Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201816 Tekjur færeyskra stjórnvalda af veiðigjöldum og kvótauppboðum á þessu ári nema 4,7 milljörðum íslenskra króna. Sú fjárhæð jafngildir rétt rúmlega helmingi veiðigjalda á Íslandi á nýliðnu fiskveiðiári. Sú var tíðin að andstæðingar kvótakerfisins á Íslandi bentu gjarnan á færeysku leiðina sem fyrirmynd að betra fiskveiðistjórnunarkerfi, en hún byggði á sóknardögum í stað kvóta. Nú hafa Færeyingar söðlað um. Á þessu ári tók gildi nýtt veiðikerfi í Færeyjum sem tekur mið af íslenska kvótakerfinu þótt á því séu ýmsar veigamiklar undantekningar. Blandað kerfi hingað til Reyndar hefur kvótakerfi verið við lýði í Færeyjum í veiðum á uppsjávarfiski í langan tíma og sömuleiðis í veiðum á fjarlægum slóðum, en á heimamiðum hefur botnfiskveiðum verið stjórnað með því að úthluta skipunum ákveðnum fjölda veiðidaga. Ekki er um það deilt að helstu botnfiskstofnum kringum Færeyjar hefur farið mjög hrakandi á liðnum árum. Þannig hefur afli botnfisks af heimamiðum dregist saman úr tæpum 140 þúsund tonnum árið 2005 niður fyrir 80 þúsund tonn undanfarin ár. Eitt af aðalmarkmiðum nýja fiskveiðistjórnunarkerfisins er að byggja upp fiskistofnana og gera veiðarnar sjálfbærar. Móta skal langtímastefnu um þróun hvers fiskistofns í samráði við fiskifræðinga. Minni bátar áfram í dagakerfi Upphaflega stóð til að afnema sóknardagakerfið með öllu og taka upp kvótakerfi fyrir öll skip, stór og smá, en vegna andstöðu varð niðurstaðan sú að minni bátarnir verða áfram í veiðidagakerfi en stærri skipum og bátum er úthlutað kvóta. Í nýju lögunum er tekið fram að sjávarauðlindin sé í eigu færeysku þjóðarinnar og fiskveiðiheimildir megi aldrei verða einkaeign, hvorki samkvæmt lögum né í framkvæmd. Þá eru bein kaup og sala á kvótum milli manna óheimil. Til þess að veiðiheimildirnar geti skipt um hendur þarf að setja þær á uppboð. Að þessu leyti eru reglur um kvótaviðskipti þrengri í Færeyjum en á Ísland, en hérlendis er kvótasala frjáls sem kunnugt er. Uppboð á veiðiheimildum Þeir sem réðu yfir veiðiheimildum fyrir kerfisbreytinguna fá sóknar- dögum sínum breytt í kvóta til næstu átta ára en þá munu stjórnvöld ákveða hvernig endurnýjun þeirra verður háttað. Veigamesta frávikið frá íslenska kvótakerfinu í færeysku löggjöfinni er það að hluti veiðiheimildanna í Færeyjum er settur á opinbert uppboð. Þannig eru 15% makrílkvótans, 15% síldarkvótans og 25% kolmunnakvótans boðin upp. Sömuleiðis eru 15% botnfiskveiðiheimilda Færeyinga á fjarlægum miðum sett á uppboð. Fari heildarkvótar í áðurnefndum tegundum upp fyrir viss mörk skal öll viðbótin boðin upp. Beðið er með að bjóða upp botnfiskkvóta á heimamiðum þar til fiskstofnarnir þar fara að hressast, en það verður þegar þorskaflinn fer yfir 20.000 tonn, ýsuaflinn yfir 12.000 tonn og ufsaaflinn yfir 40.000 tonn. Þeir kvótar sem fara um uppboð eru seldir til skamms eða lengri tíma, allt frá einu ári og upp í 8 ár. Ef kaupandinn nýtir ekki allan keyptan kvóta rennur það sem afgangs er aftur til ríkisins óbætt. Veiðileyfagjöld Sá kvóti sem ekki fer á uppboð í Færeyjum sætir veiðileyfagjöldum. Sá er þó munurinn á íslensku og færeysku veiðigjöldunum að í Færeyjum eru botnfiskveiðar á heimamiðum enn sem komið er undanþegnar veiðigjöldum. Skýringin sem gefi er er sú að veiðigjöldin tengist afkomu og heimaflotinn á botnfiski hafi verið rekinn með tapi á undanförnum árum. Þegar það breytist er stefnt