Bændablaðið - 24.05.2018, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
Í nýrri umhverfisvænni fram leiðslu-
stefnu ítalska bíla framleiðandans
IVECO er auk rafbíla lögð áhersla á
metangasknúnar bifreiðar og dísil-
bíla sem miða við Evrópustaðal í
mengunarmálum.
Athyglisvert er að skoða hvað
ítölsku vélahönnuðirnir eru að
gera til að draga úr loftmengun frá
dísilbílum eins og IVECO Daily
dísil Euro 6 RDE2 ready (staðall
sem á að ganga í gildi 2020).
Þetta er sögð vera þróaðasta
dísilvélin á markaðnum í dag með
tilliti til losunar CO2 og NOx sem
ekki notar aukaefnið Add blue í
pústkerfið til að draga úr mengun.
Þá eyðir hún um 7% minna eldsneyti
en forverinn. Hjá IVECO hafa stór
stökk verið tekin en Ítalir hafa
áratugum saman staðið framarlega
í hönnun dísilvéla.
Byltingarkenndur umhverfisvænn
og hljóðlátur Stralis gas-trukkur
Metangasknúni trukkurinn IVECO
Stralis-NP-460 er síðan flaggskipið
í þeirri viðleitni fyrirtækisins að
draga úr mengun stórra atvinnubíla.
Samkvæmt vefsíðu fyrirtækisins er
þegar búið að panta yfir 1.600 slíka
trukka.
Kolefnisfótsporið af notkun
bílsins er 95% minna en nýjustu
sambærilegra dísilbíla samkvæmt
tölum framleiðanda. IVECO hefur
yfir 20 ára reynslu af framleiðslu
gasknúinna bifreiða og þjónustar
fyrirtækið nú um 22 þúsund
gasknúin ökutæki í Evrópu.
Stralis-NP-460 er með 460 hest-
afla Pure Power, Cursor 13 NP 12,9
lítra vél, sem brennir gasi en er í
raun byggð á dísilvél. Hann notar
eingöngu 100% náttúrulegt gas
(IVECO Cursor 13 NP single-fuel
engine) og er ekki háður því að vera
gangsettur á öðru eldsneyti eins og
þekkt er með aðra stóra bíla sem
hannaðir hafa verið fyrir gasnotkun.
Vélin í Stralis-NP-460 er sögð
eyða 15% minna eldsneyti en vél
í sams konar dísiltrukk og er 9%
ódýrari í rekstri. Þá er hann líka
merkilegur fyrir þær sakir að hann
kemst heila 1.600 kílómetra á einni
tankfyllingu, en til viðmiðunar þá er
þjóðvegur 1, hringvegurinn um hluta
Íslands, 1.337 km. Langdrægnin
skýrist af því að hann notar fljót-
andi gas (LNG) sem geymt er á
tveim kútum. Hægt er að velja um
þrjár tankstærðir. Fljótandi gasið
er mun þjappaðra og orkuríkara á
rúmmálseiningu en þekkist í þeim
metangasbílum sem nú aka um á
Íslandi. Gallinn við þetta er að sem
stendur er dreifikerfi ekki til staðar
hér á landi og víðast ekki erlendis
heldur.
Tregða í innviðauppbyggingu
fyrir gas
Reyndar er stórfurðulegt hvað
menn hafa verið seinir til að
byggja upp dreifikerfi fyrir
gasátöppun hér á landi miðað við
umhverfisávinninginn sem hægt
er að ná út úr aukinni notkun
gasdrifinna ökutækja. Þá er hægt
að framleiða metangas mjög víða,
bæði úr ruslahaugum og úr skít og
lífmassa í sveitum eins og grasi,
þara, korni og öðrum gróðri.
Vélin í Stralis-NP-460 dregur úr
sótagnaútblæstri um 99% miðað við
dísilbíl sem stenst mengunarkröfur
Euro 6 og notar lífdísil. Þá skilar hann
60% minna af nituroxíði NOx út í
andrúmsloftið. Koltvísýringsmengun
CO2 er líka sáralítil, eða 95% minni
en í dísilbílnum. Þá er bíllinn afar
hljóðlátur og heyrist lítið hærra í
honum en þegar fólk talar saman og
er hljóðstyrkurinn undir álagi aðeins
um 71dB.
Trukkurinn er með 12 gíra
Hi-Tronix sjálfskiptingu með fjórum
bakkgírum. Hún er afar mjúk, með
99,7% skilvirkni og býður líka upp
á að hægt sé að rugga bílnum, t.d. úr
festu (rocking function). Skiptingin
kemur með vökvastýrðri viðnáms-
bremsu (retarder) og „hill-holder“.
