Bændablaðið - 24.05.2018, Síða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
Nýverið frumsýndu Kraftvélar
sendibíl ársins 2018 sem er Iveco
Daily Electric Blue Power.
Um er að ræða fyrsta 100%
rafmagnsbílinn á Íslandi í flokki stærri
sendibíla. Iveco hefur tekið stórt
stökk á síðustu árum í bifreiðahönnun
þar sem stefnan hefur verið tekin á
umhverfisvæna bíla.
Iveco Daily var kosinn sendibíll
ársins 2015 þegar nýja kynslóð Daily
var kynnt en núna þremur árum síðar
kynntu Iveco umhverfisvæna lausn af
Daily sem kallast Blue Power. Þessi
lausn varð til þess að bíllinn var
aftur kosinn sendibíll ársins, í þetta
skiptið fyrir árið 2018. Verðlaunin
eru á alþjóðavísu kosin af dómnefnd
bílablaðamanna frá 25 löndum.
Allt að 200 km drægni
Daily Blue Power Electric er með
allt að 200 kílómetra raundrægni og
er með 2 tíma hraðhleðslumöguleika
og með 100% endurvinnanlegum
rafhlöðum. Hægt er að fá Daily Blue
Power í sendibílaútfærslu frá 9m3 og
allt að 19,6m3 flutningsrými í 3,5 og
5,0t heildarþyngd. Einnig er hægt að
fá Daily Blue Power með vörukassa
og í pallbílaútfærslu.
Daily Electric Blue Power er hluti
af nýrri vörulínu Iveco sem heitir
Daily Blue Power en í henni er hægt
að velja á milli þriggja aflgjafa fram-
tíðarinnar:
• Iveco Daily 100% rafmagn
• Iveco Daily metan
• Iveco Daily dísil Euro 6
Allir eiga þessir aflgjafar sameigin-
legt að vera mun umhverfisvænni
heldur en hefðbundnir aflgjafar. Því
er þetta í fyrsta skipti sem framleið-
andi atvinnubíla býður upp á heild-
stæða vörulínu sem samanstendur af
umhverfisvænum atvinnubílum sem
eru sérstaklega hannaðir fyrir notkun
í borgum og þéttbýli. Gefst fyrir-
tækjum nú kostur á umhverfisvænni
atvinnubílum sem standast kröfur um
minni mengun en hafa engin takmörk
í þéttbýlisnotkun.
Það var Veitur ohf. sem tóku
á móti fyrsta Daily Blue Power
Electric 100% rafmagnsbílnum.
Veitur ohf. hafa verið í fararbroddi
íslenskra fyrirtækja í að taka í notk-
un umhverfisvæna atvinnubíla.
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
GRÆNT ALLA LEIÐ
Iveco Daily Electric Blue Power:
Fyrsti stóri rafmagns-
sendibíllinn á Íslandi
Ívar Þór Sigþórsson, sölustjóri atvinnubifreiða hjá Kraftvélum, afhendir hér
Vesturhrauni 3 - 210 Garðabær
480-0000 - sala@aflvelar.is - www.aflvelar.is
Í yfir 20 ár hefur Viking Window AS
framleitt tréglugga og hurðir með
eða álkápu í öllum litum sem
afhendast tilbúnir til ísetningar.
Afgreiðslutími er einungis 5 -8 vikur
Sjá nánar á www.viking.ee
Sendu okkur gögn á sala@aflvelar.is og fáðu tilboð
Gluggar og hurðir
Reki ehf Sími: 562 2950
Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Netfang: tryggvi@reki.is Vefsíða: www.reki.is
BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL SÆTA Í HVERS KYNS
VINNUTÆKI FRÁ UNITEDSEATS.