að því að öll færeysk fiskiskip greiði veiðigjöld. Veiðigjöld í Færeyjum á uppsjávarveiðum á þessu ári eru sem hér segir: Fyrir makríl ein dönsk króna kílóið (16,77 ÍSK), fyrir síld 0,75 DKK (12,58 ÍSK) og fyrir kolmunna 0,20 DKK (3,36 ÍSK). Þetta eru mun hærri veiðigjöld en tíðkast á Íslandi fyrir þessar tegundir. Núverandi gjöld á Íslandi eru 3,27 ÍSK/kg fyrir makríl og síld en 1,20 ÍSK/kg fyrir kolmunna. Veiðigjöldin eru þannig fimm sinnum hærri í Færeyjum en á Íslandi fyrir hvert kvótakíló af makríl, tæplega fjórum sinnum hærri fyrir síld og um þrefalt hærri fyrir kolmunna. Þær veiðiheimildir sem farið hafa á uppboð hafa verið slegnar á eftirfarandi verði: Makríll 80-102 ÍSK/kg, síld 42-49 ÍSK/kg og kolmunni á 8-11 ÍSK/kg. Veiðigjöld Færeyjar - Ísland Ofangreindar upplýsingar fékk höfundur þessa pistils hjá færeyska sjávarútvegsráðuneytinu. Þar fékkst einnig upplýst að áætlaðar tekjur hins opinbera á þessu ári af veiðileyfagjaldinu næmu sem svarar 2.634 milljónum ÍSK og tekjur af kvótauppboðunum 2.064 milljónum ÍSK, eða samtals tæplega 4,7 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar má nefna að álögð veiðigjöld á Íslandi á nýliðnu fiskveiðiári námu 9,3 milljörðum króna eða um helmingi hærri fjárhæð en í Færeyjum. Annars hafa veiðigjöldin á Íslandi sveiflast mikið á síðustu árum, voru hæst 12,8 milljarðar fiskveiðiárið 2012/13 og lægst 4,6 milljarðar fiskveiðiárið 2016/17, samkvæmt vef Fiskistofu. Mikill stærðarmunur Í þessum samanburði þarf að taka tillit til þess að verulegur stærðarmunur er á fiskveiðum Íslendinga og Færeyinga. Íslendingar veiddu tæplega 1,2 milljónir tonna af fiski árið 2017 samanborið við 700 þúsund tonn Færeyinga. Ekki tókst að fá upplýsingar um heildaraflaverðmæti Færeyinga hjá Hagstofu Færeyja, en nefna má að útflutningsverðmæti sjávarafurða frá Íslandi nam 197 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við 76 milljarða íslenskra króna í Færeyjum (fiskeldi undanskilið). Verðmætið í Færeyjum er með öðrum orðum 39% af íslenska verðmætinu. Þess ber að geta að uppsjávarfiskur er miklu stærri hlutur af heildarafla í Færeyjum en á Íslandi eða 83% á móti 60%. Útflutningsverðmæti uppsjávarfisks er 40% af heildarverðmætinu í Færeyjum en aðeins 22% á Íslandi miðað við árið 2017. „Óbein gjaldtaka“ á Íslandi Eins og að framan greinir eru veiðigjöld mun hærri í Færeyjum en á Íslandi á þeim tegundum sem gjöldin einskorðast við. Í skýrslu sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) tóku saman árið 2016 í aðdraganda nýju laganna í Færeyjum er lögð áhersla á að á Íslandi sé veiðigjald lagt á allar fisktegundir en í Færeyjum á aðeins þrjár, makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna. Jafnframt sé mikilvægt að horfa til þess að sjómenn borgi hluta af veiðigjaldinu í Færeyjum, ólíkt því sem gerist á Íslandi. Þá er ennfremur vakin athygli á því sem kallað er óbein gjaldtaka í sjávarútvegi þar sem íslenska ríkið hafi til ráðstöfunar 5,3% af úthlutuðum aflaheimildum sem ráðstafað sé til strandveiða, línuívilnunar, byggðakvóta og annarra aðgerða. Reyndar er í nýju færeysku lögunum svipað ákvæði, en þar er heimilt að taka frá allt að 8,5% af heildarkvótanum til þróunarverkefna sem stuðla að auknum verðmætum, einkum á stöðum þar sem atvinnuleysi er yfir meðallagi. Útlendingana út Af öðrum nýmælum í nýja kerfinu má nefna að enginn einn aðili má ráða yfir meira en 20% af heildaraflaheimildunum (hlutfallið er 12% á Íslandi) og hámarkið er 35% fyrir einstakar veiðigreinar, þ.e. uppsjávarveiðar, botnfiskveiðar á heimamiðum og veiðar á fjarlægum miðum. Þá sætir það tíðindum að í nýju lögunum er eignarhald útlendinga í fiskveiðum bannað með öllu. Erlendum aðilum sem nú eiga í færeyskum útgerðum er gefinn sex ára frestur til þess að selja sig út. Sérstakt ákvæði gildir um Íslendinga í þessu efni en þeir fá sjö ára aðlögunarfrest. Sem kunnugt er á Samherji í útgerðinni Framherja í Færeyjum og fellur því undir þetta ákvæði. Þessar reglur gilda ekki um eignarhald útlendinga í fiskvinnslufyrirtækjum. Guðjón Einarsson gudjone3@gmail.com Sonur Guðs, Kristur, Frelsarinn, mannsonurinn, heilagur andi eða krosslafur. Hvaða nafni sem fólk kýs að kalla Jesúm þá er saga hans eða hugmyndir um hann feikilega forvitnileg og áhrif hugmyndanna miklar. Sverrir Jakobsson, sagn- fræðingur og prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands, sendi nýlega frá sér bókina Kristur – Saga hugmyndar þar sem hann fjallar um og rekur helstu hugmyndir um Krist með sögulegu yfirliti frá upphafi til aldamótanna 800. Í kynningu á bókinni segir að Jesús Kristur sé einn áhrifamesti einstaklingurinn í sögu mannkyns en um leið sé deilt um nánast allt sem honum tengist. Kristur - Saga hugmyndar fjallar um upphaf rótgróinna hugmynda um Krist, hvernig þær mótuðust og af hverju þær eru svo eðlisólíkar. Rakið er hvernig hið sögulega minni um þessa máttugu persónu tók sífelldum breytingum fyrstu aldirnar. Sögusviðinu er lýst, samfélagi Gyðinga í Palestínu, en einnig hinum stærri heimi sem það tilheyrði, hinum grískumælandi hluta Rómaveldis. Greint er frá því hvernig hugmyndir um Krist tóku á sig staðlaða mynd og af hverju sum rit um ævi hans hlutu almenna viðurkenningu meðan öðrum var hafnað. Að lokum er fjallað um klofning kristinna manna í rétttrúaða og villutrúarmenn sem hefur mótað sögu þeirra. Verkefnið sem Sverrir tekur sér fyrir hendur í bókinni er risavaxið enda koma fram á hverju ári nýjar kenningar um Krist og eðli hans. Menn eru ekki einu sinn sammála um hvort Jesús hafi verið maður eða andi eða hvort hann var sonur guðs eða venjulegur maður. Auk þess sem deilt um hvort Jesús hafi verið einn af helstu spámönnum heims eða veraldlega sinnaður byltingarforingi. Það hvort Kristur hafi verið til í lifanda lífi eða ekki er samt ekki umfjöllunarefni Sverris í bókinni, eða eins og hann segir í aðfaraorðum: „Þegar talað eru hugmyndina um Krist er ekki verið að vísa til einstaklingsins Jesú frá Nasaret eða þess sem hann gerði á meðan hann var uppi heldur til þess hvernig annað á ýmsum tímum leit á Krist og hlutverk hans.“ Þrátt fyrir að umfjöllunarefni bókarinnar spanni nokkrar aldir og sé umfangsmikið tekst Sverri að setja það fram á skýran, skilmerkilegan og læsilegan máta án óþarfa málalenginga. Kristur – Saga hugmyndar er því prýðileg lesning fyrir allt áhugafólk um trúarbrögð, sögu og hugmyndafræði og full ástæða til að mæla með henni. Bókin er ríkulega myndskreytt og auka myndirnar tvímælalaust gildi hennar. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag. /VH STEKKUR Kristur NYTJAR HAFSINS Nýja færeyska leiðin Veiðigjöld á helstu uppsjávarfisktegundir, makríl,síld og kolmunna, eru mun hærri í Færeyjum en á Íslandi. Hins vegar eru engin veiðigjöld lögð á botnfisk af heimamiðum við Færeyjar enn sem komið er. Myndir / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.