Varð til við samruna
IVECO varð til 1. janúar 1975 við
samruna Fiat Veicoli Industriali,
OM (Brescia á Italíu), Lancia
Veicoli Speciali á Ítalíu, Unic í
Frakklandi og Magirus-Deutz í
Þýskalandi. Í dag er IVEVO undir
stjórn CNH Industrial sem skráð er
í Hollandi en er í eigu fjárfestinga-
félagsins Exor sem er í eigu Agnelli
fjölskyldunnar, en Giovanni Agnelli
var einn af stofnendum Piedmont
árið 1899 sem síðar varð að FIAT
motor company. Undir þessum hatti
eru svo m.a. líka Alfa Romeo og
Ferrari. Einnig Case IH og New
Holland dráttarvélarnar.
Höfundar nútíma common-rail
kerfisins
Úr smiðju Fiat samsteypunnar
er upprunnin nútíma „common-
rail“ eldsneytiskerfið með beinni
háþrýstri innspýtingu fyrir dísilvélar.
Þetta kerfi var hannað upp úr 1990 í
samstarfi Magneti Marelli, Centro
Ricerche Fiat og Elasis. Fyrsti
fólksbíllinn sem var með common-
rail kerfi var Alfa Romeo 156 2.4
af árgerð 1997. Síðar sama ár kom
Mercedes-Benz W202 á markað
með sams konar kerfi.
FIAT seldi framleiðsluleyfið
af þessu eldsneytiskerfi til þýska
fyrirtækisins Robert Bosch GmbH
sem lagði lokahönd á hönnunina til
fjöldaframleiðslu. Var salan talin
mikið klúður fyrir FIAT sem varð
þar af gríðarlegu viðskiptatækifæri.
Hafa nær allir dísilvélaframleiðend-
ur í heimi nýtt sér slík kerfi.
Upphaflega hugmyndin að
common-rail eldsneytiskerfi
er þó enn eldri og frumgerð af
common rail kerfi var smíðuð af
Svisslendingnum Robert Huber á
sjöunda áratug síðustu aldar. Fyrsta
nothæfa common-rail kerfið af
svipuðum toga var svo hannað í
Japan af dr. Shohei Itoh og Masahiko
Miyaki hjá Denso Corporation um
miðjan tíunda áratuginn. Voru vélar
með þeirra ECD-U2 common-rail
búnaði settar í Hino Ranger vörubíla
sem seldir voru á almennum markaði
árið 1995.
Mikill umhverfisávinningur af
brennslu á metangasi
Enn athyglisverðara er þróun
IVECO á vélum sem brenna
metangasi. Við bruna á metangasi
losnar um 95% minna af CO2 heldur
en við bruna á dísilolíu.
Það er mikið til vinnandi og í
raun mun meiri ávinningur af því
að nota gas en jafnvel rafmagn
til að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Ástæðan er einföld.
Metangas er 20 sinnum skaðlegri
sem gróðurhúsalofttegund en
koltvísýringur CO2. Það er því
mjög umhverfisvæn aðgerð að
brenna gasið í stað þess að hleypa
því óheftu út í andrúmsloftið, eins
og gerist í miklum mæli á hverri
einustu sekúndu. Metangas verð-
ur til í náttúrunni við rotnun m.a.
jurtaleifa og bæði menn og jórtur-
dýr losa frá sér mikið af metangasi.
Með því að vinna metangas úr
kúamykju og nytjajurtum og nýta
það síðan til að knýja bifreiðar
og ljósavélar er verið að draga
stórlega úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
Samkvæmt tölum frá Sorpu er
framleiðsla á metani hjá þeim ígildi
2000 metanbíla á markaðnum. Án
mikilla breytinga gæti Sorpa aukið
magn metans upp í ígildi 4000
fólksbíla.
Eftir tvö ár mun verða tekin
í gagnið gas- og jarðgerðastöð,
mun magn metans aukast í ígildi
8000 fólksbíla. Í undirbúningi er
framleiðslan á fljótandi gasi (LNG)
og er hluti af búnaðinum kominn.
Stutt mun vera í að farið verði að
setja upp slíka stöð hér á landi, en
engar tímasetningar hafa þó verið
gefnar út.
TÆKNI&VÍSINDI
IVECO Stralis-NP-460 keyrir á 100% náttúrulegu metangasi, eyðir 15% minna en sams konar trukkur með nýjustu
gerð af dísilvél, er 9% ódýrari í rekstri og mengar 95% minna. Mynd / IVECO
af árgerð 1997.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Ítalir komnir með IVECO metangas-trukk
sem mengar 95% minna en dísilbíll
Uppl. í síma
893-8424 / set@velafl .is
og á 694-3700 / gk@velafl .is
Nýir Dieci
lyftarar á
leiðinni til
landsins með
2,5 – 4 tonna
lyftigetu
Margar
útfærslur
í boði.