli mánaða svo til að
gera tölur samanburðarhæfar milli
ára er eðlilegast að miða eingöngu
við gyltur og gelti.
Óvissa í framvindu í
minkaræktinni
Loðdýr eru 34.445 talsins samkvæmt
nýjustu tölum MAST og hefur
því fækkað á milli ára. Voru þau
38.773 í tölum MAST 2017 og
hefur því fækkað um 4.328 dýr, þ.e.
fullorðnir högnar og læður. Inni í
þessum tölum eru líka 2 refir og 323
kanínur. Í heild eru búin 63, en þar
af 38 með mink og ref, en þau voru
talin 39 í fyrra. Augljóst virðist að
lokauppgjör ársins sé ekki í þessum
tölum frekar en í fyrra. Vitað er um
eina fimm minkabændur sem hættu
starfsemi undir lok síðasta árs svo
taka verður þessum tölum með
fyrirvara.
Mikil óvissa er nú í
loðdýraræktinni vegna stöðugs
verðfalls undanfarin ár. Síðasta
uppboð hjá Kopenhagen Fur í
Danmörku lagaði ekki þá stöðu.
Vonast minkabændur nú eftir að
næsta uppboð sem fram fer í júní
gefi vonir um betri tíð í greininni.
Alifuglarnir taldir vera yfir 910
þúsund
Alifuglar landsmanna teljast nú vera
910.363 á 453 búum. Þar af eru
894.908 varphænsn, holdahænur,
lífungar og kjúklingar og 14.505
kalkúnar. Þá eru aliendur 742 og
aligæsir 127.
Í tölunum um alifuglana eru
varphænsn, holdahænur, lífungar
yngri en 5 mánaða, kjúklingar,
endur, gæsir, kalkúnar og aðrir
alifuglar. Samkvæmt nýju tölunum
hefur búum svo fækkað um 16 og
eru alls 453.
Verulega hefur verið bætt úr
talnagögnum varðandi alifuglana.
Í fyrra skorti mikið á að tölur
stæðust um heildarfjölda fugla, en
þar voru alifuglarnir taldir vera
358.979 á 469 búum. Þá vantaði
inn tölur um kjúklinga sem nú eru
taldir 598.847. Reyndar verða tölur
um alifugla trúlega alltaf tilefni til
skoðanaskipta, því tölurnar geta
verið mjög breytilegar frá mánuði
til mánaðar. /HKr.
FRÉTTIR
Höfuðborgarsvæðið;
1.246; 1%
Vesturland; 6.338; 8%
Vestfirðir; 2.304; 3%
Norðurland;
29.100; 36%
Austfirðir; 9.394; 12%
Suðurland;
32.513; 40%
Bændablaðið / HKr. Heimild: Búnaðarstofa MAST
Suðurnes; 736; 0%Höfuðborgarsvæðið; 2.264; 1%
Vesturland;
84.918; 18%
Vestfirðir;
42.214; 9%
Norðurland; 180.701; 39%
Austfirðir;
57.862; 13%
Suðurland;
91.062; 20%
Bændablaðið / HKr. Heimild: Búnaðarstofa MAST
Heimild: Búnaðarstofa MAST Bændablaðið / HKr.
Suðurnes; 71.576; 8%
Höfuðborgarsvæðið;
275.173; 30%
Vesturland;
162.605; 18%
Vestfirðir; 115; 0%
Norðurland;
72.652; 8%
Austfirðir;
616; 0%
Suðurland;
327.626; 36%
Alifuglar á Íslandi 2017-2018 (910.363)
Heimild: Búnaðarstofa MAST Bændablaðið / HKr.
Suðurnes; 38; 0%
Höfuðborgarsvæðið; 2.811; 8%
Vesturland; 31; 0%
Norðurland;
13.571; 40%
Austfirðir; 41; 0% Suðurland;
17.953; 52%
Heimild: Búnaðarstofas MAST Bændablaðið / HKr.
Búfé landsmanna telst vera rúmlega 1,5 milljón dýr, bæði ferfætlingar og fiðurfé, samkvæmt nýjustu tölum MAST:
Nautgripum fjölgar frá metárinu 2016
en sauðfé fækkar um 16 þúsund
– Hlutfallslega eru nákvæmlega jafn margir landsmenn á bak við hvern nautgrip nú og árið 1981