Bændablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018 Fjölskyldan á Stóra-Hálsi í Grímsnes- og Grafningshreppi mun opna „Sveitagarðinn“, sem verður afþreyingargarður fyrir alla fjölskylduna, laugardaginn 2. júní næstkomandi. Garðurinn er byggður upp sem dýragarður með flottum leiktækjum. Í dýragarðinum verða hestar, kindur, geitur, kálfar, grísir, kettlingar, kanínur, endur, hænur, dúfur, yrðlingar og svo bætist eitthvað af dýrum við. „Við verðum líka með flott leiktæki fyrir breiðan aldurshóp þar sem allir krakkar eiga að finna eitthvað við sitt hæfi, t.d. sandkassa, kastala fyrir yngri börnin með rólum, lítið krakkahús, kastala fyrir eldri börnin, snúningspallur, svifbretti og risa hoppukastali sem kemur í sumar. Það verður lítil veitingasala þar sem verður hægt að fá kaffi og eitthvað með því, kjötsúpu, íspinna, vcandy floss og eitthvað nammi,“ segir Sigrún Jóna Jónsdóttir, sem mun reka garðinn með Elvari Páli Sævarssyni, eiginmanni sínum og börnum þeirra. Hugmyndin að stofnun garðsins kom í gegnum daginn „Borg í sveit“ sem er á hverju ári í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fjárhúsið á Stóra-Hálsi hefur verið opið þann dag og þá sáu þau Sigrún og Elvar hvað fólk hefur mikinn áhuga á dýrunum og sveitinni. Rúmt um gestina Sveitagarðurinn er á stóru svæði og því verður mjög rúmt um gestina og aðbúnaður fyrir dýrin verður einstaklega góður. Þá verður leiksvæðið mjög stórt og bekkir um allan garð til að setjast og njóta útsýnisins. Garðurinn verður opinn alla daga í júní, júlí og ágúst frá 12.00 til 18.00. Verðskráin er 0–2 ára frítt, 3–14 ára 800 kr. og fullorðnir 1.200 kr. Allar nánari upplýsingar er að fá á heimasíðunni www.sveitagardurinn.is og það er líka hægt að fylgjast með á Facebook – „Sveitagarðurinn - Familypark“ og Instagram og snapchapt – „sveitagardurinn“. /MHH Ásdís með Bellu Söru, kindina sína, sem mun gleðja gesti Sveitagarðsins. LÍF&STARF Elvar Páll og geitin Karfa eru mikli félagar. Karfa verður í Sveitagarðinum. mikla athygli hjá gestum Sveitagarðsins. Sveitagarðurinn verður opnaður formlega á bænum Stóra-Hálsi í Grímsnes- og Grafn- ingshreppi laugardaginn 2. júní 2018. Krakkarnir á Stóra-Hálsi á trampólíninu, en þau heita Valdís Bylgja, Ásdís Rún, Gunnar Páll og Sara Huld. Sveitagarðurinn á Stóra-Hálsi í Grafningi opnaður 2. júní – Afþreyingargarður fyrir fólk á öllum aldri Það verður kuldablær á þættinum þetta sinn, enda sannkallað „vorhret á glugga“ þegar þetta er skráð. Samt er ögn hlýnandi tónn í veðurspánni, og því gæti birt til þegar líður á vísnaþáttinn. Pétur Stefánsson orti svo þann 20. maí: Trén þau sveiflast tvist og bast. Tryllir veðrið sæinn. Það er mjög í hviðum hvasst hvítasunnudaginn. Öldur freyða um allan sæ. Oss það lítið gleður. Upp til heiða og ofan í bæ er nú skítaveður. Dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði orti næstu tvær vísur í vorharðindum: Heyri ég yfir höfði þyt af Heljar vængjum þöndum. Verkin dreymd og vonaglit verð ég að láta af höndum. Það er hart að hverfa um vor sem hrím á fjörusandi. Engin minning, ekkert spor eftir í föðurlandi. Rakel Bessadóttir vaknaði einn morgun í byrjun sumars við alhvíta jörð: Bágt er að sjá um víðan völl varmi frá er snúinn. Nú eru stráin iðgræn öll ísagljáa búin. Jónas Jónsson í Hróarsdal orti í vorharðindum: Bágt á ég með barnakind, bjargarsmátt er hreysi. Send þú, Drottinn, sunnan vind svo að Vötnin leysi. Guðmundur skáld Frímann orti er hret gekk yfir á miðju vori: Blöð og strá með storku á kinn, stirnir bláan ósinn, yfir skjáinn skefur minn, skýrist gráa rósin. Páll Guðmundsson frá Holti í Ásum orti í harðindatíð á vori: Nesjasporða brimin börðu. Bakka hurð lá utan fjarða. Herjuðu norðan hríðar jörðu. Hjarðir urðu að standa á garða. Eftir að hlýða á veðurspá kvöldsins virðist ætla að svía þegar líður á vikuna. Pétur Stefánsson lifnar allur við þegar hlýnar og endurspeglast það berlega í vísum dagsins í dag: Veðrið leitt er liðið hjá, loks við fagna hljótum. Blíðutíð er brostin á, best við dagsins njótum. Ólína Jónasdóttir kveður á blíðu vori: Þegar snjallar vorsins vættir vakna í fjallageim, mér finnst allir eðlisþættir á mig kalli heim. Þorsteinn Kristleifsson frá Stóra-Kroppi orti á blíðu vori: Vorið blíða við mér hlær um vanga líður sunnanblær bala skrýðir blóm sem grær bakkafríð er lindin tær. Jón Þorsteinsson á Arnarvatni orti vorvísu: Vorið dregur eitthvað út undan frosnum bakka, hefir geymt þar grænan kút gef mér nú að smakka. Guðmundur E. Geirdal á þessa vorvísu: Vorsins dýrð á dularmál djúpt og ríkt af óði. Er því von að vökusál verði margt að ljóði Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com MÆLT AF MUNNI FRAM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.