Bændablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 11
11Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018 SAH Afurðir ehf. á Blönduósi hafa ákveðið að greiða bændum 3% uppbætur á innlegg fyrir árið 2017. Stefnt er því að greiða uppbótina út 25. maí. Rekstur SAH Afurða gekk betur á liðnu ári en undanfarin ár, hagnaður upp á 5,5 milljónir króna varð af rekstrinum, en félagið hefur verið rekið með tapi frá árinu 2013. „Þessi viðsnúningur kemur til vegna lækkunar afurðaverðs og mikils aðhalds og sparnaðar í rekstri félagsins sem tókst með miklum ágætum,“ segir Eiður Gunnlaugsson, stjórnarformaður Kjarnafæðis, eigenda SAH Afurða. Bókfært eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 153,2 milljónir. Velta síðasta árs nam um tveimur milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að tap verði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Ársverk á reikningsárinu voru 52 að því er fram kom á aðalfundi félagsins sem haldinn var fyrr í þessum mánuði. Verð á lambakjöti innanlands fer lækkandi Það sem af er ári hefur SAH Afurðir flutt út rúm 320 tonn af kindaafurðum og allar gærur og aukaafurðir eru seldar. Gengi krónunnar hefur ekki verið hagstætt fyrir útflytjendur og verðið óviðunandi. Verð á lambakjöti innanlands hefur farið lækkandi. „Ástæður þess eru offramboð þar sem menn eru alltaf að ýta á undan sér birgðavanda ár frá ári og myndast þar af leiðandi gríðarleg samkeppni,“ segir Eiður. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um verð á komandi sláturtíð í haust, en slátrun hefst 5. september og stendur út október. /MÞÞ Sala og ráðgjöf Sími 540 1100 www.lifland.is lifland@lifland.is Reykjavík Lyngháls Borgarnes Borgarbraut Akureyri Óseyri Blönduós Efstubraut Hvolsvöllur Ormsvöllur Rúlluplast og girðingarefni frá Líflandi Kíktu á vefverslun okkar á www.lifland.is og skoðaðu úrvalið TréstaurarSpennarRafmagnsþræðir Frá kr. 238Frá kr. 17.490Frá kr. 1.690 Kr. 8.290 Frá kr. 70 Þanvír W-einangrari Gormahlið Rafhlöður Frá kr. 1.590 Frá kr. 690Kr. 13.990 Frá kr. 325 Frá kr. 670 StaurasleggjaGripple tengi Plaststaurar Sólarorkuspennar Spennar sem geta nýtt sólarorku sem orkugjafa Járnstaurar Kr. 1.690 Speglar frá kr. 24.990 Spennar frá kr. 27.990 Frá kr. 390Frá kr. 10.290 KambstálGirðinganet NÝTT Megastretch 5 laga rúlluplast Megastretch Ultra 7 laga rúlluplast Unterland Xtra rúlluplast Vörunúmer Breidd Þykkt Lengd m. Litur Verð kr. VHPLAST75GR 75 cm 25 μm 1.500 Dökkgrænt 9.100 VHPLAST75HV 75 cm 25 μm 1.500 Hvítt 9.100 VHPLAST75SV 75 cm 25 μm 1.500 Svart 8.900 VHPLAST50GR 50 cm 25 μm 1.800 Ljósgrænt 7.550 Vörunúmer Breidd Þykkt Lengd m. Litur Verð kr. VHULTRA75PLASTGR 75 cm 22 μm 1.800 Ljósgrænt 10.290* Vörunúmer Breidd Þykkt Lengd m. Litur Verð kr. VHUNTERLAND75 75 cm 25 μm 1.500 Hvítt 8.900 VHUNTERLAND50 50 cm 25 μm 1.800 Hvítt 7.350 NÝTT Takma rkað magn! Meira á rú llunni! Fleiri lög! *Megastretch Ultra kemur í heilum brettum án pappakassa. Lágmarksmagn til afgreiðslu er 20 stk á bretti. án vsk. án vsk. án vsk. SAH Afurðir ehf. á Blönduósi: Bændum greidd 3% uppbót á innlegg Menningarveisla Sólheima 2018 Formleg opnun menningarveislu Sólheima verður laugardaginn 2. júní klukkan 13.00 við Grænu könnuna með opnun á nýju og fallegu húsi í hjarta staðarins. Þar verður samsýning vinnustofa Sólheima skoðuð. Þá verður komið við í Sesseljuhúsi þar sem afleiðingar og mögulegar lausnir gegn hnattrænni hlýnun verða skoðaðar. Hægt er að fara á tónleika í Sólheimakirkju þar sem fyrstu tónleikar sumarsins hefjast klukkan 14.00. Að venju verða það íbúar Sólheima sem taka lagið með gestum. Hallbjörn Rúnarsson, sem leikur úlfinn, sýnir hvernig lag við leikrit verður til. Leikritið og leikarar í Úlfar ævintýranna verða í forgrunni. Klukkan 15.00 tekur Gylfi Ægisson lagið við nýja kaffihúsið. Þrettánda Menningarveislan „Þetta verður í þrettánda skiptið sem Menningarveisla Sólheima er haldin. Þá bjóðum við gestum að koma heim og kynnast okkur og þeim gildum sem við stöndum fyrir og störfum eftir: Kærleikur, virðing, sköpunargleði og fagmennska. Við leggjum metnað í að sem flestir finni sig hjá okkur og njóti með okkur. Verslun, kaffihús og sýningar verða opin frá klukkan 12.00–19.30 alla daga í sumar. Laugardaginn 9. júní: Tónleikar í Sólheimakirkju kl.14.00. Tunglið og Ég: Heiða Árnadóttir söngur og Gunnar Gunnarsson píanó flytja falleg lög eftir franska jazztónskáldið Michel Legrand (1932), en hann er helst þekktur fyrir að semja söngleiki og tónlist fyrir kvikmyndir. Þetta er mjög falleg og ljúf tónlist. Laugardaginn 16 júní: Tónleikar í Sólheimakirkju klukkan 14:00. Sumarper lur : Magnea Tómasdóttir sópran og Sólveig Anna Jónsdóttir píanó flytja nokkrar af okkar þekktu söngperlum sem eiga vel við daginn fyrir þjóðhátíðardag Íslendinga.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.